Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2003, Page 12

Neytendablaðið - 01.10.2003, Page 12
Baugur - Verðlagsstofnun okkar daga Frá því Baugur var stofnaður með sam- einingu Hagkaupa og Bónuss árið 1998 hefur fyrirtækið náð yfirburðastöðu á íslenskum matvörumarkaði. Þessi staða er ein helsta skýring þess að matvöru- verð hefur hækkað meira hér á landi en í samanburðarlöndum og umfram vísitölu neysluverðs. Baugur hefur að hluta til tekið við því hlutverki sem Verðlagsstofn- un gegndi á árum áður og stýrir nú að miklu leyti verði á matvörum. Smærri aðilar á markaðnum treysta sér ekki til atlögu við Baug í þeirri trú að risinn muni eiga sigurinn vísan ef til verðsamkeppni og jafnvel verðstríðs kæmi. Ekki virðist sjá fyrir endann á þessari þróun því eng- in trygging er fyrir því að markaðshlut- deild Baugs geti ekki aukist eins og hún hefur gert á undanförnum árum. Baugur (Hagkaup, Bónus og 10-11) ræður nú yfir meira en helmingi matvörumarkaðarins á landinu en á höfuðborgarsvæðinu, mik- ilvægasta markaðssvæðinu, er hlutdeild fyrirtækisins um 70 af hundraði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri skýrslu Stefáns Ragnars Guðjónssonar um verðþróun á matvöru- markaði þar sem hann leitast við að var- pa Ijósi á áhrifaþætti og bera ástand og þróun hérlendis saman við nokkur lönd í Evrópu. Skýrslan er lokaverkefni hans til B.S.-gráðu írekstrar-ogviðskiptafræð- um við Viðskiptaháskólann á Bifröst og kom út á vordögum 2003. Auk rann- sókna byggir Stefán Ragnar niðurstöður sínar og ályktanir á reynslu og þekkingu sem hann hefur aflað sér vegna starfa sinna á matvörumarkaðinum í áratug. Fákeppni og óheillaþróun í verdlagi Stefán Ragnar telur að helstu ástæður mik- illar og neikvæðrar umræðu um matvöru- markaðinn hér á landi á undanförnum árum séu markaðsráðandi staða Baugs og „óheillaþróun í verðlagi". Hann bendir á að verðlag á íslandi hafi hækkað verulega síðan 1996 þrátt fyrir sameiningu fyrir- tækja í hagræðingarskyni. Hann vekur jafnframt athygli á að samræmd vísitala mat- og drykkjarvöru var sambærileg og í samanburðarlöndum úttektar hans á ár- unum 1996-1999 en 1999 hafi vísitalan tekið kipp hér á landi. Stefán Ragnar nefnir fjórar aðalástæður fyrir hækkun vöruverðs á árunum1998- 2003, auk þeirra áhrifa sem stofnun Baugs með sameiningu Hagkaupa og Bónuss hafði : 1. Verðbólga var meiri hér á landi á því tímabili sem samanburðurinn nær til. 2. Markaðirnir sem borið er saman við eru mun stærri en sá íslenski og inn kaupamáttur erlendra keðja þvf mun meiri. 3.Samanburðarlöndin búa við mun meiri nálægð við aðra markaði. 4. Nokkur fyrirtæki á heildsölustiginu hafa mjög sterka stöðu og telur Stefán Ragnar að þar ríki fákeppni. Tímabil samkeppni og fákeppni Stefán Ragnarreifarsögu matvöruverslun- ar hér á landi allt frá dögum frumstæðs vöruskiptakerfis. Hann rifjar upp að á 7. áratug síðustu aldar jókst samkeppni á markaðnum til muna með tilkomu Hagkaupa og Nóatúns. Samkeppni á markaðnum var áfram mikil á áttunda og níunda áratugnum og fram á þann tíunda. Hins vegar segir hann tíunda ára- tuginn hafa einkennst af samruna á mark- aðnum. Sjálfstæðir kaupmenn lögðu upp laupana en við tók hringamyndun. Hagkaup og Bónus hófu að tengjast árið 1992, aðeins þremur árum eftir stofnun Bónuss. Stefán Ragnar telur að þróunin síðan hefði orðið talsvert önnur hefðu samkeppnisyfirvöld gripið inn í þessi eignatengsl þegar í upphafi. Árið 1995 hafði þó enginn einn aðili náð meira en fjórðungi markaðarins. Hagkaup réðu yfir 24 prósentum mark- aðarins, Bónus hafði 11 prósent, Nóatún 10 prósent en fjöldi annarra mun minna. Þetta átti eftir að breytast hratt á næstu árum. Árið 1998 störfuðu enn fjölmargir aðilar á markaðnum en hinn nýstofnaði Baugur hafði þá þegar yfirburðastöðu með 35 prósent markaðarins. Síðan hef- ur orðið mikil samþjöppun, bæði í smá- sölu- og heildsöluverslun. Sem dæmi um samþjöppun í heildsöluverslun ogafleið- ingar hennar nefnir Stefán Ragnar sam- einingu Myllunnar og Samsölubrauða árið 1998. Við það varð til ráðandi aðili 12 NEYTENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.