Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 22
Reglur sjóðsins hafa lengi verið óbreyttar, hámarksstyrkur er nú 300.000 krónur, en þau
réttindi nást eftir þriggja ára sjóðsaðild, réttindi vinnast síðan upp aftur eftir úthlutun,
um eitt hundrað þúsund krónur á ári. Sú breyting hefur þó verið gerð vegna lægra
iðgjaldahlutfalls ríkisstarfsmanna að ávinnsluréttur þeirra til endurnýjunar réttinda
lengist. Styrkir til tölvukaupa geta mest orðið 150.000 krónur eða 75% af reiknings-
upphæð tölvubúnaðar.
Stjórn sjóðsins er skipuð eftirtöldum: Tveimur fulltrúum KTFI og tveimur fulltrúum
vinnuveitenda; Haraldur Sigursteinsson formaður, KTFÍ, Óli Jón Hertervig ritari, KTFÍ,
Angantýr Einarsson, f.h. fjármálaráðherra og Soffía Kjaran, f.h. Reykjavíkurborgar.
Skýrsla Orlofssjóðs fyrir árið 2008
í gildi er samningur milli KTFÍ og OBHM um að félagsmenn KTFÍ geti greitt í OBHM.
Greiðslur vegna félagsmanna sem vinna hjá ríki eða borg, nokkrum sveitarfélögum og
fyrirtækjum í eigu ríkis eða borgar fara beint til OBHM. Aðrir aðilar greiða í orlofssjóð
KTFI sem stendur svo skil á greiðslum til OBHM. Þessar greiðslur voru á árinu 2008 fyrir
145 félagsmenn og komu frá 70 fyrirtækjum.
Ársskýrsla NTFÍ
Aðalfundur: Aðalfundur NTFÍ var haldinn þriðjudaginn 4. mars 2008. Á dagskrá aðal-
fundar voru hefðbxmdin aðalfundarstörf. Stefán Steindórsson var endurkjörinn for-
maður, Ólafur Baldvinsson gjaldkeri og Tómas Bjöm Hauksson ritari voru einnig
endurkjörnir. Varamenn voru endurkjörnir þeir Steinar Magnússon og Ólafur
Sigurðsson. Endurskoðendur voru kjörnir Birgir Baldursson og Heimir Gunnarsson.
Stjórnarfundir: Stjórn hefur fundað fimm sinnum á starfsárinu. Þessir fundir hafa allir
nema einn verið haldnir með stjórn NVFÍ. Fundirnir hafa verið misjafnlega mikið sóttir.
Skoðunarferð í Hof menningarhús: Farið var í skoðunarferð í Hof, menningarhús
Akureyringa 27, mars undir leiðsögn Magnúsar Garðarssonar frá Fasteignum
Akureyrarbæjar og Steindórs Guðmundssonar frá VST sem annaðist hljóðhönnun
hússins. Steindór hélt erindi um hljóðhönnun hússins að skoðunarferð lokinni.
Kárahnjúkaferð: Þann 27. september 2008 var farið í Kárahnjúkaferð og var þessi ferð
hugsuð sem lokahnykkurinn þar sern farið hefur verið á Kárahnjúka og nágrenni undan-
farin ár til að fylgjast með þeim gríðarlegu framkvæmdum sem átt hafa sér stað á mið-
Austurlandi. Farið var um Hrafnkelsdal upp að Kárahnjúkastíflu þar sem snæddur var
hádegisverður í boði Landsvirkjunar. Að málsverði loknum voru skoðaðar Ufsa- og
Hraunaveitur undir leiðsögn Sveins Þórarinssonar verkfræðings og þökkum við honum
góða kynningu.
Að því loknu var ekið að Teigsbjargi þar sem farið var að lokum á fallpípu og þaðan ekið
niður í Fljótsdal og farið inn í sjálfan stöðvarhúshellinn undir leiðsögn stöðvarstjóra. Á
heimleið var komið við hjá Hitaveitu Egilsstaða og Fella að Urriðavatni og þegnar veit-
ingar. Síðasti áningarstaður á heimleið var Selhótel í Mývatnssveit þar sem snæddur var
kvöldverður, heimkoma var um miðnætti.
Það starfsár sem hér hefur verið gerð grein fyrir hefur verið frekar rólegt hvað
félagsstarfið varðar og er þar að mestu um að kenna annríki stjórnarmanna í sínum
störfum. Samvinna innan stjórnar hefur verið til fyrirmyndar og samstarf við NVFÍ með
miklum ágætum. Stjórn NTFÍ vill þakka félögum ágætt samstarf á starfsárinu og væntir
enn frekari þátttöku félaga á því starfsári sem framundan er.
Stefán Steindórsson formaður
2 o
Arbók VFl/TFl 2009