Neytendablaðið - 01.10.2001, Side 23
Bráf frá lesendum
Bara hægt að greiða með kortum!
Neytendasamtökunum hef-
ur borist eftirfarandi bréf:
„Ég hef smá-fyrirspum sem
mig langar til að fá svar við.
Er löglegt að mismuna við-
skiptavini eftir því hvort hann
greiðir með greiðslukorti eða
staðgreiðir? Málið er að ís-
landssími er að bjóða þjónustu
sem einungis greiðslukorthaf-
ar geta nýtt sér. Ég hef ekki
greiðslukort og get því ekki
nýtt mér þessa þjónustu. Er
ekki verið að mismuna mér
þarna?
Annað - nú man ég vel
þegar Landssíminn breytti
gjaldskrá sinni þannig að nú
kostar það sama að hringja
innanbæjar og utanbæjar, og
man ég að ástæðan fyrir þessu
var sögð „til að allir sitji við
sama borð“. Nú er það svo að
ég bý 10 km fyrir utan Kefla-
vík og nota intemetið mjög
mikið, og símareikningurinn
er eftir því, en ég á ekki kost
á því að fá sítengingu, svo
sem ADSL, loftlínu eða hvað
þetta heitir allt saman, vegna
þess að ég er víst meira en 4
km ffá símstöð. Þetta þýðir að
sá sem býr til dæmis í Kefla-
vík getur fengið 20 sinnum
hraðvirkari tengingu en ég er
með fyrir mun lægra verð en
ég er að borga í símareikn-
inga.... Ég hef reynt að fá hjá
Símanum og Islandssíma ein-
hverskonar fast gjald eins og
ADSL-notendur eiga kost á,
en það er ekki hægt að þeirra
sögn. Er einhver sanngimi í
þessu? Ég veit vel að bæði
þessi fyrirtæki geta auðveld-
lega sett upp pakka fyrir fólk
eins og mig, en þess í stað láta
þeir okkur utanbæjarmennina
borga brúsann fyrir alla hina,
og það er ansi fúlt að mínu
áliti. Það versta er að ég get
ekkert gert... !! get ekki farið
til Íslandssíma vegna þess að
ég er ekki með kreditkort!
Verð ég bara að sitja undir
þessu óréttlæti?"
Neytendasamtökin sendu ís-
landssíma og Landssímanum
bréf þar sem óskað var sjón-
armiða þeirra á þeim atriðum
sem koma fram í bréfinu og
lúta að fyrirtækjunum. Lands-
síminn hefur ekki séð ástœðu
til að svara þrátt fyrir ítrekun,
en hér á eftir er svar Islands-
sima:
„Greiðslukortaviðskipti: Bréf-
ritari er velkominn hvort sem
er í fastlínuviðskipti og/eða
farsímaviðskipti til íslands-
síma, hvort sem hann notar
greiðslukort eða ekki. Fast-
línuviðskiptavinir, þ.e. þeir
viðskiptavinir sem em með
gamla góða heimilissímann
hjá Íslandssíma, geta greitt
reikninga sína annaðhvort með
greiðslukorti eða beingreiðsl-
um í gegnum bankann sinn.
Íslandssími hefur boðið við-
skiptavinum sínum að greiða
reikninga sína með bein-
greiðslu síðan í mars. Með því
að bjóða viðskiptavinum sínum
að greiða reikningana með
þessum hætti getur Islands-
sími haldið innheimtuferlinu
einföldu og haldið verði þjón-
ustunnar lágu.
Háhraðatengingar: Tækni-
lega gæti Islandssími boðið
upp á háhraðatengingar um
allt land en kostnaður við slíkt
myndi aldrei standa undir
rekstri. Það eitt stendur því i
vegi fyrir að ráðist er í hundrað
milljóna króna fjárfestingar.
Ovíst er t.d. að íjárfestar í Is-
landssíma féllust á slíka ráð-
stöfún. Þess í stað höfúm við
ákveðið að bjóða háhraðanet-
þjónustu á höfúðborgarsvæð-
inu og síðan í nokkrum öðmm
þéttbýliskjömum í samkeppni
við aðra. Samkeppni er jú ein
meginforsenda betri þjónustu
til neytenda og lægra verðs.
Hvað hefðbundna nettengingu
varðar þá býður Islandssími
upp á tvo pakka kjósi einstak-
lingar að færa símaviðskipti
sín til fyrirtækisins. Báðar
leiðir bjóðast um allt land og
fela í sér mun lægra mínútu-
gjald fyrir intemetnotendur en
þeir þurfa almennt að greiða.
Aðgangur að þessari þjónustu
er notendum að kostnaðarlausu
en Islandssími reið á vaðið fyr-
ir hálfú öðm ári og bauð að-
ganginn gjaldfrjálst.
Oski bréfritari eða aðrir
frekari upplýsinga um fyrr-
nefúda eða aðra þjónustu Is-
landssíma er þeim bent á vef
fyrirtækisins: www.islands-
simi.is.
Einnig er hægt að hringja í
fyrirtækið í sölusíma 800
1111 eða senda okkur póst á
info@islandssimi.is.“
Dýrar númeraplötur
Neytendasamtökunum hef-
ur borist eftirfarandi bréf:
„Ég þurfti samtímis að láta
smíða númeraplötur fyrir bif-
reið á Islandi og í Lúxem-
borg. A Islandi vom númera-
plötur pantaðar í gegnum
Skráningarstofuna og kostaði
svokölluð flýtiþjónusta 4.700
krónur. I henni felst að við-
skiptavinur bíður í sólarhring
eftir plötunum. Almenn þjón-
usta kostar 3.700, og tekur af-
greiðsla þá lengri tíma en sól-
arhring. Sambærileg þjónusta
kostar 16,5 evrur (1200-1300
kr.) í Lúxemborg. í því tilviki
er beðið eftir plötunum og tek-
ur það um 5 mínútur. Ekki
var óskað eftir sérstakri flýti-
þjónustu, sem ég veit ekki
hvort er til. En fljót má hún
vera ef hún er hraðari en sú
þjónusta sem ég fékk! Sam-
kvæmt þessu er þessi þjón-
usta á íslandi um fjórfalt dýr-
ari en í Lúxemborg, auk þess
að vera mun seinlegri. Þetta
er nokkuð mikill verðmunur
og gefúr ef til vill tilefni til að
verðmyndun á þessari þjón-
ustu á Islandi verði könnuð.“
Neytendasamtökin sendu
þetta bréf til Skráningarstof-
unnar og óskuðu eftir upplýs-
ingum um hvernig verðmynd-
un er háttað hér á landi á
númeraplötum á bíla. Eftir-
farandi svar barst:
„Skráningarstofan hf. annast
skráningu ökutækja í sam-
ræmi við umferðarlög nr.
50/1987. í 64. grein laganna
er kveðið á um að dómsmála-
ráðherra setji reglur um gjald
fyrir skráningu og skráning-
armerki, sbr. g-lið greinarinn-
ar. í samræmi við það hefúr
dómsmálaráðuneytið gefið út
Gjaldskrá fyrir skráningu
ökutækja nr. 84/1997. Fram-
leiðsla skráningarmerkja fer
fram á vinnustað fangelsisins
á Litla Hrauni sem selur
merkin til endursölu hjá
Skráningarstofunni. Skrán-
ingarstofan hf. kaupir þau á
1.494 kr. hvert skráningar-
merki og endurselur á 1.875
kr. Álagning á skráningar-
merki er skv. því 25,5%.
Innifalin í álagningunni er
200 kr. þóknun á merki til
skoðunarstofanna. Afgreiðslu-
frestur framleiðanda skrán-
ingarmerkja er þrír dagar að
jafnaði. Óski viðskiptavinur
eftir hraðari afgreiðslu þarf að
greiða 1.000 kr. í flýtigjald.
Gjaldinu er ætlað að standa
undir aukakostnaði við flýti-
meðferðina, sem aðallega sam-
anstendur af sérferð framleið-
andans að sérleyfisbílum og
sérferð Skráningarstofúnnar á
Umferðarmiðstöðina, þ.e.
aukaferð til og frá flutningsað-
ila. Gjaldinu er skipt milli
Skráningarstofú og vinnu-
stofúnnar á Litla Hrauni að
jöfnu. Viðskiptavinur Skrán-
ingarstofúnnar er skv. ofan-
sögðu rukkaður um 3.750 kr.
fyrir tvö skráningarmerki, að
viðbættum 1.000 kr. við flýti-
meðferð, samtals kr. 4.750 kr.
Ef keypt er eitt skráningar-
merki með flýtimeðferð kostar
það 2.875 “
NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001
23