Neytendablaðið - 01.11.2006, Síða 14
f
\
a.
0
vAAAA
&
Þjöppuð stafræn tónlist
nýtur vinsælda
Gœðakönnun á MP3-spUurum
Hljómflutningstæki fyrir segulbands-
spólur, vínylplötur eöa geisladiska nota
hreyfanlega hluti til aö lesa kóðuö gögn
en þaö gera MP3-spilarar ekki. Þeir nota
fast minni og eru ekkert annaö en gagna-
geymslur meö innbyggðum hugbúnaði
sem gera notandanum kleift að færa
MP3-skrár til spilaranna. MP3-spilarar
hafa einnig hugbúnaö til aö afrita tónlist
af geisladiskum eöa vefnum og bjóöa upp
á möguleika á að skipuleggja tónlistina
eöa búa til lista af lögum í þeirri röð sem
hentar hverjum notanda fyrir sig. Þannig
sérhannaðir listar kallast playlist.
Fjölbreytt tækni
MP3-spilarar byggjast á mörgum ólíkum
tækniþáttum. Þessir þættir eru ekki nýir af
nálinni en saman skapa þeir neytendavöru
sem á enga sína líka. Auk þess að geyma
tónlist geta MP3- spilarar leikið tónlist og
gert notendum kleift að heyra þá tónlist
sem spiluð er.
Mismunandi tegundir MP3-spilara
MP3-spilarar eru mjög fjölbreytilegir. Þegar
velja á spilara þarf að huga að þáttum eins
og hversu mikiö á að nota spilarann, hvað
á hann að geta geymt mikið magn tónlistar
og hvað hann má kosta. Minnið í MP3-spil-
urum er þrenns konar:
• Flash-minnisspilari er minnsti og létt-
asti spilarinn. Eðli málsins samkvæmt
getur hann geymt færri lög en aðrir
spilarar. Flash-minnisspilari hefur enga
hreyfanlega hluti og er því afskaplega
hentugur fyrir hinn venjulega tónlist-
arunnanda sem vill hafa aðgang að
nokkrum lögum eða að þeim fjölda laga
sem dugar fyrir morgunskokkiö. Annar
kostur spilarans er að vegna stærðar
hans endist rafhlaðan lengur.
• Harðdisksspilarar eru stærri og þyngri
en flash-minnisspilarar og bjóða upp á
umtalsvert meira geymslurými. Fyrir þá
sem vilja geyma heilu tónlistarsöfnin
í spilurum sinum er harðdisksspilari
kjörinn. Þarsem harðdisksspilarinn hefur
nokkra hreyfanlega hluti innanborðs
má búast við einhverju hökti þegar
hann er hreyfður til. Vegna stærðar
sinnar hafa harðdisksspilarar oft fleiri
innbyggða eiginleika og eyða meiri
orku en aðrir spilarar. Undir venjulegum
kringumstæðum má búast við 8-20 tíma
endingu á rafhlöðunum.
• MP3-geislaspilarar. Fyrir þá sem eru
veikir fyrir gömlu góðu geislaspilurunum
er til ný tegund slíkra spilara sem getur
spilað MP3-skrár og önnur stafræn
skráarsnið. Þessir MP3-geislaspilarar
spila MP3-skrár sem brenndar hafa verið
á geisladiska. Einn slíkur diskur getur
geymt um 10 klukkustundir af tónlist.
Nauðsynlegt er að hafa aðgang að diska-
brennara ef keyptur er MP3-geislaspilari.
Þessi spilari er ódýrari en flash-minnis-
spilarinn og harðdisksspilarinn. Ef MP3-
geislaspilarar eru hreyfðir í spilun hökta
þeir aðeins, rétt eins og flestir geislaspil-
arar. Einnig eru þeir umtalsvert stærri
um sig en stafrænir bræður þeirra.
Blendingsspilarar. Nú er hægt að fá MP3-
eiginleika í öðrum neysluvarningi, eins og
GSM-símum, skipuleggjurum (PDA), DVD-
spilurum og jafnvel í sólgleraugum.
14NEYTENDABLA8I6 4.TBL.2DD6