Neytendablaðið - 01.03.2004, Page 7
skjánum. Fólk sem á marga vini sem það
talar oft við eða er mjög virkt í félagslífi
ætti að velja síma með miklu minni. Sum-
ir þráðlausir símar geta aðeins geymt 10
númer í minni, aðrir 200.
í sumum símum er hægt að tengja
ákveðna hringitóna við símanúmer í
símaskránni. Þá er hægt að vita hver
er að hringja með því einu að hlýða á
tónana.
Fjölhæfni
Nú eru fáir eða engir símar á markaði
sem aðeins er hægt að nota til að hringja
með eða svara í. Kröfurnar hafa vaxið.
Og margt f búnaði þráðlausu símanna
getur vissulega létt líf notendanna.
Á móðurstöð flestra þráðlausu símanna
er píp-takki (paging button). Sé þrýst á
hann heyrist sérstök hringing í símtólinu,
öðru vísi en sú sem boðar venjulegt sím-
tal. Þetta er gagnlegt til þess að finna sím-
ann með því að ganga á hljóðið ef hann
er hvergi sjáanlegur. Þetta niá líka nota
til að láta fólk úti í garði eða niðri í kjall-
ara vita að matur sé framreiddur og fleira
af því tagi. Sum símtækjanna bjóða upp
samtal milli móðurstöðvar og símtóls.
Sumir þráðlausir símar geta flutt SMS-
textaskilaboð eins og GSM-símar. Það
fer þó eftir tæknibúnaði símstöðva hvort
það gengur eða ekki.
Margir símanna eru með klukku og suma
er hægt að nota sem vekjara.
Yfirleitt er hægt að stilla styrk hringingar-
innar og hafa hann mun meiri en í venju-
legum síma.
í prófunum ICRT reyndustflestar rafhlöð-
ur endast í um 72 klst., (þrjá sólarhringa)
miðað við að talað væri í símtólið f um
hálfa klst. á dag, en sumar dugðu aðeins
í um 24 klst.
í styrkleikaprófum reyndust símarnir yfir-
leitt þola högg og veltur ágætlega, einnig
rafstuð þar sem líkt var eftir eldingum í
símkerfi. Margir þoldu líka raka og gufu
upp í 70%.
Mörg símtól
Flest þráðlaus símtæki með stafrænum
búnaði bjóða upp á þann kost að notuð
séu fleiri en eitt símtól við hvern síma,
sem þá má kannski fremur kalla símstöð.
Hleðslurafhlaða er í hverju símtóli svo
hægt er að láta þau vera hér og þar um
húsið, sérstaklega ef hleðslutæki fylgir
hverju tóli. Þessi búnaður getur reynst
mjög vel og hlíft fólki við hlaupum fram
og aftur eða upp og niður stiga til að
svara í sfma.
Einn kosturinn við að eiga mörg símtól er
sá að oft er hægt að hringja á milli þeirra
og nota þau eins og talstöðvar eða labb-
rabb tæki, þótt þeir dragi heldur skemur.
Það fer eftir símgerðum hvort samtalið
fer beint á milli símtólanna eða þarf að
fara gegnum móðurstöðina.
Helstu gallar
Yfirleitt eru þráðlausir símar einfaldir
og auðveldir í notkun. Gallarnir eru að-
allega litlir eða óskýrir skjáir, litlir eða
illa merktir takkar eða vandamál við að
vista númer f minni símans (búa sér til
símaskrá). Það er Ifka mjög pirrandi galli
við suma þráðlausu símana að símaskrá
og annað dettur úr minni þeirra ef þeir
verða rafmagnslausir.
Aðalgalli sumra stafrænna síma er oft
sá að þeir geta truflað heyrnartæki sem
heyrnarskert fólk notar. Ef væntanlegur
notandi þráðlauss síma notar heyrnar-
tæki er rétt er að láta á þetta reyna í versl-
uninni áður en kaup eru gerð.
Vert er að geta þess að yfirleitt er ekki
jafn góður hljómur í bestu þráðlausu
sfmunum og „venjulegum" fastlínusím-
um. í gæðakönnun ICRT lýstu notendur
þessu þannig m.a. að þráðlausi hljómur-
inn væri með „nefhljóði", „loðinn" eða
jafnvel „grófur".
Einn besti síminn: Siemens Cigaset SiOO fékk
háa heildargæðaeinkunn, 4,4 (af 5,5) og var
ódýrastur á 16.900 kr. hjá Elko og Smith &
Norland.
© International Consumer Research and Test-
ing - Neytendablaðið 2004.
Vinsamlega getið heimiidar ef vitnað er í fjöl-
miðlum eða á öðrum vettvangi í efni á vefNS.
Óheimilt er að birta heilar greinar eða töflur
án leyfis NS. Upplýsingar á vef NS er óheimilt
að nota í auglýsingum og við sölu nema skrif-
legt leyfi ritstjóra liggi fyrir.
Hönnun og stærð talfæris Gæði skjás Hæsta hringing Hringt Svarað Númer sett í minni Þægindi í notkun Styrkleiki og ending tækis Oryggis- og umhverfis- mái, heild
3.6 2.6 3.7 3.2 3.4 2.4 2.3 4.0 4.1
3.7 3.4 2.1 3.8 3.4 3.3 3.0 4.0 3.6
3.0 3.0 1.3 3.4 3.4 2.0 2.7 3.7 3.3
4.2 3.2 1.6 4.2 3.9 3.9 3.1 4.0 4.1
4.7 3.6 2.7 3.9 3.6 3.8 3.6 4.0 3.8
4.7 4.3 5.4 4.3 4.1 4.3 3.8 4.0 4.1
3.4 4.1 3.6 4.0 4.1 4.0 3.6 4.0 4.1
4.2 3.2 3.7 3.6 3.8 2.8 2.9 4.0 4.2
3.7 5.1 4.6 4.7 4.7 5.1 4.8 4.0 4.2
3.8 4.7 4.3 4.6 4.6 4.6 4.6 4.0 4.1
NEYTENDABLAÐIÐ 1. TBL. 2004 7