Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2001, Side 8

Neytendablaðið - 01.10.2001, Side 8
Gæðakönnun það er til lítils gagns að hafa Hepa- eða S-síur ef ryksugan er óþétt að öðru leyti. Sumar ryksugur með einfaldari síum reyndust líka hreinsa loft mjög vel. Hve oft á að skipta um síur? Það fer el'tir því hve oft er ryksugað, hversu stórt og skítugt svæðið er. Margir framleiðendur ráðleggja að skipt sé um árlega en það get- ur reynst dýrt ef um er að ræða ryksugu með Hepa- eða S-síu. Misjafnar og ólíkar gerðir af síum eru í ryksugum. Rekstrarkostnaóur ryksugunn- ar fer eftir því hvers konar sía er í henni. Pokalausar ryksug- ur með síum sem má þvo og endurnota eru ódýrastar í rekstri. Hávaði, þyngd, sog og kraftur Hvinurinn í ryksugum er vægast sagt óþægilegur. í mælingum kom í ljós að há- vaðinn er á milli 75 og 84 desibel. Á bak við hærri töl- una er tvöfalt meiri hávaði en hina fyrri. Það er mikilvægt að ryksug- an sé ekki of þung, sérstak- lega fyrir fólk sem býr á fleiri en einni hæð. Framleiðendur hafa að undanfornu sett sífellt léttari ryksugur á markað. Þyngdin er að jafnaði milli 5,5 og 8,7 kg. Frá 1993 hafa verið fram- leiddar ryksugugerðir án poka. En þá þarf að losa rykið úr geyminum eftir hverja ryksugun og það getur verið tímafrekt, erfitt og óþrifalegt. Framleiðendur og sölu- menn vitna oft til mikils sog- krafts tækjanna í auglýsinga- skyni. En þann kraft verður alltaf að skoða með tilliti til þess hve mikið ryk þau soga upp og fanga. Til eru ryksug- ur með mikinn sogkraft en takmarkaða rykupptöku, oftast vegna lögunar stútsins. Ryksugan þarf heldur ekki að hafa mikið vélarafl til að ná miklum sogkrafti. Melissa VCC 16, sem fékkst á 9.995 í Elko, hefur 1400 vatta vélar- afl og 211 vatta sogkraft, en Electrolux Oxyen (sem ekki fékkst hér) er með sama vélar- afl en 369 vatta sogkraft. Hand- og vatnsryksugur Litlar handryksugur sem ganga fyrir rafhlöðum eru víða vinsælar. Þær eru sérstaklega hentugar til að hreinsa upp t.d. smárusl, pottamold og kusk sem alltaf getur safnast upp í verslunum, eldhúsum og sum- arbústöðum. Þægilegt er að geta gripið til þeirra og farið með þær víða um án þeirra erfiðismuna sem fylgja venju- legri ryksugu. Dýrar ryksugur (hreingem- ingatæki) með vatnssíum og áþekkum búnaði eru langtum dýrari en venjulegar heimilis- ryksugur. Rainbow E-1 kostar t.d. 176.700 kr. Kirby, sem er enn dýrari, er ekki lengur flutt inn. Sumar þeirra geta ekki bara ryksugað heldur líka sápuþvegið, bónað, fægt, slíp- að, massað og meira að segja sprautað lit. Þessum stóru og afkastamiklu tækjum er það líka sameiginlegt að þau eru þung og hávær og umstangs- frek í notkun og viðhaldi. Það er dýrt að endumýja í þeim síur og annan búnað. I gæðakönnunum kom fram að þrátt fyrir yfirlýsingar framleiðenda hreinsa ódýrari gerðir slíkra tækja ekki alltaf sérlega vel, þótt loftið sé leitt gegn vatn og síur, því agnirn- ar sleppa út aftur annars staðar og sveppir geta vaxið í þeim. Það er því fátt sem bendir til að kaup á slíkri gerð séu hag- stæð fýrir venjuleg heimili, ekki einu sinni þótt þar sé fólk með offiæmi eða asma. Það er villandi að halda því fram að ryksugur með vatns- síum skapi betra loft í íbúðum með því að hreinsa það í vatni. Staðreyndin er sú að í 100 fer- metra íbúð em um 280 rúm- metrar af lofti og það er alveg óraunhæft að ímynda sér að þessar vatnsryksugur hleypi því öllu gegnum sig við venjuleg heimilisstörf. Meg- inhluti loftsins fer aldrei gegnum vatnið. Ofnæmi og asmi Ryksugur með Hepa- og S- síum em æskilegastar þar sem fólk með ofnæmi eða asma býr eða heldur sig. Sumar þeirra geta meira að segja haldið aft- ur af sumum bakteríum. Gæðakannanir og umsagnir lækna sýna að fyrir fólk með ofnæmi og asma er ekki endi- lega betra að notuð sé ryksuga með vatnssíu en með þurrsíu. Meginmáli skiptir í slíkum til- vikum að tækið fangi smæstu agnir, örsveppi og rykmaura. Og þá má ekki bara reiða sig á góðar síur, ryksugan getur verið óþétt á öðmm stöðum og hleypt ögnunum þar út aftur. Nýjar gerðir af ryksugum með margfoldu þurrsíukerfi ráða oft ágætlega við þetta verk- efni. Ein hættan við vatns- síuryksugur er sú að í þeim skapist skilyrði fyrir sveppa- vöxt sem hefur áhrif á fólk með asma og ofnæmi. Hollráð fyrirkaup Það á að vera auðvelt að: draga ryksuguna yfír þrösk- ulda og kanta, draga hana um án þess að reka hana alls staðar utan í, bera hana, hreyfa stútana á teppum og hörðum gólfum, skipta um stúta, stilla stútinn, sem helst á að vera sjálfvirkur, opna hana og tæma pokann, skipta um síu, stilla vinnuhæð og stellingu með rörinu, sem helst á að vera hægt að stytta og lengja á auðveldan hátt, læra á og nota allar stilling- ar og takka. 8 NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.