Bændablaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 17
Miðvikndagur 3. maí 2000
BÆNDABLAÐIÐ
17
Skoðaðir mismunandi heilfóður-
vagnar í Danmörku. Heilfóður
gefið.
Kjarnfóður og kartöflur blandast
fyrst!
HeilióOumgn kominn II íslands
Síðastliðin misseri hafa nokkrir
aðilar skoðað hvort ekki megi nota
heilfóður til að fóðra íslenskar
mjólkurkýr með rétt eins og gerist
víða erlendis. Um miðjan mars
var farin kynnisferð til
Danmerkur, en erindið var að
finna hvaða tegund heilfóðurs-
vagns hentaði best við íslenskar
aðstæður. í kynnisferðina fóru
Louise Mdlbak frá Landbúnaðar-
háskólanum á Hvanneyri, Grétar
Hrafn Harðarson tilraunastjóri á
Stóra-Armóti, Lárus Pétursson frá
Bútæknideild RALA og Finnbogi
Magnússon frá Bújöfri-Búvélum
Selfossi.
Leitað var eftir heilfóðurvagni
sem gæti saxað niður gróft hey og
blandað því við það hráefni sem
bætt væri við. Með þessu var
unnið að því að fá vagn til landsins
sem gæti virkað við íslenskar
aðstæður. Niðurstaðan var að
kaupa vagn frá Lydersen með
láréttum snigli með hnífum á (eins
og sjá má á mynd) sem fluttur var
inn á vegum Bújöfurs-Búvéla.
Vagninn saxar og blandar fóðrinu
saman, þar sem sniglamir ýta
fóðrinu inn að miðju vagnsins.
Vagninn er útbúinn með vigt
þannig að hægt er að fylgjast með
hversu mikið er sett í hann. Lúga
er á miðjum vagninum og fer
fóðrið þar út. Fyrst um sinn
verður gerð athugun á notkun hans
en síðar verður gerð formleg til-
raun með fóðrun mjólkurkúa þar
sem Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri og Rannsóknastofnun
Landbúnaðarins vinna saman að
framkvæmd verkefnisins.
Fyrsta prófun var gerð nú rétt
fyrir páska, 18. apríl, á Stóra -
Armóti og var sett í vagninn
kjarnfóður, kartöflur, 2 vallarfox-
grasrúllur og 1 blaut hafrarúlla.
Þetta saxaðist allt niður og
blandaðist undravel saman. Hei-
lfóðrið var svo borið fyrir kýmar
og vom þær til að byrja með ansi
hissa en tóku svo vel í þetta og létu
vel af heilfóðrinu.
Laufey Bjarnadóttir
Louise Mdlbak
Landbúnaðarháskólan um
Hvanneyri
Hagþjónusta landbúnaðarins
Rekstrarfræðingur
Staða rekstrarfræðings hjá Hagþjónustu landbúnaðarins á
Hvanneyri er laus til umsóknar. Starfið felst í vinnu við
gagnaöflun og hagskýrslugerð á sviði landbúnaðar og
skyldum verkefnum. Rekstrarfræðimenntun eða önnur
menntun á háskólastigi er áskilin. Búfræðimenntun eða
reynsla í landbúnaði æskileg. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Starfið verður veitt frá og með 1. júlí
2000.
Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf sendist Jónasi
Bjarnasyni forstöðumanni Hagþjónustu landbúnaðarins,
Hvanneyri, 311 Borgarnes, fyrir 3. júní n.k.
Hagþjónusta landbúnaðarins er ríkisstofnun sem starfar á
grundvelli laga nr. 63/1989 og hefur aðsetur á Hvanneyri í
Borgarfirði. Hún er ein af stofnunum landbúnaðarráðuneytisins og
býr við sjálfstæðan fjárhag samkvæmt framlögum á A-hluta
fjárlaga. Landbúnaðarráðherra skipar stjórn stofnunarinnar
samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka íslands, háskóladeildar
Bændaskólans á Hvanneyri, Þjóðhagsstofnunar og Hagstofu ís-
lands. Verkefni greinast í eftirtalin fjögur svið: (1) Búreikningasvið;
(2) hagskýrslugerð; (3) hagrannsóknir í land-búnaði (þ.m.t.
kennsla við háskóladeild Bændaskólans á Hvanneyri) og (4)
vinnslu sérhæfðra verkefna (m.a. í samvinnu við Þjóðhagsstofnun
, Hagstofu íslands og fyrir Verðlagsnefnd búvara samkvæmt þar
að lútandi lögum).
Til afgreiðslu strax
Öflugir, vandaðir
tindatætarar
með packerrúllu
og hnífatindum
* 1. eða 6. hraða gírdrif.
* Vinnslubreidd 200 - 500 cm.
* Aflþörf 70-120 hö.
* Tvöfaldar burðarlegur.
* Jöfnunarborð aftan.
Sérlega sterkbyggðir hnífatætarar
* 1. eða 4. hraða gírdrif.
* Vinnslubreidd 185 - 285 cm.
§ * Aflþörf 50-150 hö.
Hliðardrif með
tannhjólaniðurfærslu.
Leitið nánari
upplýsinga!
ORKUTÆKNI
Tvöfaldar hnífafestingar,
6 vinkilhnífar á kraga,
14 mm, 10.9 hnífaboltar.
Rillutenging öxla
við tannhjól.
Hyrjarhöfða 3
112 Reykjavík
Sími 587 6065
Fax 587 6074
Smá-
%\i auglýsinga _J- síminn er
^ 563 0300
Ryðfríir hitakútar
með 30 ára
frábærri reynslu
Einföld uppsetning.
Blöndunar- og öryggisloki
fylgja meö.
Fást einnig ryðfríir að utan.
Eigum einnig úrval
olíufylltra þilofna á lager.
Hagstætt verð.
m-
Einar Farestveft &Cahf.
Borgarlúni 28 - Sími 562 2990 - 562 2901
Sturtuvagnar og
stálgrindahús frá
WECKMAN
Sturtuvagnar og flatvagnar
Einnig þak
og veggstál
Stálgrindahús.
Margar gerðir,
hagstætt
verð.
H. Hauksson hf.
Suðurlandsbraut 48
Símí: 588-1130. Fax. 588-1131.
Heimasími: 567-1880