Unga Ísland - 01.01.1941, Síða 28
KROSSGÁTA
Skýring krossgátunnar
Lárétt: 1 á fæti, 3 verkur, 5 leit,
7 á á Suðurlandi, 9 fugl, 10 staðfastur,
13 lækur, 14 fugl, 16 bergtegund, 18
hrós, 19 fisks, 21 tólf mánuðir, 22 ósoð-
in, 23 stóð ekki.
Lóðlétt: 1 hávaði, 2 biblíunafn, 4
í höfði, 5 haf, 6 spil, 8 ísl. skáld (dáið),
9 blóm, 11 barði, 12 mas, 15 lítill, 16
eldsneyti, 17 vond, 18 gras, 20 5 lá-
rétt.
GLEYMSKA
Enski eðlisfræðingurinn, Newton, var
oft annars hugar. Einu sinni kom vin-
ur hans að heimsækja hann. Fann hann
þjóninn og gerði boð fyrir Newton.
Þjónninn vissi, að hann var önnum kaf-
inn og vildi ekki láta trufla sig. Hann
bauð samt gestinum inn, vísaði honum
inn í borðstofuna og sagði honum, að
Newton myndi koma til að borða eftir
eina klukkustund og væri honum vel-
komið að bíða eftir honum þarna inni.
Manninum lá mikið á að finna hús-
bóndann og tók hann því þann kost að
bíða.
Þegar liðin var næstum ein klukku-
stund, kom þjónninn inn með mat handa
húsbónda sínum, en svo leið önnur
klukkustund og Newton kom ekki. Þá
for gesturinn að verða svangur, sett-
ist niður við borðið og át matinn. Svo
stóð hann á fætur og ætlaði að fara að
kalla á þjóninn, svo að hann gæti aftur
borið á borð fyrir húsbóndann, en í
sömu svifum kom Newton inn. — Hann
heilsaði vini sínum hjartanlega, þakk-
aði honum fyrir að bíða svona lengi eft-
ir sér og bað hann að fá sér sæti aftur
og tala við sig, meðan hann væri að
borða, en þegar hann gekk að borðinu
og sá að matarílátin voru tóm, hló hann
og sagði: — Ekki er ofsögum sagt af
því, að við vísindamennirnir séum
stundum annars hugar. Nú var ég bú-
inn að gleyma því, að ég er nýbúinn að
borða.
(Endursagt). S. H.
NAFNAGÁTA
Sé lesið lóðrétt úr fyrsta staf hvers
orðs, myndar það nafn á borg í Hol-
landi, sé rétt ráðið.
1. Land í Suður-Ameríku.
2. Fljót í Ameríku.
3. Borg á Norðurlöndum.
4. Borg á Spáni.
5. Land í Evrópu.
6. Skólastaður á Islandi.
7. Eitt af Norðurlöndunum.
8. Islenzkur kaupstaður.
9. Bær í Skagafirði.
Norðfirðingur, 14 ára.
UNGA ÍSLAND
22