Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 27
1.2.2 Skýrslur deilda, faghópa og nefnda VFÍ
starfsárið 2008-2009
Menntamálanefnd
Skipan nefndarinnar og fundir
Menntamálanefnd VFÍ var á starfsárinu skipuð eftirtöldum mönnum: Steindór
Guðmundsson formaður, Björn Karlsson, Einar Matthíasson, Ingunn Sæmundsdóttir,
Jenný Ruth Hrafnsdóttir, Sigurður M. Garðarsson og Þórður Helgason. Sigurður M.
Garðarsson er stjórnarmaður í ENSÍM-nefnd VFÍ, TFI og SV og situr hann jafnframt í
menntamálanefndinni. Sigurður hefur einnig setið í stjórn Endurmenntunarstofnunar HI
sem fulltrúi VFÍ, en nú hefur nýtt skipulag tekið gildi fyrir stofnunina. Héðan í frá skipar
Háskólaráð henni fimm manna stjórn og jafnmarga til vara, að fengnum ábendingum frá
endurmenntunarstjóra um ákjósanleg tengsl við fræðasvið og aðra starfsemi Háskólans.
Stjórnin er skipuð til þriggja ára í senn og skiptir sjálf með sér verkum. Um hlutverk og
verkefni menntamálanefndar er fjallað í 19. grein félagslaga VFÍ.
Menntamálanefnd hélt alls 10 fundi á starfsárinu, og voru þeir fundir nr. 286-295.
Venjulegur fundartími er annar fimmtudagur hvers mánaðar.
Umsóknir til félagsins
Umsóknir um inngöngu í félagið og leyfi til að kalla sig verkfræðing voru sem hér segir
á starfsárinu, og til samanburðar eru umsóknir síðustu ára: Af 77 umsóknum um inn-
göngu í félagið voru 73 umsóknir samþykktar, 3 var hafnað og umfjöllun um eina er ekki
lokið. Allar 9 umsóknirnar um ungfélagaaðild voru samþykktar. Af 97 umsóknum um
starfsheitið voru 87 umsóknir samþykktar, 8 var hafnað og umfjöllun um tvær er ekki
lokið. Þeir einstaklingar sem mælt var með að fái leyfi til að kalla sig verkfræðing og/eða
fengu samþykkta inngöngu í félagið voru alls 137 talsins. Heildarfjöldi umsókna er mun
meiri á síðustu þremur starfsárum heldur en næstu ár á undan, og er það meðal annars
vegna margra umsókna um ungfélagaaðild. Þær hefðu þó mátt vera töluvert fleiri á
síðasta starfsári. Rétt er að vekja sérstaka athygli á því að af 71 nýrri umsókn um inn-
göngu í félagið voru 29 umsóknir frá ungfélögum sem luku BS-prófi og urðu þannig
sjálfkrafa félagsmenn. Þetta beinir enn athyglinni að því hve mikilvægt er að fá sem
flesta ungfélaga inn í félagið.
Auk þessara hefðbundnu umsagna um inngöngu í VFÍ og um starfsheitið, fjallaði
nefndin formlega um 20 umsóknir um inngöngu í SV fyrir stjórn SV. Þar af voru níu
samþykktar, sex var hafnað, ein var samþykkt sem möguleg ungfélagaaðild, einni var
vísað til TFÍ og í þremur tilvikum var beðið um frekari gögn sem ekki hafa enn borist.
Fjöldi umsókna undanfarin ár \
Starfsár 08-09 07-08 06-07 05-06 04-05 03-04 02-03 01-02
Innganga 77 57 66 47 42 51 53 45
Starfsheiti 97 99 72 75 51 50 53 52
Ungfélagaaðild 9 21 63 0 1 2 1 1
Umsóknir alls V 183 177 201 107 102 103 107 98 y
2 5
Félagsmál Vfí/TFÍ