Unga Ísland - 01.01.1941, Síða 29
UNGA ISLAND
Kæru lesendur!
Eins og ykkur er kunnugt úr dag-
lega lífinu umhverfis ykkur, þá hefir
nærri því hver einasti hlutur, sem við
þurfum að kaupa, hækkað í verði á ár-
inu sem leið, og hækkunin heldur áfram
á þessu nýbyrjaða ári. Meðal þeirra
hluta, sem mest hafa hækkað í verði, er
pappírinn, sem blaðið okkar er prentað
á. Efnið, sem notað er í pappírinn er
einnig haft í sprengjur og ef til vill
fleira, er að hernaði lýtur. Þess vegna
meðal annars hefir pappír hækkað
meira en flest annað. Kaup prentaranna
hækkar einnig eins og von er til, svo
og ýmislegt annað, sem lýtur að prent-
un og heftingu blaðsins.
Útgefendur Unga Islands sjá sér þess
vegna ekki annað fært, en að hækka
verðið á blaðinu frá því, sem verið hefir
undanfarið. Síðastliðið ár var blaðið
3,00 krónur árgangurinn fyrir áskrif-
endur, en verður nú á þessu ári 4,50 kr.
Æskan, barnblað Stórstúkunnar hækk-
ar jafnmikið eða úr 3,50 kr. í 5,00. —
Hafa útgefendur þessara blaða talazt
við um þetta mál og komizt að raun um,
að ekki væri hægt að gefa blöðin út,
án þessarar hækkunar á verðinu.
Við þökkum öllum okkar mörgu og
áhugasömu kaupendum fyrir gott sam-
satrf á undanfönrum árum, óskum þeim
heilla og farsældar á nýbyrjaða árinu
og vonum að þeir haldi áfram að vinna
að eflingu Unga íslands og þeim mál-
um öðrum, sem Ungliðar Rauðakross
íslands hafa á stefnuskrá sinni. Aldrei
hefir verið eins mikil þörf fyrir heilsu-
verndar- og mannúðarstörf Rauða-
krossins og nú. Heil til starfa.
SigurÖur Thorlacius.
UNGA ÍSLAND
TII ^amans
Gestur á veitingahúsi við þjóninn:
Af hverju glápir hundurinn svona á
mig?
Þjónninn: Kærið yður ekkert um það.
Hann lætur svona bara af því, að þér
eruð að borða af diskinum hans.
*
A.: Nýju fötin þín fara þér vel, en
mundirðu nú að láta fylgja þeim tvenn-
ar buxur, eins og ég ráðlagði þér?
B: Já, ég mundi það, en mér finnst
bara svo skrambi heitt að vera í tvenn-
um buxum.
*
Stúdentinn: Má ég spyrja, ætlar
prófessorinn að tala um stóra heilann
í fyrirlestrinum í dag?
Prófesorinn: Á morgun, herrar mín-
ir, á morgun. — í dag hefi ég annað
í höfðinu.
*
Kennarinn (reiður) : Jens, er ekki
hægt að láta þig sitja hjá siðuðum
manni? .... Það er þá bezt að þú komir
hingað upp að kennaraborðinu og sitjir
hjá mér.
*
Vinnukonan: Það er maður úti með
mikið svart skegg.
Húsbóndinn (annars hugar): Getið
þér ekki tekið við því fyrir mig?
*
Sveinn litli: Ég held að pabbi hafi
hlotið að vera óttalegur prakkari, þeg-
ar hann var strákur.
Mamma: Af hverju heldurðu það?
Sveinn: Jú, alltaf þegar ég geri eitt-
hvert prakkarastrik, þá véit hann á
augabragði, hvernig ég hefi farið að
því.
23