Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Qupperneq 12

Neytendablaðið - 01.09.2005, Qupperneq 12
Þegar Porsche 911 var fyrst kynntur til sögunnar í Frankfurt 1963 var módeliö kallaö 901. Allt var klappaö og klárt þegar í Ijós kom aö bílaframleiðandinn Peugeot átti einkarétt á öllum þriggja stafa tölum meö 0 í miðjunni. Porshe 901 var því í skyndi breytt í Porche 911. Þegar fólk kaupir sér bíl skiptir máli hvernig hljóð heyrist þegar bílhuröinni er lokaö. Chrysler lét hanna alveg sérstakt huröarhljóð og hefur einkaleyfi á þessu tiltekna hljóöi. Bragö Bragö er ekki sterkasta skynfærið en er þó vannýtt. Lindstrom segir að 16°/o fyrirtækja á Fortune-listanum gætu nýtt sér bragð við markaðssetningu. Að undanskildum drykkjar- og matvælafyrirtækjum erColgate dæmi um fyrirtæki sem hefur fengiö einkaleyfi á bragði. Fyrirtækiö hafi hins vegar ekki notaö hiö einstaka bragð í aörar vörur svo sem tannbursta, tannstöngla og tannþráö og náö svokölluðu bragö- og lyktarsamræmi. Því eigi fyrirtækiö enn ónýtta möguleika á aö styrkja ímynd sína enn frekar. Eignarhald á litum í Bandaríkjunum tengja flestir hárauöan lit við vörumerkið Coca-Cola. í Bretlandi tengja flestir rauöa litinn við Vodafone. Appelsínugulur litur er einkenni fjarskipta- fyrirtækisins Orange en Easy Jet notast líka við appelsínugulan lit. Þessi tvö fyrirtæki berjast nú um yfirráðaréttinum yfir appelsínugulum lit fyrir dómstólum. McDonald notar „Mc" alstaöar þar sem það er hægt; McNuggets, McMuffins o.s.frv. Þegar Daninn Allan Bjerrum Pedersen opnaði lítinn pylsuvagn og kallaöi hann McAllan, fór skyndibitarisinn í mál og taldi sig eiga einkarétt á forheitinu „Mc". Málinu var vísaö frá. Viagra er gott dæmi um þaö hvernig litur og lögun eru notuö á áhrifaríkan hátt. Litla bláa pillan er þekkt um allan heim og mun halda sinni stööu jafnvel eftir aö einkaleyfi Pfizer rennur út. Neytendur eru vanafastir Nokia er eitt þekktasta vörumerki heims. Fyrirtækinu tókst aö hanna notendaviömót sem er einfalt og fólki líkar viö. Lindstrom segir aö þaö sé hvorki tilviljun né heppni. Flestir kannast við hversu erfitt getur verið aö finna út úr uppsetningu og notkun nýrra rafmagnstækja, jafnvel þótt veriö sé aö kaupa sama vörumerki og síðast. Fólk er í eðli sínu vanafast og latt þegar kemur aö því aö læra á ný tæki og Nokia hafi með einföldu viömóti tryggt það aö Nokia- eigendur haldi sig viö Nokia-síma jafnvel þótt þeir telji aðra síma fallegri, léttari og tæknilegri. Vörumerki - ný trúarbrögö Svo virðist sem sum vörumerki hafa náð allt aö því trúarlegri stööu og dæmi eru um aö fólk láti tattóvera vörumerki á líkama sinn, t.d. Apple-epliö og Gucci-merkið. Lindstrom spyr hversu mörg fyrirtæki búi viö slíka hollustu aö líkja megi viö trúarbrögö. Dæmi um slíkt er þegar Coca-Cola ákvaö aö kynna til sögunnar nýtt og betra bragö árið 1985 en þá hafði uppskriftinni ekki veriö breytt í 99 ár. Viðskiptavinirnir tóku þessum fréttum vægast sagt illa og margir hömstruðu kók til aö eiga birgöir á lager. Fjöldamótmæli og herferðir urðu til þess að hætt var viö nýja bragðið. Hello Kitty-æði hefur geisaö í Asíu undanfarin ár. Allt sem tengist Hello- Kitty selst, hvort sem þaö er Hello-Kitty kreditkort, bankabók, sími, fatnaöur, ritföng eöa bíll. Fyrir marga er Hello-Kitty lifstíll, eöa allt aö þvi trúarbrögö. I Brand Sense könnuninni, sem bókin byggir aö hluta til á, kom í Ijós að fólk er líklegra til að halda tryggð við þau vörumerki sem hafa nýtt sér „sensory branding". Því fleiri skilningarvit sem fyrirtæki nær aö höfða til, því líklegra er það til árangurs. Neytendur ættu því aö vera á varöbergi og þekkja herbrögðin þegar markaössetningin verður komin á það stig aö undirmeðvitundin er slævö meö lykt, hljóöi, bragði og sjón. BP Bókin Brand Sense eftir danska markaðsfrœðinginn Martin Lindstrom kom út fyrr á árinu. 12NEYTENDABLASIÐ3.TBL.2005

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.