Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 207
mörkuð ný stefna sem miðaði að því að koma félaginu í markaðsleiðandi stöðu í atvinnu-
greininni á 3-5 árum. Var markmiðið að þrefalda veltu fyrirtækisins og ná €500 milljóna
rnarkinu með yfirtökum á nokkrum lykilfyrirtækjum. í framhaldi af því skyldi stefnt að
€1 milljarðs veltu fyrir árið 2015 með öflugum innri vexti og smærri yfirtökum. í kjölfarið
var árið 2006 ráðist í kaup á fyrirtækjunum AEW Delford í Englandi og Scanvægt í
Danmörku. Þá var hollenska fyrirtækið Stork Food Systems keypt í maí árið 2008 og þar
’Tieö hafði Marel náð markaðsleiðandi stöðu í iðnaðinum með 15-16% markaðshlutdeild.
Sá keppinautur sem stendur næst Marel í dag er með um 8% markaðshlutdeild. Núna er
lögð áhersla á samþættingu þessara mismunandi fyrirtækja innan Marel Food Systems
samstæðunnar og að ná fram aukinni hagræðingu og arjsemi.
Marel í dag
Marel hefur tekið stakkaskiptum í áranna rás og er nú orðið fremsta fyrirtæki í heimi í
framboði tækja og heildstæðra lausna fyrir fisk- og kjúklingaiðnað, auk þess sem fyrir-
tækið stendur í fremstu röð með búnað til kjötvinnslu. Vörur fyritækisins má nú finna í
yfir 80% af stærri vinnslufyrirtækjum í heiminum. Eftir kaup á leiðandi fyrirtækjum á
undanförnum árum getur Marel Food Systems nú boðið viðskiptavinum sínum upp á
nánast allar þær vörur og vinnslukerfi sem þörf er á til vinnslu á matvælum í þessum
greinum.
Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferli matvælanna, frá móttöku hrá-
efnis til pökkunar og merkingar í neytendaumbúðir. Marel býður stök tæki eins og vogir,
flokkara, skurðarvélar, sagir, beintínsluvélar, frysta, pökkunarvélar og merkingarvélar,
sem og flæðilínur og heildarlausnir af ýmsu tagi. Hér er stiklað á nokkrum dæmum úr
vöruþróun fyrirtækisins að undanförnu og þeirri aðstöðu sem er til framleiðslu hjá Marel
á íslandi.
Röntgentækni til gæðaskoðunar
Árið 2001 hóf Marel þróun röntgentækis til skönnunar matvæla. Markmiðið var að þróa
tæki sem sjálfvirkt gæti greint bein í fiskflökum og hófst verkefnið í samvinnu við norska
samstarfsaðila. Röntgentækni var nýtt viðfangsefni innan Marel og þurfti því hópur
Verkfræðinga og annars tæknifólks að byggja upp reynslu og ítarlega þekkingu á þessu
sviði, auk þess sem verkefnið krafðist þróaðrar myndvinnslu og myndgreiningar til að
greina beinin með sjálfvirkum hætti og nægjanlegu
oryggi. Með þróun og framleiðslu fyrstu röntgen-
tækjanna hérlendis ruddi Marel nýja braut í
^slenskum hátækniiðnaði.
Pljótlega varð ljóst að mikil tækifæri væru til að
nýta tæknina í kjúklingaiðnaði og þróun tækisins
beindist að því viðfangsefni. Röntgenskoðunar-
tækið, sem hlotið hefur heitið „SensorX", er núna
notað í tugum kjúklingavinnslufyrirtækja víða um
heim og hefur þar yfirburðastöðu á markaði. Þessi
staða hefur ekki einungis náðst vegna framúrskar-
andi greinihæfi og áreiðanleika tækisins, heldur
frlast yfirburðir búnaðarins einnig í að Marel getur
boðið heildstæðar lausnir með tækinu, s.s. búnað
til að færa hráefni að því, aðskilja hráefni með
beinum frá því sem er beinlaust, og hugbúnað til
þess að fylgjast með árangri beinaskönnunarinnar.
SensorX - gæðaskoðunartæki með röntgen-
myndgreiningu.
Kynning og tæknigreina
fyrirtækja og stofnana i 205