Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Qupperneq 20

Neytendablaðið - 01.09.2005, Qupperneq 20
~-Z:T’u'^képinn3**™ * »»- o9 j;r" »5 ,lkm fJinn Heilsufullyrfiingar á matvælum Heilsufullyrðingar eru hvers konar skilaboð eða framsetning í merkingu, auglýsingu eða kynningu matvæla sem gefa til kynna eða gefa í skyn að matvælin séu holl eða hafi heilsusamlega eiginleika. Heilsumoli, heilsubiti, hollustuvara, lækkar blóðþrýsting, verndar tennur Þetta eru dæmi um heilsufullyrðingar sem lesa má af umbúðamerkingum matvæla. Þar sem matvælaframleiðsla verður sífellt flóknari er mjög mikilvægt fyrir neytendur að merkingar matvæla og auglýsingar séu skýrar og skilmerkilegar. Aukinn áhugi almennings á næringu og þeim upplýsingum sem framleiðendur veita hefur leitt til þess að matvælaframleiðendur hafa stóraukið fullyrðingar af ýmsum toga á umbúöum og í auglýsingum. Þessar upplýsingar geta komið sér vel fyrir neytendur en að sama skapi geta þær verið beinlínis rangar og til þess fallnar að villa um fyrir neytendum. Reglur um heilsufullyrðingar Verið er að vinna að sameiginlegri reglugerð fyrir ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins sem taka á heilsufullyrðingum en í dag eru reglur mjög mismunandi milli landa. Ljóst er að þörf er á slíkri reglugerð. Á markaðinum úir og grúir af matvælum sem eru auglýst sem heilsusamleg, grennandi, styrkjandi, gefandi, fitusnauð, sykurskert og svo mætti lengi telja. í íslenskri reglugerð um merkingu matvæla kemur fram að óheimilt er að vísa til þess í merkingu, kynningu eða auglýsingu að ákveðin matvæli ein og sér séu holl eða hafi heilsusamlega eiginleika. Hins vegar má vísa til slíkra eiginleika þegar þess er getiö sérstaklega að matvælin séu hluti af heilsusamlegu eða hollu mataræði. Þá er óheimilt að eigna matvælum þá eiginleika að fyrirbyggja eða vinna á sjúkdómum manna, hafa lækningamátt eða vísa til þess háttar eiginleika. Enn fremur kemur fram að hægt er að sækja um leyfi til notkunar heilsufullyrðinga til Umhverfisstofnunar. Þá er eitt af skil- yrðunum aö fullyrðingin megi ekki vera blekkjandi á neinn hátt. Neytendasamtökin hafa safnað saman ýmsum matvælaauglýsingum og fullyrð- ingum sem má finna á markaðinum hér, og er af nógu að taka. Lífsstílsfæöi Það er mjög vinsælt að tengja matvæli hollum lífsstíl. í auglýsingum á KEA-skyri stendur í fyrirsögn „Njóttu lífsins með heilbrigðum lífsstiT', „Fegurð - Hreysti - Hollusta". í texta með ýtarlegri upplýsingum er talað um frábæra hollustuvöru, góðan kost fyrir alla þá sem hafa hollustuna í fyrirrúmi og vilja lifa á heilsusamlegan hátt. í auglýsingu á Aloa Vera jógúrt frá MS eru fyrirsagnirnar „Gefandi jógúrt” og „Fegurðin kemur innan frá". I texta er auk þess talað um „heilsusamlegt líferni", „... efni sem getur verið mikilvægt fyrir heilsu og útlit,... njótið endurnærandi ferskleika MS Aloa Vera jógúrtar og jógúrtdrykkjar sem veita vellíðan og stuðla að innra jafnvægi". Það verður að teljast nokkuð hæpið að tala um að tiltekin matvæli veiti vellíðan, séu gefandi eða stuðli að fegurð, hreysti og hollustu. í dag eru margar mjólkurvörur með við- bættum sykri og jafnvel í þó nokkrum mæli. Upplýsingum um sykurmagn er þó ekki haldið á lofti við markaðssetningu mjólkurvara. Megrunarfullyrðingar Það virðist verða sífellt algengara að auglýsa matvæli sem hafa einhverja grennandi eiginleika og eru slíkar auglýsingar áberandi í janúar. 20 NEYTENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2005

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.