Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 346
reikna dreifingu efna og gerla í hafstraumum þar sem lega útræsis frá hreinsistöð er
fyrirhuguð. Randskilyrði fyrir reiknilíkanið er mældur straumhraði, sjávardýpi, sjávar-
hiti, umhverfiskröfur fyrir strönd og magn efna og gerla í fráveituvatni.
í reglugerð um fráveitur og skólp, nr. 798/1999, eru breytt ákvæði frá fyrri reglugerð sem
endurspegla afrakstur af vísindastarfi sem unnið hefur verið í Reykjavík undanfarna ára-
tugi. Þar kemur fram að hreinsun fráveituvatns með síubúnaði á síður viðkvæmum
svæðum jafngildi eins þreps hreinsun. f nýlegu starfsleyfi til Fráveitu Hafnarfjarðar
kemur auk þess fram að vöktun á virkni fyrsta þreps hreinsistöðvar eigi að vera með
óbeinum mælingum á magni úrgangs, þ.e. með vigtun á móttökustað og með beinum
mælingum á rennsli fráveituvatns í gegnum hreinsistöðina.
Hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu
Síðasta skrefið í hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú verið stigið.
12. september 2009 var ný hreinsistöð fyrir fráveituvatn tekin í notkun í Hafnarfirði.
Hreinsistöðinni var gefið nafnið Hraunavík við hátíðlega opnunarathöfn þar sem for-
stjóri ístaks afhenti bæjarstjóra Hafnarfjarðar mannvirkið. Fráveita Hafnarfjarðar hefur
jafnframt fengið fullgilt leyfi til þess að starfrækja fráveitukerfi og hreinsistöð fyrir
Hafnarfjarðarbæ samkvæmt gildandi lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Hraunavík dælu- og hreinsistöð er sömu gerðar og starfræktar eru í Reykjavík, enda eru
aðstæður sambærilegar. Fráveituvatnið er hreinsað bæði með síubúnaði og í skiljuþró, en
síðan er því dælt út í sjó um langt útræsi. Náttúran sjálf annast þar niðurbrot á úr-
gangsefnum í fráveituvatninu, sem ekki eru skilin frá í hreinsistöðinni. Við undirbúning
á hönnun mannvirkja var gert reiknilíkan af áætluðu útstreymi fráveituvatns í sjóinn
utan við hreinsistöðina og dreifingu þess í sjónum. Niðurstöður úr þeim reikningum
sýna að kólígerlar við strönd verða innan við leyfileg mörk fyrir síður viðkvæman við-
taka.
Nýtt starfsleyfi fyrir Fráveitu Hafnar-
fjarðar er til marks um heildræna
stefnumótun fyrir söfnun, hreinsun
og losun fráveituvatns á Faxaflóa-
svæðinu. I starfsleyfinu eru sett sér-
tæk skilyrði vegna vöktunar á virkni
hreinsistöðvarinnar, vegna vöktunar
á losun efna í sjóinn og vegna virkni
dreifingar í sjónum. Til þess að upp-
fylla þessi skilyrði er stöðug mæling
og skráning á rennsli fráveituvatns í
gegnum hreinsistöðina, vigtun á
magni úrgangs frá stöðinni og
sýnataka úr fráveituvatni sem losað
er í sjó. Jafnframt þarf reglulega að
taka sýni úr sjónum, bæði við mörk
þynningarsvæðis og við strönd.
Stöðug vöktun verður einnig á því
hvort og hvað lengi rennsli verði um
yfirföll í fráveitukerfinu framhjá
hreinsistöðinni.
3 4 4
Arbók V F I / T FI 2009