Bændablaðið - 15.07.1997, Page 18

Bændablaðið - 15.07.1997, Page 18
18 Bœndablaðið Þriðjudagur 15. júlí 1997 Tækni við heyskap hefur tekið stakkaskipt- um á undanfömum árum. Rúllutæknin hefur rutt öðrum aðferðum til hlið- ar. Víða á hún vel við og á ýmsum búum hefur hún sparað fjármuni. Engu að síður nemur hlutur hey- öflunar enn langt til tveimur þriðju af breyti- legum kostnaði sauðfjár- búa (1). A Hvanneyri hafa um árabil verið gerðar til- raunir með verkun og nýtingu rúlluheys. Bændaskólinn og Bú- tæknideild Rala hafa staðið sameiginlega að þeim flestum. A ámnum 1990-1994 vom sérstaklega rannsakaðir nokkr- ir þættir rúlluverkunar sem varða fóðmn áa. Meðal þeirra vom: ♦ þurrkstig heysins við rúllun og ♦skurður heysins og tæting þess við rúllunina. Athuguð var nýting rúlluheysins við gjafir, verkun þess, heyát ánna og afurðasemi. Tilraunimar vom gerðar í þeim mælikvarða að niðurstöður þeirra mætti nota til þess að leggja hagrænt mat á árangurinn, er orðið gæti bændum til ráðgjafar hvað varðar heyátt búrekstursins. Að hey- skap var unnið svo sem gerast mundi við raunvemlegar aðstæður og allstórir ærhópar vom fóðraðir á tilraunaheyinu um lengri og skemmri tíma. Hér verður sagt frá helstu niðurstöðum tilraunaflokksins. Itar- legar er greint ffá þeim í Riti Búvísindadeildar nr. 17/1996(2) Baggamir í b-lið vom hins vegar 20-25% léttari en baggar a-liðar. ♦ í öllum þremur tilraununum reyndust æmar eta þurrlega rúllu- heyið betur en það þvala; nam átið að meðaltali 1,48 kg e./d. og á (a) og 1,65 kg e./d. og á (b). Munurinn reyndist vera marktækur á fimm mæliskeiðum af átta. ♦ Óvemlegur mis- munur kom fram á þungabreytingum og holdafari ánna vetrar- langt; ♦ Að meðaltali fæddust 167 lömb/100 ær í a-lið og 173 í b-lið; b-liður hafði vinninginn yfir a-lið í tveimur tilraunaflokkum af þremur. Fæðingarþungi lamba var að meðaltali 1-6% meiri í b- en a-lið, og þungi burðar að meðaltali 7% meiri; Abati virðist vera af því að for- þurrka hey, sem verka á í rúllum handa ám, tiltölulega mikið; allt að 50-65% þurrefni, enda leyfi veður að þurrkun heysins á velli gangi hratt og taki ekki lengri tíma en tvo samfellda þurrkdaga. SKORIÐ HEY EÐA TÆTT í RÚLLUR HANDA ÁM? Við hefðbundna votheysgerð hefur smækkun heysins með skurði eða tætingu oft reynst til bóta. mismunað með hliðsjón af áætlaðri fóðurþörf ánna á ýmsum tímum vetrar. Fyrir fengitíð var hvorum ærhópi skipt í tvennt og fékk annar helmingur hans nokkra fiskmjöls- gjöf - alls 2,0 kg/á á tímabilinu 16. nóvember til 18. desember - en hinn aðeins heyið. Heyát ánna var mælt svo og þrif þeirra og fijósemi. Helstu niðurstöður samanburðarins urðu þessar: ♦ Þéttleiki skorins heys í böggunum reyndist að jafnaði 4% meiri en hins heila; ♦ Heldur minna bar á myglu í rúllum með skoma heyinu; ♦ Á milli aðferðanna tveggja reyndist sáralítill munur koma fram á fóðurgildi heysins að lokinni verkun og geymslu; ♦ Áhrifa heyskurðarins gætti hvorki í heyáti ánna né þrifum tölumar sýna að hver 10 kíló fisk- mjölsgjafar leiddu til þess að 100 áa hópur fæddi einu lambi fleira. Getur þá hver áætlað hagkvæmni mjöl- gjafarinnar. Framleiðsluárin 1992-1994: í þessari tilraun var notuð vél sem segja má að sé sambyggður sláttu- tætari og rúllubindivél - af ORKEL- gerð. Heyið var úr fyrri slætti, að mestu vallarsveifgras. Það var for- þurrkað (46-55% e.) og bundið innan sólarhrings frá slætti. Til samanburðar var hey bundið með hefðbundnum rúllubindivélum (KRONE 125, MF 822 og WELGER RP 200). Baggar vom hjúpaðir sex-földu plasti og geymdir utandyra. Að lokinni 5 og 9 mánaða geymslu var heyið notað í fóðmnartilraunum með ær (32 og 36 ær í hópi). Helstu niðurstöður tilraunanna urðu þessar: ♦ Þéttleiki heysins í böggunum, sem bundnir vom með ORKEL- bindivélinni, var um það bil 11% minni en úr lauskjamavélum án tætibúnaðar (KRONE og WELGER); ♦ Munur á fóðurgildi heysins að geymslu lokinni var sáralítill. Súrmyndun varð nokkm umfangs- Bjarni Guðmundsson, Bú vísindadeild, Hvanneyri Ánunt líkar rúlluheyið vel, ekki síst ef það er íþurrara lagi (55-65%). Með rúllum má koma Jyrir sjálffóðrun líkt og myndin sýnir en hún er úr tilraun á Hvanneyri (Ijósm.: Grétar Einarsson)._____________________________________________ HÆFILEGT ÞURRKSTIG ÆRHEYS VIÐ RÚLLUN? Veðrátta ræður miklu um gang heyskapar og hefur þannig áhrif á vinnu við hann sem og gæði heysins. Með tveggja ára tilraunum var því gerður samanburður á heyi sem rúllað var á tvennum þurrkstigum: a. með 34-35% þurrefni - stefnt að rúllun á sláttudegi; b. með 50- 65% þurrefni. Plasthjúpaðar rúllumar vom geymdar í óyfirbreiddum útistæðum (6-faldur hjúpur). Mældar vom breytingar á fóðurgildi heysins frá slætti til gjafa svo og rýmun heysins er að fóðrun kom. Þá var metin myglumyndun í heyböggunum á geymslutíma. Heyát ánna var mælt, svo og þungabreytingar þeirra og afúrðir. Bæði tilraunaárin var notað íyrri sláttar hey. Seinna árið var einnig bætt við tilraun með há. í hvomm lið tilraunanna vom samtals notaðir um að bil 100 rúllubaggar og 157 ær. Tilraunaheyið var aðal- lega gefið á tveimur tímabilum inni- stöðu: ífá hýsingu fram undir miðjan janúar og frá marslokum og fram á sauðburð. Niðurstöður til- raunanna má draga saman þannig: ♦ Við litla forþurrkun (a) vom helmingslíkur á að binda mætti heyið sláttudaginn; ella mátti reikna með sólarhrings forþurrkunartíma í viðbót (b); ♦ Orkugildi heyins féll að meðaltali úr 0,89 FEm/kg e. við slátt í 0,83 FEm/kg e. við bindingu heys- ins; jafnmikið í báðum tilraunalið- um. Fallandinn var mestur í orku- ríku heyi. Hann varð einkum á fyrstu stundum forþurrkunarinnar; ♦ Rúmþyngd heysins í böggun- um óx með þurrkstigi þess upp að 55% e. Ur því tók hún að minnka. I b-lið varþéttleiki heysins 12% meiri en í a-lið miðað við þurrefni; Rúllubindivélar með slíkum búnaði hafa komið til prófunar hjá Bú- tæknideild Rala á Hvanneyri. Tæki- færin vom notuð til að rannsaka verkun heysins úr þeim með saman- burði við hefðbundna rúllugerð. Tvenns konar tilraunir vom gerðar. Fóðmn var hagað eins og í fyrri tilraunum: Framleiðsluárið 1992-1993: Til- raun var gerð með skorið hey í rúll- um. Hnífabil í skurðarstokki rúllu- bindivélarinnar var 74 mm. Heyið var forþurrkað og bundið við 57- 66% þ.e.skv. reynslu úr fyrri til- raunum. Baggar vom hjúpaðir sex- földu plasti og síðan geymdir utan- dyra. Fóðmnartilraun var gerð með 2 x 60 ær. Sláttutíma heysins var þeirra. Á fiskmjölinu bættu æmar hins vegar um 2 kg við þunga sinn og hélst sá munur allt til vors; ♦ Á heila heyinu var fijósemi ánna 190 lömb/100 ær en 173 lömb/100 ær á því skoma. í fisk- mjölsflokknum var fijósemin 192 lömb/100 ær samanborið við 172 lömb/100 ær í flokknum sem ekki fékk fiskmjöl; Samanburðartilraunin leiddi ekki í ljós augljósa ábataþætti er greitt gætu fyrir þann viðbótarkostn- að sem fylgir kaupum og notum hnífabúnaðar á rúllubindivél. Síður en svo. Engu að síður er rétt að rannsaka að með frekari tilraunum. Hins vegar er ljóst að æmar greiddu vel fyrir fiskmjölið. Þurrar meiri í tætta heyinu en í því heila; ♦ Ekki kom fram teljandi mis- munur á myglustigi bagganna á milli samanburðarflokka; ♦ Á einu fóðmnarskeiði af tjómm mældist marktækur munur á heyáti ánna og á heila heyinu í vil; ♦ Hvomgt tilraunaárið kom fram munur á þungabreytingum ánna eða holdafari yfir innistöðu- tímann; ♦ Það virtist ekki hafa áhrif á fijósemi ánna eða fæðingarþunga lambanna hvort heyið var heilt eða tætt. Árangur verkunar heysins og fóðmnar á því bendir ekki til þess að mikið sé að vinna við að tæta heyið við rúllun. Þetta hafa líka sænskar tilraunir sýnt (3). Við mat á hag- rænu notagildi þeirra véla, sem hér vom bomar saman, virðist því þurfa að líta til annarra átta en verkunar og fóðmnar í leit að tekjuþáttum dæmisins. NÝTING RÚLLUHEYSINS? I tilraunaflokknum öllum var fylgst grannt með nýtingu heysins. Myglumyndun í rúlluböggunum var metin og skráð. Einnig var haldið saman því heymagni sem ekki var talið ráðlegt að gefa ánum. Segja má að gæðamatið hafi verið strangt. Meðalniðurstaðan var þessi: ♦ I alls fimm tilraunum sem hver um sig stóð vetrarlangt reyndist við gjafir þurfa að kasta frá 3,6 ±3,3% af því heyi sem hirt var. Þetta verður að telja góða nýtingu. Hún er heldur betri en fundist hefur í nýlegri könnun hjá nokkmm bændum (4). Hvað myglumyndunina snerti reyndust þrír þættir áhrifamiklir: ♦ geymslutími bagganna ♦ þurrkstig heysins og ♦ sláttutími heysins. Sé fyrst getið sláttutímans skar háin sig úr á þann veg að myglu gætti varla í böggum úr henni fyrr en langt var liðið á geymslutímann. Er þetta þegar orðin reynsla fleiri. Sennilega má rekja þetta til þess hve svalt er orðið í veðri þegar há er slegin og rúlluð, en gegndræpi plasthjúpsins gagnvart súrefni vex mjög með hitastigi umhverfis. Meira bar á myglu í böggum fyrri sláttar. Hjúpun bagganna var sexföld eins og áður sagði. I þvölu heyi (með 34-35% e.) bar meira á myglunni en í þurrara rúlluheyi (með 50-65%, e.). Munurinn jafnaðist þó að mestu út er leið á geymslutímann. Má sjá þetta hvort tveggja á næstu mynd en ítreka verður að myglumatið var strangt: Niðurstöðumar styðja á aðferð sem ráðlögð hefur verið; að hafa plastlögin fleiri á því rúlluheyi sem geyma á fram á vor heldur en hinu sem gefa á snemma á innistöðu. Einkum á þetta við um hey sem slegið er snemma sumars og geyma þarf yfir heitustu daga þess. Geta má þeirra breytinga sem urðu á mældu fóðurgildi heysins ffá hirðingu til gjafa. Að meðaltali úr öllum tilraununum reyndust ær vera innan við 1% hvað snerti orkugildi heysins. Því ættu bændur með sæmilegu öryggi að geta treyst á heyefnagreiningar byggðar á hey- sýnum teknum við hirðingu - þegar þeir undirbúa vetrarfóðrunina. Æ fleiri bændur taka nú slík sýni. Á öllum ferli heysins urðu mest- ar breytingar á fóðurgildi þess frá slætti til hirðingar. Að þeim var vikið framar í greininni. Takist að halda þeim í lágmarki með vandaðri meðferð heysins á vellinum eru að eiginleikar grasanna við sláttinn sem ákvarða gæði heysins er að gjöfum kemur. Þá fyrst hefur hey- verkunin náð tilgangi sínum. AÐ LOKUM Gert er ráð fyrir að tilraunum sem þessum verði haldið áfram á svipaðri braut eftir því sem þörf krefur og efni og aðstæður leyfa. Einskis má láta ófreistað til þess að gera heyfóðrið - Jtessa undirstöðu jórturdýraeldis á Islandi - ódýrara, betra og hollara. HEIMILDIR 1. Hagþjónusta landbúnaðarins 1996. Niðurstöður búreikninga. Rit 3 1996, 117 bls. 2. Bjami Guðmundsson 1996. Verkun heys í rúlluböggum handa ám. Rit Búvísindadeildar, nr. 17,46 bls. 3. Lingvall, M. og P. Lingvall 1992. Rundbalsensilering med ORKEL-rundbalspress. Grovfoder - forskning - tillámpning. SLU, I(1992):5-14. 4. Guðmundur Hrafn Jóhannesson 1995. Afföll við geymslu níllubagga. BS-ritgerð við Búvísindadeild, 24 bls. og viðbætir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.