Neytendablaðið - 01.10.2001, Page 21
Hársnyrtivörur
Sjö skaðleg efni
Af þeim sextán efnum sem rannsökuð voru
reyndust sjö vera skaðleg umhverfi eða
heilsu.
Eftirfarandi vörur sem voru rannsakaðar
innihéldu þessi ellefu efni (efni sem hafa
sömu virkni eru flokkuð saman).
1. Distearyldímoníumklóríð
Áhrif á umhverfí: Hefur eituráhrif á vatnalíf-
verur, þrávirkt, hefur hugsanlega uppsöfnun-
aráhrif.
Fannst í vaxi frá Poly Swing.
2. Stearalkóníumklóríð / (bensalkóníum
4-klóríð) - stearalkóníum-hektóríð
Áhrif á umhverfí: Hefur eituráhrif á vatnalíf-
verur, þrávirkt.
Fannst í hárfroðu frá Sebastian og í hár-
geli frá Redken.
3. Própýlparaben/bútýlparaben
- ísóbútýlparaben
Áhrif á umhverfí: Hefur skaðleg áhrif á
vatnalífVerur, veik hormónaáhrif við prófanir
á fiski, hefur hugsanlega uppsöfnunaráhrif.
Leyfílegt magn: 0,4% fýrir stök paraben,
0,8% íyrir parabenblöndur. Fannst í hárfroðu
frá Matas Hair Style og Resq, í hárgeli frá
Holdstill og Unique Haircare, í vaxi frá AII-
ison, Basic Line, DKS HairArt, Matas Hair
Style, Resq, Studio Line, Unique Haircare
og Www.rufs.com, soft.
4. Formaldehýð
Áhrif á heilsu: Mjög ertandi fyrir augu, nef-
göng og háls, jafnvel í örlitlu magni. Getur
valdið ofnæmi og hefur sannanlega valdið
öðmm varanlegum skaða, svo sem erfðagöll-
um og krabbameini.
Leyfílegt magn: I snyrtivömm 0,2%, ef
innihald fer yfir 0,05% á að merkja fram-
leiðsluvöruna „inniheldur formaldehýð“.
Fannst í hárgeli frá Charles Worthington.
5. Metýlisotíasolínon/metýlklóríðklórísótí-
asólínon (í hlutföllunum 1 á móti 3 sama og
efnið katon)
Áhrif á heilsu: Katon er þekktur ofnæmis-
valdur og er eitrað við inntöku.
Áhrif á umhverfí: Bæði efnin hafa sterk
eituráhrif á vatnalífvemr. Leyfílegt magn:
Þegar efnin eru í hlutfollunum l á móti 3
(katon) má magn þess að hámarki vera
0,0015% af framleiðsluvöru. Fannst í hárgeli
frá Redken og Swiss Formula.
6. Bensýlalkóhól
Áhrif á heilsu: Bensýlalkóhól er m.a. notað í
ilmvötn og er þekkt sem ofnæmisvaldur,
húðertandi og skaðlegt við innöndun.
Leyfílegt magn: Allt að 1%.
Ekki er vitað hve margar framleiðsluvömr
innihalda efnið, því það kann að vera merkt
sem „parfume“.
7. Amínómetýlprópanól
Áhrif á heilsu: Er ertandi og í miklu magni
getur það skaðað lifur, ným, milta og lungu.
Ef efnið fer yfir 1 % í snyrtivöru er það gert
hlutlaust, t.d. með því að bæta við fitusým.
Áhrif á umhverfi: Skaðlegt fyrir lífríki í
vatni. Hugsanlega á mörkum þess að vera
þrávirkt.
Fannst í hárlakki frá Clinique, El Vital,
Elnett, Et godt köb, Exclusiv, Lancðme, Mat-
as, Organics, Poly Swing, Redken, Resq,
Royal d’Or, Sebastian, Shock Waves, Studio
Line, Swiss Formula, Unique Haircare,
Wellajlex og Www.rufs.com. Fannst í hár-
froðu frá El Vital, Matas Hairstyle, Poly
Swing og Studio Line, í geli frá Studio Line
og í vaxi frá Studio Line.
Rannsókn efnanna
Efiiin voru rannsökuð á rann-
sóknarstofú sem vinnur meðal
annars fýrir danska umhverf-
isráðuneytið og aðrar stoíhanir
og fýrirtæki í Danmörku og
víðar. Eituráhrif kemískra
efna á lífríki í vatni voru met-
in. Efni telst eitrað þegar
magn efnisins í vatni (efna-
blanda) drepur eða skaðar 50%
af þeim lífvemm sem notaðar
em við rannsóknina (þörung-
ar, krabbadýr, fiskar). Efnin
flokkast í þrjá flokka eftir því
hve skaðleg þau em fýrir líf-
ríki í vatni. Efni geta einnig
mengað plöntur og dýr og
komist þannig í fæðukeðjuna.
Efni telst hafa uppsöfnunar-
áhrif ef útskilnaður er hægari
en inntaka í viðkomandi líf-
vem. Þá geta efni verið þrá-
virk, þ.e. það tekur þau lang-
an tíma að brotna niður í
skaðminni efni í vatnalífríki
eða í frárennsli. Efni geta
einnig valdið stökkbreyting-
um.
Óþörf efni
Mörg efni sem notuð em í
snyrtivömr eru óþörf. Þess
vegna ætti að banna þau sem
ekkert er vitað um hvemig
virka við langtímanotkun.
Ekki síst vegna þess að efnin
komast í beina snertingu við
húð. Þetta er skoðun Finns
Bro-Rasmussens, dansks sér-
fræðings í kemískum efnum.
„Hvers vegna er sett B-3-víta-
mín í hársnyrtivömr, þegar
vitað er að vítamín berast lík-
amanum gegnum blóðrásina,
en ekki gegnum hárið?“ Finn
er ósáttur við að framleiddar
skuli vera hársnyrtivörur sem
innihalda fjöldann allan af
ónauðsynlegum efhum. Hon-
um fínnst ekki bara óskyn-
samlegt að kaupa þessar vör-
ur, hann vill láta banna þær.
Bönnum þau!
Mörg þessara efna eru líf-
fræðilega virk, þ.e. þau hafa
áhrif á lífrænt ferli. Önnur
valda ofnæmi, eða erta augu.
Flest þeirra em ónauðsynleg
að sögn Finns. Hann álítur að
lagasetning í þessum efnum
eigi að vera mun strangari.
Þetta snýst einfaldlega um að
umgangast með varúð hættu-
leg efni sem menn vita lítið
um. „Við eigum ekki að nota
efni sem framkalla ofnæmi.
Við eigum ekki að nota efhi
sem geta breytt erðaefnum
okkar eða hafa áhrif á horm-
óna. Ef við getum ekki verið
án þessarar framleiðslu þá
eigum við að nota þær vömr
sem skaða minnst og nota
minna af þeim. Við eigum
ekki að ofhota kemísk efhi að
ástæðulausu! Það væri annað
mál ef um væri að ræða mat-
vömr sem ekki væri hægt að
21
NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001