Bændablaðið - 15.07.1997, Síða 8
8
Bœndablaðið
Þriðjudagur 15. júlí 1997
Ný reglugerð um mjólk og mjólkurvörur
Lækkun frumutölu - aukin gæði
Sambærilegar reglur og
hjá nágrannalfindunum
-segir Brynjólfur Sandholt, yfirdýralæknir
„Fyrsta júlí síðastliðinn gekk í
gildi ný reglugerð um mjólk og
mjólkurvörur. Með (Dessari
breytingu er verið að færa
reglur hér á landi til svipaðs
horfs og er í nágrannalöndun-
um sem við lítum helst til,“
segir Brynjólfur Sandholt,
yfirdýralæknir.
„Sú breyting sem hvað mest
áhrif hefur hjá framleiðendum eru
reglumar um lækkun frumutölu í
mjólkinni. í reglugerðinni eru
settar fram reglur um lækkun niður
í 400 frumur/ml frá og með 1.
janúar 1998. Sé frumutalan við-
varandi yfir þessum mörkum verð-
ur sett sölubann á mjólkina.
Samtímis er tekin upp ný reikniað-
ferð á frumutölunni, svokallað
rúmfræðilegt meðaltal (marg-
feldismeðaltal, samanber um-
fjöllun um sama efni á þessari síðu
- innsk. Bændablaðið) í stað venju-
legs meðatals. Nokkur munur er á
niðurstöðum eftir því hvor reikni-
aðferðin er notuð. í reglugerðinni
er heimild til að veita undanþágu
enda er skilyrt að viðkomandi
bóndi geri samkomulag við við-
komandi mjólkurbú og héraðs-
dýralækni um aðgerðir til lækkun-
ar frumutölu. Fáist undanþága
verða mörkin 500.000 frumur/ml
með nýju reikningsaðferðinni, en
það eru 560 - 570.000 frumur/ml
reiknað sem venjulegt meðaltal. í
gömlu reglugerðinni voru mörkin
600.000 frumur/ml reiknað með
sömu aðferð. Munurinn á kröfun-
um um frumtölu er þannig ekki
eins mikill og virðist við fyrstu sýn.
Afurðastöðvar í mjólkuriðnaði
hafa sýnt áhuga á því að fá viður-
kenningu til að flytja mjólkurvörur
á erlenda markaði. Ein forsenda
þess að það sé unnt er sú, að ís-
lenskar reglur um mjólkurfram-
leiðslu séu sambærilegar við
erlendar reglur. Ef svo er ekki þarf
ekki að hugsa um að reyna að
flytja út mjólkurafurðir.
Frumutalan er vísbending um
gæði mjólkurinnar. Því er það
keppikefli að lækka hana sem
mest. Orsakir fyrir hárri frumutölu
er einkum júgurbólga þó fleira geti
komið til. Nauðsynlegt er að auka
fræðslu og leiðbeiningastarf til
þess að ná settu marki. Með mark-
vissu átaki mun það ömgglega
takast. I sláturhúsamálum þuríti að
ganga í gegnum svipað umbótaferli
til að ná sama stigi og nágranna-
löndin í slátmn sauðljár. Vemlega
hefur miðað í þessum efnum og við-
urkenning opinberra eftirlitsaðila
fengist bæði austan hafs og vestan,“
segir yfirdýralæknir.
Sævar Magnússon, Rannsóknastofu
mjólkuriðnaðarins
Um frumiMlu mjólkur
Frumutalan kemur til
íslands
Allt fram undir miðjan 9. ára-
tuginn var hugtakið frumutala
mjólkur nánast óþekkt hérlendis.
Jafnvel hinir mestu vandamálasér-
fræðingar vom næsta ófróðir um
þessa nýju ógn sem steðjaði að
bændum og virtist eiga rót að
rekja til nýstofnaðrar Rannsókna-
stofu mjólkuriðnaðarins (RM).
Bændur stóðu grandalausir gagn-
vart enn einu vandamálinu sem
ógnaði afkomu þeirra.
ísland í 1. sæti
Á vorfundi Tæknifélags mjólk-
uriðnaðarins 1987 voru kunn-
gjörðar þriggja ára niðurstöður
Rannsóknastofu mjólkuriðnaðar-
ins á fmmutalningum í innleggs-
mjólk. Erlendar viðmiðunartölur
vom sömuleiðis kynntar á fundin-
um. Samanburðurinn var ekki
sérlega hagstæður, fmmutala ís-
lenzkrar mjólkur var að jafnaði
allmiklu hærri en dæmi vom um
meðal nálægra þjóða. Það var
mörgum talsvert áfall að hin góða
íslenzka mjólk skyldi skipa fyrsta
(efsta) sætið á einmitt þessum
lista. Áður en RM hóf mælingar-
starfsemina var ekkert eftirlit með
þessum gæðaþætti mjólkurinnar
og trúlegast hafði enginn neina
hugmynd um fmmutölustöðuna
hérlendis.
landshlutum, þ.e. mjólkursamlags-
svæðum, hæst var hún 466, lægst
330 þús/ml árið 1996.
Enn er samanburður við ná-
grannalöndin okkur óhagstæður,
það má glögglega sjá af töflu 1, en
hafa ber í huga að á hinum Norð-
urlöndunum er frumutala mjólkur
hvað lægst í heimi hér. Þar hafa í
allmörg ár verið í gildi strangar
reglur um gæðamat innleggs-
mjólkur skv. frumutölu, reglur
sem fyrr eða síðar verða inn-
leiddar hérlendis í öllum aðalatrið-
um. Evrópuvæðingin sér fyrir því.
Margskonar
meðaltölur
Það hefur færst mjög í vöxt
síðustu ár að nota sk. margfeldis-
meðaltal (til skamms tíma kallað
geómetrískt meðaltal eða rúm-
frœðilegt meðaltal) í stað beins
meðaltals þegar fjallað er um
frumutölu mjólkur, einkum þó
þegar verðmeta skal innleggs-
mjólk bænda. Margfeldismeðal-
talið (Mfm) er nær undan-
tekningarlaust lægra en beina
meðaltalið (BM) vegna þess að
einstakar háar mælingamiðurstöð-
ur, sem stundum eiga rót að rekja
til óvandaðrar sýnatöku, hafa þar
ekki full áhrif til hækkunar. I töflu
1 eru landsmeðaltölur á Norður-
löndunum árið 1996.
Rót vandans?
Fyrir nokkmm ámm sat ég
umræðufund á Selfossi, sem hald-
inn var á vegum mjólkurbúsins
þar. Fjallað var um fumutölu
mjólkur og leiðir til að lækka
hana, enda voru þá í nánd nýjar
uppgjörsreglur; nú skyldi verð-
fella innleggsmjólk með háa
frumutölu. Til fundarins vom
boðaðir einhverjir þeirra sem lík-
legir þóttu til að geta lagt eitthvað
til málanna, en í þeim hópi vom
konur og karlar úr ýmsum starfs-
greinum sem tengjast mjólkur-
framleiðslu. Ekki man ég smá-
atriðin frá þessum fundi, en eitt er
mér minnisstætt. Ein kvennanna á
fundinum lýsti rót fmmutölu-
vandans fyrir sitt leyti eitthvað á
þessa leið: „Fyrrum voru það
konumar sem mjólkuðu kýrnar og
önnuðust þœr að öðru leyti. Þá
voru þessi mál í lagi. Kýrnar nutu
umhyggju og skilnings, þeim leið
vel og þœr voru almennt hraustar.
Vandinn hófst þegar karlarnir
ruddust inn í fjósin með tœki sín
og tól“.
Skrifað í júní 1997.
Tölugögn úr ársskýrslu RM.
Staðan í dag
Þetta var fyrir áratugi, en síðan
hefur mikið vatn til sjávar mnnið
og frumutala mjólkur lækkað um-
talsvert, eins og sjá má af súluriti
1 (frumutalan í þús/ml). Að jafn-
aði hefur frumutalan á landsvísu
lækkað um alls 222 þús/ml sl.
áratug. Meðaltala ársins 1996 var
sú lægsta hingað til, 377 þús/ml.
Frumutalan er þó allmisjöfn eftir
Tafla 1: Meðalfrumutala 1996
Beint Margfeldis
meðaltal meðaltal
ísland 377 331
Færeyjar , 222
Danmörk - ,'4 . 269 244
Noregur ' -4 Vr. 162 126
Svíþjóð 221 184
Finnland 170 131
Bdœrt var hlustað á
forystumenn bænda
varfiandi reglugerfiina
Hertar reglur
um frumutölu
í mjólk
Umhverfisráðu-
neytinu barst í byijun
júní erindi ffá yfirdýra-
lækni þar sem óskað var
eftir því að frumutala í
mjólk yrði lækkuð á
skemmri tíma en nefhd
sem vann að
endurskoðun mjólkur-
reglugerðar lagði til.
Mikill munur var þar á.
Umhverfisráðuneytið
óskaði svo efdr
ákvörðun landbúnaðar-
ráðuneytisins um það hvort fara
ætti þessa leið sem yfirdýralæknir
lagði til og var það gert. Yfir-
dýralæknir taldi nauðsynlegt að
farið yrði eftir ákvæðum Evrópu-
sambandsins hvað varðar ffumu-
tölu og lagði til að rúmfræðilegt
meðaltal verði ffá 1. janúar 1998
minna eða jafnt og 400.000
ffumur/ml.
Ekki hlustað á
bændaforystuna
Bændasamtökin og Lands-
samband kúabænda fóru ein-
dregið fram á það við landbúnað-
arráðuneytið að það beitti
sér fyrir frestun á
setningu reglugerð-
arinnar, þar til
tími hefði unnist
til frekara sam-
ráðs um efni
hennar, en
því var
synjað.
Reglugerð
um mjólk og
mjólkurvör-
ur tók svo
gildi þann 1.
júlí sl.
í dag eru
mörkin 600.000
frumur/ml, en nú er
farið í einu stökki niður
í 400.000 frumur/ml. og tekur
sú viðmiðun gildi þann 1. janúar
1998. Upprunalegu tillögumar
gerðu ráð fyrir að nálgast
400.000 frumna mörkin í þremur
áföngum til ársins 2002 og er að-
lögunartíminn því mjög stuttur.
í ákvæðum til bráðabirgða í
áðurnefndri reglugerð kemur
fram að mjólkurstöð er heimilt
að veita undanþágur frá sölu-
bannsákvæðum vegna frumutölu,
þegar hún er á bilinu frá 400.000
til og með 500.000 frumur/ml,
með því að framleiðendur geri
samkomulag við viðkomandi
mjólkurbú og héraðsdýralækni
um aðgerðir til að lækka
frumutölu. Undanþágu er
heimilt að veita til allt að eins árs
í senn og eigi lengur en til 1.
janúar árið 2002.
Það er því ljóst að alvarlegast
horfir hjá þeim bændum sem
hafa verið yfir 500.000
Guðbjörn
Arnason,
framkvœmdastjóri
Landssambands
kúabœnda
frumum/ml, en á þá
verður sett
mjólkursölubann frá
og með næstu
áramótum ef þeir eru
yfir mörkunum í fjóra
mánuði í röð. Nauð-
synlegt er því að fá
undanþágu fyrir
þennan hóp fram-
leiðenda í einhvem
tíma, eða á meðan
unnið er að því að
komast niður í
500.000 frumur/ml.
Forsenda hennar er að
gera samkomulag við
afurðastöð og héraðs-
dýralækni um aðgerðir eins og
fram kemur í reglugerðinni.
Reikniaðferð breytist
Útreikingur á meðaltali
frumutölu breytist við þessa
reglugerð úr einföldu meðaltali
fjögurra mælinga sem nær yfir
tvo mánuði í margfeldismeðaltal
(geometrieskt) ljögurra mælinga
í mánuði. Þannig má segja að
frávik einstakra mælinga vegi
minna en áður. Aftur á móti
hefur þessi breyting lítil áhrif ef
niðurstöður mælinga eru
tiltölulega jafnar.
Dæmi: a) venjulegt meðaltal,
4 mælingar: 300, 290, 310,
700 = meðaltal: 400
b) margfeldis-
meðaltal, 4
mælingar: 300,
290, 310, 700
= meðaltal:
370.
Séu allar
fjórar
mælingamar
eins - t.d.
4x600 er
margfeldis-
meðaltal hið
sama, þ.e. 600.
Reikniað-
ferðin breytir því
litlu eða engu fyrir
þá sem eru með við-
varandi vandamál.
Hvað eiga
bændur að gera
Mjög mikilvægt er að þeir
bændur sem eiga við frumu-
vandamál að stríða skilgreini
vandamálið hjá sér. Hver bóndi
fyrir sig þarf að fara vandlega
yfir sín mál, því víða er mikið
verk að vinna og gríðarlegur
kostnaður samfara því að ná
frumutalinu niður. En fyrst þarf
að ráðast á þá þætti sem geta haft
áhrif í baráttunni og eru ódýrastir
í framkvæmd. Þar ber helst að
nefna stjómunarþáttinn á búinu,
samvinnu við ráðunauta, mjólk-
ureftirlitsmenn og dýralækna.
Nánari túlkun á reglugerðinni
mun væntanlega birtast á síðum
Bændablaðsins í næstu tölu-
blöðum.
/ ■