Neytendablaðið - 01.09.2005, Page 6
Gæðakönnun ICRT
á stafrænum myndavelum
Gæðakönnun
Neytendablaðið birtir hér gæöakönnun
á 34 gerðum af stafrænum myndavélum
sem bæði voru í gæðakönnun International
Consumer Research and Testing (ICRT) og
voru á markaði hér í ágúst. Qæðakönnun
ICRT náöi til 69 stafrænna myndavéla af
öllum stærðum og gerðum. Myndavélunum
var skipt niður í nokkra hópa og mælingar
og prófanir framkvæmdar á tímabilinu
september 2004 fram í apríl í ár. Alls voru 90
gerðir stafrænna myndavéla í gagnabanka
ICRT í byrjun september.
Hver myndavél var mæld og prófuð ýtarlega
á yfir 130 atriðum. Þessi atriði voru síðan
flokkuð í 7 aðalflokka sem reiknaðir saman
gefa heildareinkunn, en vægi þeirra í heildar-
einkunn er sem hér segir:
Myndgæði (sjálfvirkt) 30, myndgæði (hand-
virkt) 30, gæði kvikmynda 3, myndkíkir/
skjár 12, leifturljós 8, líftími rafhlaðna 10,
fjölhæfni 12, þægindi í notkun 25.
Markaðskönnun
Neytendasamtökin gerðu markaðskönnun
á stafrænum myndavélum á höfuðborgar-
svæðinu í ágúst og reyndust vera 115 gerðir
af stafrænum myndavélum á markaðnum
til sölu hjá 15 söluaðilum. Neytendur hafa
því úr talsverðu að velja. Af þessum 115
myndavélum voru 34 einnig í gæðakönnun
ICRT eins og áöur sagði og birtast niður-
stöður þeirra hér í blaðinu.
Markaðskönnunin í heild sinni birtist á
vefnum www.ns.is. Lykilorð er að finna á
bls. 2.
Reglulegar gæðaprófanir
Vert er að benda á aö á vegum ICRT
eru gerðar reglulegar gæðaprófanir á
stafrænum myndavélum og sjónvörpum.
Niðurstöður úr þeim prófunum verða birtar
á vef Neytendasamtakanna þegar þær
eru tilbúnar og má búast við því að slíkar
niðurstöður komi á vefinn á 2 til 3 mánaða
fresti.
Þegar taflan er skoðuð
í töflunni er myndavélunum raðað eftir
heildareinkunn eftir þættinum „sjálfvirkt".
Þar sem margar stafrænar myndavélar gefa
einnig möguleika á einhverjum handvirkum
stillingum voru þær prófaðar sérstaklega og
þeim gefin einkunn. Það er því mikilvægt að
skoða töfluna með það í huga að einkunn
fyrir myndgæði hefur verið skipt í tvennt
eftir þessum þáttum, handvirkt og sjálfvirkt.
Þetta hefursíðan áhrif á heildareinkunn fyrir
hverja myndavél þar sem henni hefur einnig
verið skipt niður í handvirkt og sjálfvirkt.
Aðeins 7 myndavélar fengu sömu einkunn
fyrir myndgæði hvort sem vélinni var stýrt
handvirkt eða hún látin vinna sjálfvirkt.
Allar vélarnar gátu tekið myndbandsbrot
utan tvær.
Það er eftirtektarvert að flestar mynda-
vélanna sem fást hérlendis og voru i gæða-
prófunum ICRT fá heildareinkunn yfir
miðjum skalanum þarsem hæsta einkunn er
4,3 (sjálfvirk) en sú lægsta 2,9 (sjálfvirk).
Allar gerðir stafrænna myndavéla voru
prófaðar svo verðið eitt og sér gefur ekki
raunsannansamanburðámilli myndavélanna
því taka verður tillit til stæröar og gerðar
myndavélanna og eiginleika þeirra innan
þess flokks sem þær falla í.
Stafrænar SLR-myndavélar (e. Single Reflex
Cameras)
Ef þú ert fagljósmyndari eða mikill áhuga-
maður um Ijósmyndun er líklegt að þú
kjósir stafræna SLR-myndavél með meiri
myndgæðum - enda eru þættir eins og
linsa, gler, mælar, stjórnun flassins, lýsing,
innri vinnsla og aðrir slíkir þættir vélanna
vel gerðir.
Hún verður að vera hraðvirk
Sumir notendur skyndimyndavéla kvarta
yfir viðbragðstima þeirra og þá sérstaklega
hvað þær eru lengi að taka mynd, sjálfvirka
fókusnum og töfá Ijósopsloku. Vegna þessað
örgjörvinn í skyndimyndavélum er að reyna
að gera allt í einu, frá því að reikna út fókus
að Ijósopshraða til þess að minnka hættu á
rauðum augum, getur ferlið sem felst í því
að fá myndefnið í gegnum myndavélina
og á geymslumiðilinn, verið nokkuð langt.
Framleiðendur skyndimyndavéla (point and
shoot) hafa gert margt til að hraða ferlinu
en atvinnumenn og miklir áhugamenn um
Ijósmyndir krefjast augnablikshraða, þeir
vilja að vélin taki mynd NÚNA.
Þegar öllu er á botninn hvolft er ráðlegt að
meta alla kosti varðandi hraða sem völ er á
áður en myndavél er keypt og kaupa ekki vél
nema hún nái að minnsta kosti 2-3 römmum
á sekúndu í hárri upplausn.
Vertu viss um aö eldri áhöld virki með
nýju vélinni
Ef þú átt nú þegar 35mm linsur og aukahluti
sem þú ert ánægður með skaltu kanna
stafrænar SLR-myndavélar frá sama fram-
leiðanda. Þó að framleiðendur framleiði
linsur sem virka eingöngu með stafrænum
SLR-myndavélum þá er hægt að nota 35mm
linsur á margar stafrænar SLR-vélar. Best er
að hugsa um stafræna myndavél sem kerfi
frekar en staka myndavél. Það getur orðið
dýrt spaug að þurfa að endurnýja allan
búnaðinn þegar ný myndavél er keypt.
Vertu viss um að rafhlaðan sé vel
samhæfð myndavélinni
Fagljósmyndarar og miklir áhugamenn
þurfa talsvert háþróaðri líftíma rafhlaöna,
virkni og vinnslugetu en þeir sem nota
skyndimyndavélarnar. Nánast allar staf-
rænar SLR-myndavélar eru með endur-
hlaðanlegum rafhlöðum, en þú ættir að
leita að rafhlöðukerfum sem eru hönnuð í
líkingu við vinnulag þitt. Hér mætti nefna
að sennilega vilt þú sjá hvernig gengur á
rafhlöðuna og áætlun um hversu margar
myndir þú getur tekið í viðbót.
Hafðu einnig auga með aukaeiginleikum
sem tengjast orku eins og hraðhleðslu. Aðrir
eiginleikar sem vert er að kíkja eftir eru
möguleikinn að ákvarða hvenær rafhlaðan
sé á lokahleðslunni eða hversu margar
myndir hægt er að fá úr meðalhleðslu. Að
lokum er mikilvægt að kanna kostnað við
vararafhlöðu. Sennilega þarftu að endurnýja
eða skipta rafhlöðunni út á tveggja til
þriggja ára fresti og óvæntar uppákomur
þaryrðu sennilega ekki vinsælar.
Stafrænar smávélar (compact camera)
Spáðu í myndavél sem þú getur tekið hvert
sem er. Framleiðendum stafrænna smávéla
er umhugað um megapunkta, sjónrænt
brun, seinkunn á Ijósopi og allt annað sem
framleiðendum stafrænna SLR-myndavéla
er umhugað um. Þeirra aðalmarkmið er
6 NEYTENDABLABI0 3. TBL. 2005