Neytendablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 6
Myndbandsupptökuvélar eöa tökuvélar
hafa verið algeng sjón út um allan heim
í hartnær tuttugu ár. Fólk tekur þær
með sér hvert sem er, á skólaskemmt-
anir, íþróttaviðburði, í fjölskylduboð og
jafnvel á fæðingarstofuna. Á vinsælum
ferðamannastöðum eru menn umkringdir
slíkum tækjum. Myndbandsupptökuvélarnar
eru ótrúlega handhæg og notadrjúg tæki, og
það hlýtur aö teljast gott fyrir almenning,
að gæða tökuvélar séu jafn almenn neyt-
endavara og raun ber vitni.
Gæðakönnun ICRT á tökuvélum er fram-
haldskönnun frá því sumarið 2004. Alls voru
44 tökuvélar prófaðar. Virkni tækjanna var
könnuð á margvíslegum sviðum og þeim
skipt niður í aðal- og undirflokka sem hver
um sig hefur ákveðið vægi. Aðalflokkarnir
og vægi þeirra eru:
Myndgæði 35o/o
Gæði Ijósmynda 50/0
Sjálfvirkt brun 50/0
Hljóðgæði 20o/o
Meðhöndlun 20o/o
Virkur vinnslutími 50/0
Fjölhæfni 10o/o
Hér á landi var framkvæmd markaðskönnun
á tökuvélum í 8 verslunum í október/
nóvember síðastliðnum. í allt höföu þessar
verslanir 6 mismunandi vörumerki töku-
véla til sölu og 41 mismunandi tegund en
16 þeirra voru einnig í gæðakönnun ICRT
og eru niðurstöður prófana á þeim vélum
sýndar í töflunni hér á eftir.
• Hæsta einkunn þeirra 16 véla sem seldar
eru hér var 4,0 sem telst gott en þá
einkunn fengu tvær vélar, Panasonic NV-
GS 150 EG-S og Panasonic NV-GS 250
EG-S.
• Lægstu einkunn fékk Samsung VP-D 453
eða 2,6 stig, en hún telst engu að síður í
meðallagi góð.
• Lægsta verð á þeim tökuvélum sem
seldar eru hérlendis og voru einnig í
gæðakönnun ICRT var 34.900 kr. en sú vél
fékk einkunnina 2,7.
• Dýrasta vélin kostaði 139.950 kr. og fékk
einkunina 3,0. Sú niðurstaða gefur til
kynna að ekki fari alltaf saman gæði og
verð þó þær tökuvélar sem hér eru seldar
og koma fram í gæðakönnun ICRT séu
allar um og yfir meðallagi.
Upptökutækni
Sony DCR-DVD403E og Sony DCR-DVD92E
geta tekið upp á endurskrifanlega DVD-
RW og DVD+RW sniðmátinu (auk DVD-R
sniðmátsins) sem er algengt sniðmát venju-
legra DVD-spilara.
Kyrrmyndataka
Allar vélarnar í þessari gæðakönnun
geta tekið og vistað kyrrmyndir á
aðalgeymslumiðilinn nema Sony DCR-
HC19E sem hefur laust minniskort til að
vista stillimyndir líkt og stafrænar mynda-
vélar.
Alhliða geta
Besta málamiðlunin og þar með bestu
meðalgæði sjálfvirka brunsins þegar tillit
hefur verið tekið til allra þátta (hraða,
gæða, skerpu, lýsingar o.s.frv) fannst hjá
Panasonic NV-GS150EG-S, Panasonic NV-
GS35EB og Panasonic NV-GS17EG-S.
Ekki rugla saman stafrænu bruni og
sjónrænu
Margar myndavélar eru auglýstar með
hlutum eins og „100X zoom" en þetta er oft
villandi þar sem aðeins hluti þessa bruns er í
linsunni. Eini hluti brunlinsu sem skiptir máli
er sjónræni hlutinn (e. optical zoom) - sá
hluti sem er gerður úr glerlinsum. Þetta er
það brun sem mun auka gæði myndarinnar.
Allar tegundir af stafrænu bruni (e. digital
zoom) má gera í tölvu. Ef þú notar hugbúnaö
til að klippa hluta af mynd út og stækka
hann síðan, þá ertu að gera það sama og
stafrænt brun gerir. í flestum tilfellum gerir
stafrænt brun myndina bara óskýra.
Truflanir í notkun
Viðkvæmasta tækið fyrir titringi frá mynd-
bandsdrifinu eða haushjólinu var Sony
DCR-PC55E þar sem hávaðinn frá haus-
hjólinu er mjög greinilegur og heyrist
alltaf, jafnvel þó tekið sé upp með miklum
umhverfishljóðum.
Ending rafhlaðna
Panasonic NV-GS250EG-S, Panasonic
NV-GS150EG-S, Panasonic NV-GS75EG-
S og Sony DCR-DVD403E náðu um 2 tíma
upptöku eða meira með þeirri rafhlöðu sem
6 NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL. 2005