Neytendablaðið - 01.10.2001, Side 19
Gæðakönnun
sinni lent í því að smakka
ijölmargar tegundir af
tómatsósu. Þetta væri algjört
himnaríki á við það.
Steinbíturinn
Hlé var gert og boðið upp á
kaffí áður en ráðist var til at-
lögu við steinbítinn. Ólafur
sagði að af þessum sýnum
sem hann hefði smakkað væri
einungis eitt sem hann væri
tilbúinn að eyða pening í.
Gylii sagði að þótt Veitinga-
húsið við Tjömina væri fisk-
réttastaður væri harðfiskur
ekki á boðstólum. Ulfar sagði
hins vegar að harðfiskur hefði
verið á boðstólum hjá Þremur
frökkum. Það kom einnig
fram að hann hafði gert til-
raunir með að nota harðfisk
sem hráefni í rétti.
Gæðakönnunin á steinbít
fór eins fram og könnunin á
ýsunni. Framleiðendur voru
margir þeir sömu og sölustað-
ir einnig.
Um steinbítinn þarf að
hafa eftirfarandi í huga: Hann
á að vera ljósgulur og helst
rauðbrúnar rákir á brúnum.
Hráefnið þarf að vera ferskt,
helst línufiskur. Ekki má vera
af honum geymslubragð
(IFystibragð eða pappabragð)
og ekki heldur þrátt bragð.
Hann á að vera aðeins saltur
en minna saltur en ýsan.
Þegar litið er á niðurstöðuna
kemur í ljós að smekkur sér-
fræðinganna er oft mjög mis-
munandi. Samstaða var ekki
um neitt sýni. Niðurstöðu
vantaði frá einum sérfræðingi
um eitt sýni.
Vestfirðimir komu ekki
jafnvel út í þessari smökkun
og í smökkuninni á ýsu.
Þannig fékk sérvalinn fiskur
frá þróunarsetri Hafró fyrir
vestan einungis 3,2. Hæsta
meðaleinkunn var 3,8 og var
annað sýnið frá EG á Flateyri
og keypt fyrir vestan, en EG
var einnig með hæstu ein-
kunnina í ýsunni. Hitt sýnið
sem náði 3,8 var frá Harðfisk-
verkun Antons Proppé á
Þingeyri sem keypt var í
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.
Líkt og með ýsuna gaf einn
sérfræðinganna hæstu ein-
kunn, 5, en nú einungis í
tvígang. í annað skiptið til EG
á Flateyri og í hitt skiptið var
það steinbítur frá Gullfiski á
Flateyri sem keyptur var í
Kolaportinu.
Lægstu einkunn, 2, fékk
steinbítur frá Vestfiski á ísa-
firði sem keyptur var í Sam-
kaupum, um hann var m.a.
sagt að torkennilegt aukabragð
væri af honum (kúaskíts-
bragð).
Niðurstööur
Ekki er hægt að segja að skýr
niðurstaða hafi fengist úr
þessari könnun. Ef hægt er að
tala um siguiTegara þá er það
EG á Flateyri sem náði hæstu
einkunn fyrir þrjú af fjórum
sýnum frá framleiðandanum.
Vestfirðimir koma nokkuð vel
út úr könnuninni, einkum
hvað varðar ýsuna. Þau sýni
sem fengu hæstu meðalein-
kunn vom öll framleidd á
Vestfjörðum og öll nema eitt
voru keypt þar.
Geymist kaldur!
Að lokum skulu neytendur
hvattir til að kaupa aðeins
harðfisk í merktum umbúðum
þar sem kemur fram hvaða
tegund af fiski er notuð, hver
framleiddi vöruna og hvemig
best sé að geyma hana. Einnig
er rétt að benda á að það er
misskilningur að harðfiskur
geymist best við stofúhita.
Raunin er að harðfiskur geym-
ist alls ekki við stofuhita -
þannig þomar hann upp og
missir bragðgæði. Harðfiskur
geymist best í kæli í lokuðum
umbúðum eða í frysti. Nær
undantekningarlaust var harð-
fiskurinn sem við keyptum
fyrir smökkunina hjá Neyt-
endasamtökunum ekki
geymdur í kæli í verslunun-
um.
NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001
19