Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 4

Neytendablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 4
Megrun án árangurs Brennslan eykst, aukakílóin fjúka af og fitan rennur af líkamanum. Þaft vantar ekki staðhæfingarnar þegar megrunar- fæfti er annars vegar. Hins vegar styftur oftast lítift sem ekkert þessar fullyrðing- ar. Þetta er niðurstaða athugunar sem dönsku neytendasamtökin létu gera. Keyptar voru 42 vörutegundir sem allar áttu það sameiginlegt að vera auglýstar sem „grennandi" annað hvort af fram- leiðanda eða seljanda. Vörurnar voru keyptar í heilsubúðum, á netinu og úr pöntunarlistum. Vörutegundir sem voru með í könnuninni voru til dæmis eplaedik, vítamínpillur, te og jurtir. Sér- fræðingar fóru síðan vandlega í gegnum rannsóknargögnin sem lágu til grund- vallar megrunarfæðinu og athuguðu hvort að vísindalegar niðurstöður lægju að baki fullyrðingum eins og: „Fitusog f pilluformi", „aukin brennsla" og „kílóin hrynja af án þess að breyta þurfi matar- venjum". Niðurstaða sérfræðinganna var afdráttarlaus. Neytendur eru gabbaðir og það eina sem hverfur er peningarnir. í framhaldi af þessu voru framleiðendur og seljendur 38 vörutegunda kærðir til matvælaeftirlits þar sem þeim var gefið að sök að gefa neytendum villandi upp- lýsingar. Matvælaeftirlitið tók undir afstöðu neytendaráðsins og í kjölfarið voru margar varanna fjarlægðar úr hill- um verslana. Nokkrum mánuðum sfðar staðfestu dönsku neytendasamtökin að mikið af svokölluðu megrunarfæði hefði ratað aftur í verslanir. Það er nær ómögulegt að fylgjast í sífellu með markaðnum en aðgerðir af þessu tagi eru þörf áminning til seljenda og framleiðanda. Það eru til lög sem taka á villandi upplýsingum til neytenda og ef seljendur vilja láta taka sig alvarlega ættu þeir að halda sig innan ramma laganna. Grennist á þremur dögum og þyngist ekki aftur! Markaðurinn fyrir megrunarvörur er stór og fer stækkandi. Margir sem reynt hafa að megra sig án árangurs eru tilbúnir að prófa allt og eyða töluverðum upphæð- um til þess eins að grennast. Þetta vita slyngir sölumenn og láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að sannfæra neytendur um töframátt tiltekinnar vöru. Miðað við þann árangur sem framleið- endur og seljendur lofa getur maður furðað sig á öllu úrvalinu af megrunarvör- um sem er á borðstólnum. Ftvers vegna eru alltaf að koma nýjar og nýjar vörur á markað ef þær sem fyrir eru virka svona óskaplega vel? Framleiðendur og seljend- ur lofa upp í ermina á sér og henda fram alls konar staðhæfingum með það að markmiði að krækja í viðskiptavini og þannig mun það alltaf verða. Neytend- ur verða því að vera gagnrýnir í hugsun og taka auglýsingum og boðskap þeirra með fyrirvara. FLöSKUM EKKI Á PESSU... HöLOUM LANÖiNU HREiNU. HIROUM ALLT ÖLER. VÍN v*BÚÐ www.vinbud.is

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.