Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 20

Neytendablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 20
Erfðabreytt matvæli Áhrifá heilsufar neytenda Erfðabreytt matvæli eru afurðir sérstakr- ar tækni sem breytir erfðamengi lífveru með því að setja í hana erfðavísa (gen) úr öðrum ólíkum tegundum, t.d. úr bakter- íu, vírus, skordýri, öðrum dýrategundum eða jafnvel mönnum. Tilgangurinn með þessari endurhönnun lífverunnar er að fá fram í henni einhverja eftirsóknarverða eiginleika. Ef við höfum til að mynda áhuga á að gera kartöflur eða jarðarber frostþolin getum við hugsað okkur að setja í þau erfðavísa úr heimskautafiski (t.d. flyðru) sem hafa þann eiginleika að draga úr áhrifum kælingar. Þar sem erfðatækni er þess megnug að framleiða lífveru meðerfðavísum úrólíkumtegund- um er sú lífvera sem til verður ólík öllu því sem náttúran mundi skapa. Náttúru- leg æxlun gengur ekki þvert á tegundir, heldur tryggir hún að genablöndun eigi sér stað innan öryggismarka þróunar sem varðveitir tegundir og hindrar arf- gengi veikleika og vansköpunar. Hve vísindaleg er erfÖatæknin? Vísindin á bak við erfðatæknina byggjast á þekkingu sem gerir það mögulegt að skilgreina, einangra og flytja til erfða- vísa. Þau skortir hinsvegar skilning á því hvernig tengslum erfðavísa er háttað og hvernig hópar erfðavísa hafa þróast og myndað náið og fínstillt kerfi verkaskipt- ingar. Þá er heldur ekki þekkt hvernig hópar erfðavísa hegða sér í mismunandi umhverfi, en eins og Nóbelsverðlauna- hafinn Barbara McClintock hefur bent á er hegðun erfðavísa „algerlega háð því umhverfi sem þeir starfa í". Kenningin um flutning á erfðavísum gefur sér þá ein- földu forsendu að erfðavísir muni gegna sama hlutverki í sínu nýja umhverfi og hann gerði í upprunalegu lífverunni, og að hlutverkið varðveitist við fjölgun frumna og milli kynslóða. Þessi forsenda er vísindalega ósönnuð og því er alvarleg- um spurningum um áhættu af flutningi erfðavísa ósvarað. Tilraunir líftæknifyrirtækja með erfða- breytt matvæli eru gerðar á grundvelli svonefnds „verulegs jafngildis" sem gerir ráð fyrir að erfðabreytt og ekki erfðabreytt matvæli séu að miklu leyti sambærileg eða „jafngild". Með því að setja því sem næst jafnaðarmerki þarna á milli hefur líftæknifyrirtækjunum liðist að sleppa öllum rannsóknum á áhrifum erfðabreyttra afurða á heilsufar neytenda, lífríkið og umhverfið. Hinar svokölluðu jafngildisprófanir útheimta einungis almennan samanburð á erfða- breyttum jurtum og sambærilegum ekki erfðabreyttum jurtum. Þannig er til dæmis borið saman magn vítamína og amínósýra í tómötum, en ekki er farið í saumana á smærri (en hugsanlega mikilvægum) efnafræðilegum mismun. Aðferðin hefði t.d. ekki einu sinni dugað til að greina kúariðu í kjöti! Neytendur, tilraunadýr líftæknifyrir- tækja? Erfðabreytt matvæli voru sett á markað áður en þau höfðu farið í gegnum nál- arauga óháðra prófana og rýni vísinda- manna; einungis vafasöm jafngildisaðferð líftæknifyrirtækjanna lá til grundvallar. Eftir að það var gert hafa rannsóknir sýnt að erfðabreytt matvæli fela í sér raun- verulega áhættu til skemmri o,g lengri tíma. Af þeim sökum má halda því fram að erfðabreytt matvæli séu í flokki með nýjum lyfjum. Áður en notkun lyfja til lækninga á fólki er heimiluð er krafist um- fangsmikilla efnarannsókna, þá prófana á dýrum og síðan prófana á mönnum. Líftæknifyrirtækin nota í raun umhverfið og almenning sem tilraunadýr. Mistök á tilraunastofunni er unnt að leiðrétta, en eftir að erfðabreyttum plöntum hefur verið sleppt út í umhverfið er ekki hægt að taka þær aftur eða hafa taumhald á þeim; tjón sem þær valda á lífríki eða mönnum gæti orðið varanlegt. Möguleg heilsufarsáhætta En hvaða áhrif kann neysla erfðabreyttra matvæla að hafa á heilsufar fólks? Vís- indamenn óttast mest tvennt í þessu sambandi, annars vegar ofnæmisvið- brögð og hinsvegar ónæmi fyrir sýkla- lyfjum. Flestir aðfluttir erfðavísar koma úr lífverum sem hafa aldrei verið hluti af fæðu mannsins og'því er útilokað að vita hvort hin erfðabreytta afurð valdi of- næmisviðbrögðum. Ofnæmi getur verið lítið eða mikið og það getur komið fram smám saman á alllöngum tíma. í hverri jurt er að finna fjölda eiturefna sem eru misvirk. Dr. Margaret Mellon, sem sérhæfir sig í sameindalíffræði og hefur yfirumsjón með landbúnaðar- og líf- tækniáætlun UCS (Union of Concerned Scientists) í Washington, telur verulega áhættu fólgna í erfðabreytingum þar sem þær kunni að virkja erfðavísa sem framkalla eiturefni, sem aftur kunna að valda ofnæmi. Ónæmi fyrir sýklalyfjum er talið geta komið til af því að aðfluttir erfðavísar eru auðkenndir með viðhengi, n.k. merkigeni sem hefur mótstöðu gegn sýklalyfjum. Ýmsir vísindamenn óttast að þessi merkigen kunni að örva þarmabakt- eríur til myndunar ofursýkla sem ekki verði unnt að vinna á með hefðbundn- um sýklalyfjum. Skýringar á töflu um prentara bls.16. I) Á þessu verði hjá Nýherja, kostar 9.995 krónur hjá Elko. 2) Á þessu verði hjá Tæknibæ, kostar 17.800 krónur hjá Elko og 17.900 krónur hjá Nýherja, Odda og Tölvulistanum. 3) Á þessu verði hjá Elko, kostar 29.900 krónur hjá Nýherja. 4) Á þessu verði hjá Þór, kostar 11.500 krónur hjá EJS, 11.900 krónur hjá Hans Petersen og 12.900 krónur hjá Expert. 5) Á þessu verði hjá EJS, ko- star 19.900 krónur hjá Elko, 19.999 krónur hjá BT og 21.900 krónur hjá Hans Petersen. B) Á þessu verði hjá Elko, kostar 24.999 krónur hjá BT. 7) Á þessu verði hjá BT, kostar 34.700 krónur hjá Þór og 39.900 krónur hjá Hans Petersen. 8) Á þessu verði hjá Samhæfni, kostar 33.853 hjá Tæknibæ, 34.900 hjá Tölvulistanum. 9) Á þessu verði hjá Pennanum, kostar 21.900 krónur hjá Hugver og 22.900 krónur hjá Elko. 10) Á þessu verði hjá Bræðrunum Ormson og Tölvulistanum, kostar 16.900 krónur hjá Odda. II) Á þessu verði hjá EJS, kostar 18.900 krónur hjá Odda og 19.800 krónur hjá Elko. 12) Á þessu veröi hjá Griffli, kostar 8.990 krónur hjá Odda, Tæknibæ og Tölvulistanum, 9.250 hjá Br. Ormson og 10.203 krónur hjá EJS. 20 NEÝTENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.