Neytendablaðið - 01.12.2005, Page 10
POLITICS
Bókin Food Politics eftir Marion Nestle
hefur vakið verðskuldaða athygli. Nestle
er prófessor við New York University og
hefur auk fræðistarfa og kennslu skrifað
bækur um matvælapólitík og næringu.
Áriö 2003 kom út bókin Safe Food sem
fjallar um matvælaöryggi.
Matvælaframboðið íBandaríkjunum ersvo
mikið að nær allir geta borðaö mun meira
en þeir þurfa. I raun nægir framboðið til
að fæða alla tvisvar. Það er því til mikils
að vinna fyrir matvælaframleiðendur að
markaðssetja og selja vörur sínar og allt
tal um að minnka neyslu á tilteknum
matvælum lætur þeim illa í eyrum.
Árið 2002 kom út áhugaverð bók eftir
Marion Nestle sem heitir Food Politics.
Bókin vakti mikla athygli en í henni fjallar
Nestle um þau gríðarlegu áhrif sem
matvælaframleiðendur í Bandaríkjunum
hafa á heilsu og næringu almennings. Nestle
þekkir málefnið af eigin raun. Árið 1986
vann hún að útgáfu viðamikillar skýrslu
landlæknis um áhrif mataræðis á ýmsa
langvinna sjúkdóma. (The Surgeon General's
Report on Nutrition and Health). Á fyrsta
degi í starfi fékk hún skýr skilaboð. Alveg
sama hvað niðurstöður rannsókna sýndu
máttu skilaboðin „borðaðu minna kjöt" ekki
koma fram í skýrslunni.
Áhrif matvælaiðnaðarins eru svo mikil að
sögn Nestle að ráöleggingar stjórnvalda um
næringu og mataræði hafa aldrei eingöngu
verið byggðar á umhyggju fyrir heilsu
almennings. Hagsmunir iðnaðarins eru alls
ráðandi.
Ráðleggingar breytast lítið
Nestle bendir á aö ráðleggingar um
mataræði hafa lítið breyst í gegnum tiðina.
Samt sem áður virðist almenningur illa
upplýstur og jafnvel ringlaður þegar kemur
að því að velja hollan mat. Skilaboðin
eru misvísandi og jafnvel loðin og yfir-
völd í Bandaríkjunum eyða litlu fé í að
upplýsa og fræða almenning um næringu
og hollt mataræði. Matvælaiðnaðurinn
hefur mikil ítök og sinnir öflugri hagsmuna-
gæslu á öllum stigum stjórnsýslunnar.
Hagsmunaaðilar styrkja þingmenn með
háum upphæðum, matvælaframleiðendur
(gosdrykkja- og skyndibitakeöjur) hafa
átt greiðan aðgang aö skólum landsins,
matvælaframleiðendur kosta námsefni
um næringarfræöi og hið opinbera gefur
ekki út manneldisráðleggingar án þess aö
framleiðendur skipti sér af orðalaginu.
Umdeild skýrsla
Árið 1977 kom út skýrslan „Diatery Goals for
the United States" með ráðleggingum um
rétt mataræði. I skýrslunni var lögð áhersla
á að auka hlut kolvetna í fæðu í 55-60%,
Fólki var ráðlagt að borða meira af fiski,
fuglakjöti, grófu korni, ávöxtum og græn-
meti en að sama skapi átti almenningur að
minnka neyslu á kjöti, eggjum, smjöri, sykri
og salti og skipta mjólk út fyrir léttmjólk.
Skýrslan vakti griöarlega sterk viðbrögö hjá
framleiðendum sykurs, kjöts og eggja. Naut-
gripabændur kröfðust þess að skýrslan yrði
afturkölluð og fannst ófært að almenningi
væri sagt að borða minna af kjöti. Skýrslan
var endurútgefin í lok árs 1977 og höfðu þá
sumar ráðleggingar verið mildaöar. í stað
þess að segja „minnkaðu kjötneyslu" var
sagt „veldu kjöt, fuglakjöt og fisk sem mun
leiða til minni neyslu á mettaðri fitu". Fleiri
skýrslur komu ekki frá þessari nefnd.
Má ekki segja: „Borðaðu minna"
Department of Health, Education og
Welfare gaf út skýrsluna „Healthy People"
(Heilbrigt fólk) árið 1979 en á þessum árum
voru flestir vísindamenn orðnir sammála
um áhrif mataræðis á marga sjúkdóma, t.d.
hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein.
í þessari skýrslu voru eftir sem áður
ráðleggingar um aukna neyslu fisks, magurs
kjöts, grófmetis, ávaxta og grænmetis og
áhersla lögð á minni neyslu á fitu, sykri,
salti og rauðu kjöti. Kjöt-, mjólkur- og
sykurframleiðendur brugðust eftir sem áður
ókvæða við og var þetta í síðasta skipti sem
fullyrðing á borð við „Eat less red meat"
(Borðaðu minna af rauðu kjöti) var sett fram
með þessum hætti í opinberar ráðleggingar.
Nýjar leiðbeiningar komu út 1995 og aftur
árið 2000. Áfram var þrefaö um orðalag og
aldrei talað um að borða minna af sykri eða
fitu.
„Takmarkað" ekki vinsælt orð
Nestle rekur ótal fleiri dæmi um bæklinga
og ráðleggingar frá opinberum stofnunum
þar sem varlega oröaðar ráðleggingar eins
og forðastu of mikinn sykur, borðaðu fjöl-
breytt fæði og vertu í kjörþyngd ollu samt
sem áður fjaðrafoki.
Þegar unnið var að manneldisráðleggingum
árið 2000 barðist sykuriðnaðurinn fyrir því
að áfram yrði sagt „Choose a diet moderate
in sugars" (veldu mataræði með hóflegu
sykurmagni) í stað: „Choose beverages and
foods that limit your intake in sugars" (veldu
mat og drykk sem takmarkar sykurneyslu).
Orðið „takmarkar" féll sykuriðnaöinum ekki í
geð og hann hafði sitt fram og ráðleggingum
um sykurneyslu var ekki breytt.
Tengls næringarfræöinga og
matvælaframleiðenda.
Nestle rekur enn fremur tengsl næringar-
fræðinga og annarra sérfræðinga við
matvælaiðnaöinn. Öll helstu og virtustu
tímarit um næringu og heilsu reiöa sig á
styrki frá matvælaframleiðendum auk þess
sem hagsmunaaðilar styrkja gjarnan rann-
sóknir og geta síðan túlkað niðurstöðurnar
eftir eigin höfði. Fréttir af því að súkkulaði
geti styrkt hjartað eða að léttvínsdrykkja
auki lífslíkur geta allt eins veriö úr könn-
unum sem súkkulaðiframleiðendur eða
samtök vínframleiöenda kosta. Það fylgir
hins vegar aldrei fréttinni.
Mataræöi á ábyrgð einstaklinga
Matvælaframleiðendur í Bandaríkjunum
benda gjarnan á aö mataræði sé á ábyrgð
einstaklinga og ríkisvaldið eigi ekki að
10 NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL. 2005