Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 2
2
Bœndablaðið
Þriðjudagur 15. júlí 1997
Handverkshús í Árneshreppi
Síðastliðinn vetur vann Valgeir Benediktsson bóndi og þjóðfrœðingur að því að reisa handverkshús að Árnesi í
Trékyllisvík. Húsið sem er rúmlega 40 fermetrar að stœrð er að mestu smíðað úr rekavið en klcett innan að hluta
með panil. Til stendur að húsið hýsi glœsilegt minjasafn sem Valgeir hefur komið sér upp og einnig munu vera þar
til sölu smíðagripir sem hann er þekkturfyrir. Valgeir er mikill völundarsmiður og smíðar að mestu úr rekavið sem
hann safnar ífjörunni norður á Ströndum. Handverkshúsið var opnað almenningi í lok júní. Á myndinni má sjá
húsið og ídyrunum stendur Rakel Valgeirsdóttir heimasœta íÁrnesi./VH
LoöflVrabændur öörum hændum
ðhugasamarí um endumnennhm
Staða mjólkurframleiðslu á yfirstandandi
verðlagsári
llllinni umframmjólk en
á síðasta verðlagsári
Samkvæmt könnun sem
Bændaskólinn á Hvanneyri
hefur látið gera eru loðdýra-
bændur öðrum bændum
áhugasamari um endur-
menntun. Þetta kom fram í
erindi Magnúsar B. Jónsson-
ar, skólastjóra, á loðdýradög-
um á Sauðárkróki fyrir
skömmu.
Magnús sagði þetta atriði
skapa loðdýrabændum töluverða
sérstöðu. í könnuninni hjá Bænda-
skólanum var spurt um viðhorf til
skólans og endurmenntunarmögu-
leika sem upp á væri boðið og
segir Magnús að um helmingur
loðdýrabænda hefði sótt námskeið
hjá skólanum og meira en
helmingur hafi sótt önnur
námskeið sem bjóðast í greininni.
„Svo virðist sem loðdýrabænd-
ur telji sig hafa mikið gagn af
námskeiðunum en þau hafa verið
boðin fram af búnaðarskólunum
báðum, sem og öðrum aðilum.
Þetta þýðir að endurmenntunar-
þátturinn í loðdýraræktinni virðist
hafa verið í tiltölulega góðu lagi,“
sagði Magnús.
Á árunum 1990-1996 sóttu um
190 loðdýrabændur námskeið á
Hvanneyri. „Það má vera alveg
ljóst að þó grunnmenntun loðdýra-
bænda sé misjöfn þá hefur
þekkingarvöxturinn verið mikill
frá því síðasta loðdýraræktar-
tímabil hófst. Og annað er áber-
andi og einkennandi fyrir loðdýra-
ræktamámskeiðin og það er að
báðir aðilar eru yfirleitt virkir þátt-
takendur, bæði hjón sitja nám-
skeiðin, og það þýðir að líklegra er
að sú þekking sem fer í gegnum
námskeiðin inn á búin nýtist öllum
þeim sem taka þátt í rekstrinum,"
sagði Magnús.
Nú þegar tveir mánuðir eru eftir
af verðlagsárinu er eðlilegt að
margir mjólkurframleiðendur
velti fyrir sér heildarstöðu mjólk-
urframleiðslunnar. Spurningar
vakna hjá þeim sem haft hafa
mikla framleiðslu hvaða líkur
séu á greiðslum fyrir umfram-
mjólkina.
Greiðslumark mjólkur var á
þessu verðlagsári aukið um eina
milljón lítra en mjólkurframleiðsla
það sem af er verðlagsárinu er hins
vegar nokkru minni
en var á sama tíma
fyrir árið. Þegar
gerður er saman-
burður á framleiðslu
síðustu 12 mánaða
þá er hún nú um 3%
minni en hún var á
sama tíma árið 1996
miðað við sama
tímabil. Enn vantar
tæplega 600 þúsund
lítra á að 12 mánaða
framleiðslan nái greiðslumarki
verðlagsársins sem er 102
milljónir lítra.
Framleiðsla í júní var rúmum
2,3% meiri en í júnímánuði 1996
en eitthvað af þeirri aukningu
getur verið vegna fleiri innvigtun-
ardaga nú. Tíðarfar í júní var
mjólkurframleiðslunni fremur
andstætt.
Til að glöggva sig á lfldegri
þróun má líta til fyrri ára. Þegar
skoðuð er samanlögð innvigtun
mjólkursamlaga í landinu í júlí og
ágúst á síðustu árum kemur fram
miklu meiri mismunur á milli ára
en verið hefur á öðrum árstímum.
Það mjólkurmagn var mest árið
1995 tæpar 18,9 milljónir lítra en
minnst 1993 16,7 milljónir lítra.
Árið 1996 var það tæpar 16,9
milljónir lítra í þessum tveimum
mánuðum. Vitað er að hverju sinni
er einhver tilfærsla á milli verð-
lagsára sem skapast af breytilegum
Qölda daga sem mjólk er sótt til
framleiðenda í ágúst. Sum árin
hefur einnig verið eitthvað um það
að framleiðendur hafa ekki sent í
afurðastöð alla framleidda mjólk í
þessum tveimur mánuðum.
Nú er staðan gagnvart greiðslu-
marki mjólkur um
margt áþekk því sem
var 1995. Ymislegt
bendir samt til að vart
sé hægt að vænta jafn
mikillar framleiðslu í
þeim tveim mánuðum
sem eftir lifa verð-
lagsársins og þá. Kýr í
framleiðslu eru færri
nú. Mjólkurfram-
leiðsla er að vísu mjög
áþekk yfir landið í júní
þá og nú en þá voru kýr að græða
sig verulega í júní í mun
hagstæðara tíðarfari þá en nú.
Þessar staðreyndir sýna að
erfitt er að spá af nokkru öryggi
um líklega stöðu framleiðslunnar
við lok verðlagsárs. Ljóst er samt
að umffammjólk verður verulega
minni að magni en á síðasta verð-
lagsári. Líklegt virðist að full af-
urðastöðvargreiðsla og B greiðsla
komi á alla mjólk sem framleidd
verður á 100-104% bilinu. Einnig
bendir allt til að þeir framleiðend-
ur sem þegar hafa framleitt sem
nemur greiðslumarki munu fá af-
urðastöðvagreiðslur að þessu sinni
fyrir verulegan hluta af sinni um-
frammjólk. /JVJ
Bændablaðið í Öræfunum
„Saufiprliúskapup er mitl
draumasfarf"
Gunnar Sigurjónsson á Litla-Hofi heitir
ungur maður í Öræfum. Á sínum tíma
lauk hann námi við Stýrimannaskólann
og stundaði sjóinn um nokkurt skeið en
Óræfin toguðu í Gunnar og nú er svo
komið að hann og kona hans, Halldóra
Oddsdóttir, frá Fagurhólsmýri, búa
félagsbúi með foreldrum Gunnars á Litla-
Hofi. Þau Gunnar og Halldóra eiga einn
fjögurra ára dreng, Odd. En Gunnar
hefur ekki alveg sagt skilið við sjóinn því
hann er stýrimaður á loðnuskipinu ísleifi
VE sem gert er út frá Vestmannaeyjum.
Það má með sanni segja að Gunnar feti
þar í fótspor fjöimargra sveitunga sinna
því hér á árum áður a.m.k. var algengt
að ungir menn í Öræfum tækju sig upp
og héldu til sjóróðra í sunnlenskum
verstöðvum.
„Segja má að búskaparsaga mín sé orðin
tveggja ára gömul en ég erfœddur hér og
uppalinn. Það má því segja að ég sé
hreinrœktaður Örœfingur, “ sagði Gunnar. A
Litla-Hofi er búið með 430fjár og foreldrar
Gunnars eru auk þess með ferðaþjónustu og
þrjá hektara hafa þau lagt undir kartöflur. Og
hvernig er afkoman? „Hún er ekkert sérstök
en maður vonar að það sé bjartara
framundan. Þegar við ákváðum að setjast hér
að keyptum við kvóta og nú er búið komið íþá
stœrð að það á að vera hœgt að lifa af þessu
en ég býst þó við að þurfa enn um sinn að
stunda aðra vinnu með búskapnum. Næsta
skrefer að byggja íbúðarhús - en við þurfum
líka að stœkka fjárhúsið. “
- Hafði lengi blundað íþér áhugi að
komast aftur íheimasveitina?
Gunnar brosir breitt og segir að lengi hafi
hann viljað gera allt til þess að geta gerst
bóndi í Örœfum. „Sauðfjárbúskapur er mitt
draumastarf. “ En hvað er það sem heillar?
„Eg veit það varla. Eg hef bara alltaf haft
mikinn áhuga á sauðfé. Sem smástrákur var
ég mikið með honum afa mtnum í rollunum og
þekkti þær allar með nafni. Eitthvað ryðgaði
þekkingin þau ár sem ég var íburtu en þetta
kom fljótt aftur þegar ég fór að vera meira
heima. Hér er gott að vera. Til dæmis er h'tið
um nágrannakytrur eða stóra árekstra milli
manna eins og maður heyrir að gerist í
sumum sveitum. “
Gunnar var að girða tún er blaðið tók
hann tali og skrifari tæpti á að mikið
landsvæði tilheyrði bœnum. „Já, jarðnæði er
mikið á Hofi og landið er stöðugt að gróa
upp“. Hann tók sem dæmi að fyrir nokkrum
árum hefði mikið land verið auðn en ár hafa
verið beislaðar og nú flæðir ekki Skeiðará um
eyrarnar eins og áður. Gróðurinn hefur á
nokkrum árum breitt sig yfir landið þannig að
það er munfallegra á að líta. „Ekkert hefur
verið gert fyrir landið sem þakkar svona
skemmtilega fyrir sig, “ sagði þessi geðþekki,
ungi bóndi og sjómaður að lokum.
Markaður íyrir
hrossakjfit að
styrkjast
Betur horfir nú en aður um
sölu á hrossakjöti. Á Ítalíu hef-
ur opnast markaður sem er
vaxandi. Verðið er lágt eða
sem næst 70 kr. fyrir kg en
fyrir mestu er að geta slátrað
hrossum sem búið er að bíða
með í heilt ár.
Japansmarkaður er enn mjög
veikur og þó gera megi ráð fyrir
hægum bata þar eru engin teikn
enn á lofti um að hann nái sér að
fullu á næstu misserum. Slátur-
húsið á Hvammstanga slátrar fyrir
Ítalíumarkaðinn og nú er búið að
hreinsa nokkuð til í næsta ná-
grenni þess. í byrjun ágúst verður
slátrað á Hvammstanga hrossum
úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
og Hrossaræktarsamtök
Eyfirðinga og Þingeyinga
benda hrossaeigendum á að skrá
hross til slátrunar á skrifstofum
búnaðarsambandanna. Þar verða
líka skráð hross til slátrunar síðar í
sumar og haust til þess að hægt sé
að gera sér grein fyrir framboðinu
og skipuleggja sláturdaga og
flutninga./GBÞ