Bændablaðið - 03.05.2000, Síða 11
Miðvikudagur 3. maí 2000
BÆNDABLAÐIÐ
11
A myndinni eru þær Margrét Þórðardóttir bóndi á Furubrekku í Staðarsveit og Guðný H. Jakobsdóttir bóndi á
Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík
Tvær konur á Snæfellsnesi stunda fjarnám í búfræði
frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri:
„Mennirnir okkar
hafa ekki síflur gagn
af bessu en við"
Þær Margrét Þórðardóttir bóndi
á Furubrekku í Staðarsveit og
Guðný H. Jakobsdóttir bóndi á
Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík
hófu í byrjun síðasta árs
fjarnám í búfræði við
Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri. Bændablaðinu lék
forvitni á að vita hvernig námið
hefði gengið og hvort þær teldu
þetta eiga erindi til bænda sem
annars ættu ekki heimangengt.
Þær segjast báðar hafa séð
kjörið tækifæri til að ná sér í
búfræðimenntun þar sem þær gátu
ekki tekið sig upp og farið í nám á
Hvanneyri. Margrét stundaði
reynar nám á Hvanneyri fyrir
nokkrum árum en lauk því ekki og
sá þama gott tækifæri til að taka
upp þráðinn og klára námið.
Margrét hefur stundað búskap í 18
ár en Guðný hefur tiltölulegan
stuttan búskaparferil að baki. Þær
stefna að því að ljúka náminu
vorið 2001.
Námið fer þannig fram að einu
sinni í viku fá nemendumir leið-
beiningabréf í tölvupósti og í þeim
eru verkefni sem á yfirleitt að skila
innan viku. Þær segja námið hafa
gengið upp og ofan. „Þetta hefur
nú samt alltaf sloppið fyrir hom.
Það er miserfitt að taka fögin á
þennan hátt. Sum er t.d. varla hægt
að læra í gegnum tölvu nema á
þijóskunni einni saman, t.d.
markaðsfræði sem byggist mikið á
skoðanaskiptum og samskiptum
milli fólks. Líffræðifög er hins
vegar frekar auðvelt að taka á
þennan hátt þar sem verið er að
kenna staðreyndir.“
Það varð þó ekki nægilega
mikið úr námi á fyrstu önninni
enda var það í raun og vem
reynslutími. „Þá vomm við að
kynnast námsefninu og hvort öðm
innbyrðis og við vissum í.raun lítið
hvað við vomm að fara út í. Við
tókum því ekki eins mörg fög og
við í raun og veru gátum. En í
vetur höfum við tekið helmingi
fleiri fög enda vorum við þá betur
undirbúnar og vissum hvað við
réðum við mikið.“ Þær segjast
ráða hversu mörg fög þær taka á
hverri önn en þó er mælt með
hálfum hraða miðað við
hefðbundið nám.
Að þeirra sögn hefur það
gengið þokkalega að samræma
bústörfin og námið. „Það sitja
náttúralega ákveðnir hlutir á
hakanum meðan verið er að sinna
náminu, bæði bústörf og
heimilisstörf. En við eigum góða
að og með samvinnu er þetta látið
ganga.“
Guðný bendir einnig á að það
lætur kennumnum misvel að
kenna á þennan hátt. „Fjarkennsla
er gjörólík hefðbundinni kennslu í
skóla og það er ekki sjálfgefið að
allir kennarar geti kennt í fjamámi.
í kennslu er t.d. hægt að taka dæmi
til að útskýra hlutina en það er
ekki auðvelt í knöppum texta í
tölvupósti. Kennaramir em því að
læra á þetta rétt eins og við
nemendumir."
Fjamemar þurfa líka að taka
verklega hlutann rétt eins og aðrir
nemar á Hvanneyri. Sá þáttur fer
þá fram á búunum sem nemamir
búa á og eiga að gera allt það sem
verknámsnemar á Hvanneyri eiga
að gera. Skiptir þá engu máli þó að
nemandinn sé starfandi bóndi,
jafnvel til margra ára. Nemamir
skila svo skýrslu um þennan
námstíma. Margrét hafði lokið því
á námstíma sínum á Hvanneyri og
slapp því við þetta en Guðný þurfti
að ganga í gegnum þetta ferli.
Margrét er þeirrar skoðunar að
breyta eigi verknáminu. „Mér
hefði þótt ákaflega skrítið ef ég
hefði verið send í verknám þó að
ég hafi 18 ára reynslu af búskap.
Vj1 í j
Þetta sýnir að mínu mati ákveðna
lítilsvirðingu við starf bóndans."
Guðný er sama sinnis. „I ýmiss
konar starfsnámi færð maður
starfsreynslu í viðkomandi grein
metna. Það ætti einnig að gilda um
búskap. Mér finnst það tímasóun
fyrir reynda bændur að vera að
eyða heilli önn í verknám.“ Þær
benda einnig á að þeir sem hafa
stúdentspróf fá það metið inn f
skólann. Því skjóti það skökku við
að á sama tíma sé áralöng reynsla
af búskap á engan hátt metin inni í
ijamámið.
Margrét saknar þess einnig að
ljamemar séu ekki kallaðir saman í
nokkra daga eins og tíðkist víða
annars staðar í fjamámi. „Maður
þekkir ekki kennarann í sjón, hvað
þá samnemendur sína. Þetta verður
til þess að þegar maður er einn
heima að læra er maður fljótur að
missa móðinn ef maður þekkir
engan. Við erum reyndar svo
heppnar að geta haft samskipti
hvor við aðra en það búa ekki allir
svo vel.“ Guðný er sammála
þessu. „Nemendur þyrftu að hafa
meiri stuðning hver af öðmm því
þeir era að basla í þessu sama. Auk
þess eru alltaf sumir hlutir sem
kennarar þyrftu að fara í gegnum
með nemendunum augliti til
auglitis. Ég lít svo á að það að
koma saman 1-2 sinnum á hverri
önn sé hluti af fjamáminu.“
Margrét vill benda fólki á sem
ætlar að stunda fjamám að þó að
það borgi sig að taka námið ekki á
meiri hraða en menn ráða við verði
samt einnig að gæta þess að taka
það ekki of hægt. „Hættan er sú að
þetta verði óskaplega leiðingjarnt.
Munurinn tímalega séð á því að
taka tvö fög eða ljögur er ekki svo
mikill og ég tel að ef fólk tekur
þetta á of löngum tíma gefist það
frekar upp.“
Þær eru sammála um að mæla
með þessari aðferð fyrir þá sem
ekki eiga heimangengt. Þetta er í
raun eina aðferðin fyrir fólk sem
kemst ekki í skóla og þetta virkar
ágætlega. Fólk verður hins vegar
að gera sér grein fyrir því að þetta
er mjög mikil vinna og það þarf að
skipuleggja tímann vel. En fjar-
námið hefur lítið þróast ennþá og
það verður að vinna að því áfram
og sníða af vankantana til þess að
það detti ekki uppfyrir."
Þær em þó báðar á þeirri
skoðun að í þessu námi séu fög
sem allir bændur ættu að taka og
nefna áburðarfræði sem dæmi. „Ég
held að mennimir okkar hafi
ekkert síður haft gagn af þessu en
við og þó hafa þeir báðir lokið
búfræðiprófi," segja þær að lokum.
Við flytjum!
Lánasjóður landbúnaóarins opnar nýjar skrifstofur
þann 8. maí næstkomandi á Austurvegi 10, Selfossi.
Frá sama tíma veróur símanúmer sjóðsins 480 6000
og faxnúmer 480 6001.
Jafnframt mun sjóðurinn opna nýja heimasíðu og
verður slóðin www.llb.is.
Af þessu tilefni veróur opið hús fyrir vióskiptavini og
velunnara sjóðsins milli kl. 10 og 12 á Austurvegi 10
þann 9. maí næstkomandi Það verður heitt á
könnunni og allir velkomnir.
Lánasjóður landbúnaðarins
Hvað þarf til að stunda fjarnám
við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri
Áhuga á að fræðast og notfæra sér þægilega tækni til þess
Tölvukost sem hér segir:
Vélbúnað
• Tölvu (Pentium a.m.k. 100MHz eða samhæfða
Macintosh)
• Módem (minnst 28,8 Kbps) og netfang
Hugbúnað:
• Windows 95 eða 98
• Tölvupóstforrit
• Ritvinnslu og töflureikni (nú miðað við Word og
Excel 97)
• Vafra t.d. Internet Explorer eða Netscape (4,0 eða
nýrri)
Hafa samband við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og
fá nánari upplýsingar og til að innrita sig
Sími: 437 0000 Fax: 437 0048
Netfang: edda@hvanneyri.is
A Alfa Laval Agri
Sjálfvirkur
kjarnfóðurvagn
Fjárfesting sem
borgar sig!
• Allt að 15% betri nýting á
fóðri
• Einstaklingsfóðrun
• Allt að 10-15% meiri
nyt
• Tekur 1-4 gerðir fóðurs
• Gefur kjarnfóður allt að
10 sinnum á sólarhring
• Færri vinnustundir við
fóðrun
• Hentar vel í þrönga
fóðurganga
• Mál: L-670 mm VÉLAVERf
B-626 mm
H-1079 mm
• Fæst í tveimur útgáfum
Alpro og Stand aione
Reykjavík:
Lagmúli 7
Sími 588 2600
Akureyri:
Dalsbraut 1e
Sími 461 4007
www.velaver.is