Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 80
Breytingar á reglum um útgreiðslu séreignarsparnaðar
Með lagabreytingum sem tóku gildi í ársbyrjun 2009 var heimilað að greiða út séreignar-
sparnað í einu lagi frá 60 ára aldri í stað 67 ára áður. Ennfremur var heimilað að greiða
erfingjum í einu lagi við fráfall, en áður hafði greiðslan í sumum tilvikum dreifst á sjö ár.
Með bráðabirgðaákvæði sem tók gildi 13. mars var heimilað að greiða út eina milljón
króna að hámarki með jafnri dreifingu yfir níu mánaða tímabil. Þessi heimild nær þó
aðeins til þess séreignarsparnaðar sem stofnað hefur verið til með samningi um reglu-
bundin iðgjöld launþega og launagreiðanda.
I janúar 2006 hóf sjóðurinn að ráðstafa þeim hluta samtryggingariðgjalda sem er umfram
10% í séreignarsparnað sjóðfélaga. Þessi aðgerð var kynnt sjóðfélögum ítarlega í frétta-
bréfi sjóðsins. Sjóðfélögum var gefinn kostur á því að breyta þeirri stýringu til baka í
samtryggingardeild eða í séreignarleið 2. í janúar 2007 hækkaði mótframlag atvinnu-
rekenda almennt í 8% og þar með hækkaði umframframlagið sem ráðstafað er í sér-
eignarsparnað í 2%. Þann hluta séreignarsparnaðar sem myndast hefur með þessari
ráðstöfun umframframlagsins er ekki heimilt að greiða út fyrr en við 60 ára aldur.
Breytingar á samþykktum
A aðalfundi 2009 voru samþykktar tillögur stjórnar sjóðsins um breytingar á sam-
þykktum sem fela í sér:
• að stjórn sjóðsins skuli setja verklagsreglur um áhættustýringu til að draga úr taps-
áhættu af fjárfestingum;
• lækkun réttindastuðla um 5%;
• að endurskoðunamefnd, skv. lögum um ársreikninga, komi í stað tveggja skoðunarmanna;
• að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega skuli lækkuð um 10%.
Stjórn
Stjórn lífeyrissjóðsins er skipuð fimm aðalmönnum og þremur til vara. Tvö ár í röð eru
tveir aðalmenn í kjöri á aðalfundi og einn varamaður en þriðja hvert ár er einn aðalmaður
í kjöri og einn til vara.
A aðalfundi 2008 voru Birna Pála Kristinsdóttir og Óskar Maríusson endurkjörin í aðal-
stjórn sjóðsins og Lúðvík Friðriksson var endurkjörinn í varastjórn. Björn Z. Asgrímsson
sagði sig úr stjórn á árinu 2008 vegna starfa sinna fyrir FME og tók Kristján M. Ólafsson
varamaður sæti hans í aðalstjóm. Lúðvík Friðriksson lést á árinu 2008.
A aðalfundi í maí 2009 voru Sigurður Ass Grétarsson og Kristján M. Ólafsson endur-
kjörnir til þriggja ára í aðalstjórn, Þrándur Ólafsson var kjörinn varamaður til þriggja ára
og Guðmundur Öm Jónsson varamaður til tveggja ára.
I stjórn eru (kjörtímabili lýkur): Sigurður Áss Grétarsson formaður (2012), Þórir Guð-
mundsson varaformaður (2010), Birna Pála Kristinsdóttir (2011), Óskar Maríusson (2011)
og Kristján M. Ólafsson (2012). Varamenn: Hulda Guðmundsdóttir (2010), Guðmundur
Örn Jónsson (2011) og Þrándur Ólafsson (2012). Stjórnin kom saman 23 sinnum frá síð-
asta aðalfundi. Alls voru greiddar 4.024 þúsund krónur í stjórnarlaun á síðasta ári.
Starfsmenn
Alls störfuðu sex starfsmenn hjá sjóðnum í fullu starfi á árinu 2009. Starfsmenn sjóðsins
í árslok: Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri, Erla Jóna Sigurðardóttir, iðgjaldaskrán-
ing, Guðmundur V. Friðjónsson fjármálastjóri, Jón Tryggvi Jóhannsson lögfræðingur, Óla
Helga Sigfinnsdóttir aðalbókari og Þórhallur S. Barðason, verðbréfaskráning.
Alls voru greiddar 45.413 þúsund krónur í laun til starfsmanna á árinu.
7 8
Arbók VFl/TFl 2009