Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Síða 5

Neytendablaðið - 01.09.2005, Síða 5
börn skila sér seint í fyrstu heimsókn til tannlæknis og aðeins um 47% þriggja ára barna nutu greiðsluþátttöku TR. Þá kom líka í Ijós að tannlæknaþjónusta er almennt betur sótt af íbúum landsbyggðarinnar heldur en af höfuðborgarbúum, þó svo að flestir tannlæknar starfi á því svæði. Um 36% barna á aldrinum 0-18 ára skiluðu sér ekki til tannlæknis og ein af ástæðunum er án efa fjárhagsleg. Bætt tannheilsa meginmarkmið Eitt af markmiðum heilbrigðisáætlunarinnar til 2010 er að tíðni tannskemmda hjá 12 ára börnum verði minni en tannátustuðullinn 1,0. Ekki eru til greinagóðar rannsóknir á tannheilsu barna en talið er að stuð- ullinn hafi verið 1,5 árið 2002. Það er því Ijóst að úrbóta er þörf ef markmið heil- brigðisáætlunar eiga að ná fram að ganga. Þátttaka ríkisins í tannlæknakostnaði barna skiptir þar miklu máli og mikilvægt að gjaldskrá ráðherra og tannlækna sé samræmd. Það hversu fá börn skila sér til tannlækna hlýtur að vera áhyggjuefni og Ijóst að of mörg börn líða fyrir sinnuleysi eða fjárskort foreldranna. Hvað geta neytendur gert Undir gjaldaliðunum „skoðun nýs sjúklings" og „áfangaeftirlit” í gjaldskrá ráðherra kemur fram að tannlæknir skuli áætla kostnað áður en hafist er handa. Verðlagning tannlækna er frjáls og að sama skapi er neytendum frjálst að fara í skoðun og fá áætlun um kostnað. Fyrst er þó hægt að bera saman gjaldskrá tannlækna og í könnun þeirri sem nefnd var hér að framan kom í Ijós að verðmunur milli einstakra tannlækna reyndist vera frá 100- 650% á einstökum gjaldaliðum. Hlutverk foreldra Góð tannhirða er mikilvægasta forvörnin í tannheilsu barna. Þá eru neysluvenjur stór þáttur í tannvernd, þar sem sykur og sýra eru mestu óvinir tannanna. Eins og fram kemur í bréfinu hér að framan eru foreldrar stundum óöruggir um hverju á að treysta þegar tannheilsa barna þeirra er annars vegar. Vissulega hefur tannlæknirinn hag af þvi að veita þjónustuna sem oftast og þess vegna er nauðsynlegt að samræmi sé í leiðbeiningum þeirra. Foreldrar eiga ekki að hika við að spyrja spurninga og leita álits annarra ef þeim finnst börnin sín fá flóknari og kostnaðarsamari meðferð en þeir telja eðlilegt. Flúormeðferð Flúor hefur verið notað til tannverndar í marga áratugi og gagnsemi þess er óumdeilanleg, bæði til að jafna flúorstyrk í munnholi og einnig til varnar tannátu. Oft eru notaðir flúoraukar í munnskoli, töflum eða tyggigúmí og er notkun þeirra nauðsynleg, sérstaklega fyrir þá sem eiga tannátu á hættu. En flúor getur lika verið skaðlegt i of miklu magni. Á þriðja til níunda ári barna er glerjungurinn að myndast á fullorðinstönnunum og ef flúor er notað í of miklum mæli er hætta á að flúorflekkir myndist á glerjunginn. Þess vegna er mikil- vægt að foreldrar skammti börnum sínum tannkremið og sjái alfarið um tannhirðuna fyrstu árin. ÞH Að sögn tannlæknis sem Neytendablaðið hafði samband við eroftast nóg að skoða, flúorbera og taka myndir einu sinni á ári. Ef börn koma hins vegar inn mjög ung, eða þegar eldri börn koma í fyrsta skipti er ráðlegt að kalla þau inn á 6 mánaða fresti í 3-4 skipti til að meta hirðu og skemmdatíðni. Ef hirðu er ítrekað ábótavant þrátt fyrir leiðbeiningar og þau koma með skemmdir í hvert skipti þá eru þau áfram kölluð inn á 6 mánaða fresti og tennur flúorpenslaðar. Þetta eru börn í svokölluðum áhættuhópi og hægt er að sækja um aukna endurgreiðslu fyrir þau til Tryggingastofnunar. Þegar komið er fram á unglingsárin getur verið ástæða til að skoða oftar. Unglingar á Islandi drekka óhemju magn af gosdrykkjum og innbyrða sælgæti í kílóavís. Tennur geta þá skemmst mjög hratt. Varðandi myndatökur þá er stundum verið að fylgjast með byrjun á skemmd og því gott að taka mynd af því svæði á 6 mánaða fresti og sjá hvort einhverjar breytingar verða og grípa þá inn í. Tannlækningar erlendis Neytendur hafa líka val um það að leita til annarra landa ítannlæknameðferðirog geta jafnvel sparað sér stórar upphæðir. Á dönsku heimasíðunni avmintand. dk er að finna góðar upplýsingar um tannlækna víðs vegar um Evrópu. Þá er stundum hægt að sameina frí og fá ódýra tannklössun í leiðinni, þ.e.a.s. fyrir fullorðna einstaklinga. Neytendur er yfirleitt tregir til að sækja svona þjónustu yfir hafið og er það eins og með önnur viðskipti í útlöndum að þau falla undir lög sem gilda í landi seljandans. Að sjálfsögðu ættu neytendur alltaf að kynna sér hvort viðkomandi tannlæknir hafi fullnægjandi réttindi og er þá ekkert því til fyrirstöðu að leita til annarra landa með slíkt. Heimildir: Kliniskar leiðbeiningar I vinnslu, sjá: landlaeknir.is Kannanir, sjá: samkeppni.is Almennt um TR og tannlœkningar, sjá:tr.is, tannheilsa.is, tandogmund.dk HelgaÁgústsdóttir, Heimtur barna til tannlœknis sjá: tannheilsa. is 5 NEYTENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2005

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.