Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Síða 36
1.3.2 Skýrslur sameiginlegra nefnda TFÍ/VFÍ
starfsárið 2008-2009
Útgáfunefnd TFÍ og VFÍ
Starfsemi útgáfunefndar var með venjubundnum hætti á síðastliðnu starfsári, ekki hafa
verið breytingar í nefndum eða ritstjórastörfum. Fulltrúar í nefndinni voru Ólafur Pétur
Pálsson formaður, Kristinn Andersen og Ragnar Ragnarsson, ritstjóri árbókarinnar, frá
VFÍ, og Ámi Þór Ámason og Óli Jón Hertervig frá TFÍ.
Árbók VFI/TFI2008 kom út í lok nóvember 2008 og var að þessu sinni ögn styttri en árið
áður eða 336 síður. Eftir ávörp formanna VFÍ og TFÍ og inngang ritstjóra er kafli sem
fjallar um félagsmál félaganna tveggja, sameiginlegan rekstur þeirra og lokaverkefni
nemenda við háskólana tvo en auk þess er listi yfir nýja félaga. Þar á eftir er tækniannáll,
en nú er fjallað m.a. um þróun efnahagsmála, orkuveitur (framkvæmdir), raforku, jarð-
hita, vegamál, Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og hafnarframkvæmdir. Því
næst eru kynningar og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana, í allt tuttugu, auk kafla með
styttri kynningum ráðgafarfyrirtækja. Þá eru fjórar ritrýndar vísindagreinar birtar að
þessu sinni, en í flestum tilfellum voru framhaldsnemar að kynna niðurstöður rannsókna
sinna ásamt leiðbeinendum sínum. Loks voru í árbókinni að þessu sinni níu tækni- og
vísindagreinar um mjög áhugaverð efni. Ragnari Ragnarssyni er þakkað gott samstarf og
fumlaus ritstjórn. Fjöldi útgefinna eintaka var 2400.
Verktækni kom út mánaðarlega nema yfir hásumarið, alls 10 tölublöð í um 3200 ein-
tökum. Verktækni hefur verið vettvangur fyrir alla verkfræðinga og tæknifræðinga til
þess að koma sínum sjónarmiðum og hugarefnum á framfæri. Eins eru í Verktækni birtar
fróðlegar greinar um ráðstefnur og skoðunarferðir félaganna, auk viðtala um áhugaverð
efni. Verktækni er einnig vettvangur stjórna félaganna þriggja, VFÍ, TFÍ og SV til þess að
koma nauðsynlegum upplýsingum til félagsmanna. Á liðnu ári var fjallað um margvísleg
efni, svo sem menntamál, orkumál en einnig voru kjaramál og starfsmannatengd mál
áberandi í lok árs. Sigrún Hafstein var ritstjóri Verktækni, eins og undanfarin ár, og er
henni þakkað ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári. í blaðnefnd Verktækni voru þau
María S. Guðjónsdóttir (en hún tók við af Sveinbjörgu Sveinsdóttur um mitt ár) frá SV,
Ólafur Pétur Pálsson frá VFÍ og Árni Þór Árnason frá TFÍ.
Útgáfunefnd þakkar öllum hlutaðeigandi samstarfið og biður félaga og aðra að koma til
hennar ábendingum og tillögum að því sem ef til vill mætti betur fara.
Ólafur Pétur Pálsson formaður
Austurlandsdeild
Deildir VFÍ og TFI á Austurlandi stóðu ekki fyrir neinum atburðum á starfsárinu
2008-2009. í stjórn AVFÍ sátu: Ingólfur Örn Arnarson formaður, Óli Metúsalemsson ritari
og Jóhannes Pálsson gjaldkeri.
Faghópur um hljóðhönnun
Stjórn faghópsins skipa Steindór Guðmundsson formaður, Sigurður Karlsson og
Bergþóra Kristinsdóttir meðstjórnendur.
3 4
Arbók VFl/TFl 2009