Bændablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. maí 2001
Alltaf skrefi framar
ttt rin •
O
miiip
Fullkomin og ótrúlega lipur dráttarvél
SEM KOSTAR AÐEINS KR: 4.350.OOO- ÁN VSK.
Lýsing á Case IH CS iio
.Togmikill 4 strokka 4,4 lítra SISU mótor
með túrbínu, 113 hestöfl.
»6 gíra gírkassi með 4 rafstírðum
miligírum í hverjum gír.
•Alagsstýrt vökvakerfi.
•Vökvavendigir.
>40 gíra kassi með skriðgír.
• 50km/klst. ökuhraði.
• 120 lítra vökvadæla.
.9000 kg. lyftigeta á beisli.
• Fjaðrandi framö.vull með hæðarstillingu.
• Loftpúðasæti með snúningi.
• Hæðarstillt veltistýri.
•Tímastilltur sjálfvirkur forhitari.
• 3 tvívirk vökvasúttök.
•Afturrúðuþurrka.
•Afturrúðuhitari.
• 2 vinnuljós að framan, 2 tvöföld
vinnuljós að aftan.
• Brettabreikkanir að aftan.
• 220 lítra hráolíutankur.
• 4 hraðaaflúttak, 540/750/100/1400 sn/mín
• Dekk: 600/65R38 aftan,
540/65R24 framan.
IB ■
• Opnir beislisendar.
• Pústurrör til hliðar.
• Fullkomið rafstýrt beisli,
„P.T.O management".
• Rafstýring á fjórhjóladrifi og driflæsingu,
má tengja undir fullu álagi.
• Utskjótanlegur lyftukrókur með
sveifludráttarbeisli.
•Vagnbremsúttak.
• Baksýnisspegill í ökumannshúsi.
•Vélarhlíf opnast í heilu lagi.
„Mótoröryggi sern drepur á vélinni við
hættuástand.
Beislis og aflúttaks stýring á afturbrettun.
•Þyngd 5370 kg.
sölumenn okkar og láiö nánari upplvsingar.
iðasi við gcngi Isl. kr. 10 maí 2001.
VELAF&
ÞJÓNUSTAhf_______________________
Þekktir fyrir þjónustu
JÁRNHÁLSI 2 a 110 REYKJAVIk SÍMI: 5-80O-2OO ,M FaX: 5-800-220
Óseyri 1a a 603 Akureyri a Sími: 461-4040 a Fax: 461-4044
Hella, pakkhús b 850 Hella b Sími: 487-5886 OG 487-5887 a Fax: 487-5833
www.velar.is
Áttu mynd frá
Kljáströnd
í Höfða-
hverfi?
Afkomendur Önnu og Ólafs á Kljáströnd í Höfðahverfi eru að safna
Ijósmyndum sem teknar voru á Kljáströnd á síðustu öld. Líklegt er að
fjöldi mynda hafi verið tekinn á Kljáströnd þegar útgerð var rekin þar en
fjöldi fólks bjó á sínum tíma á staðnum.
Ætlunin er að taka eftir þessum myndum og safna á einn stað.
Vinsamlega hafið samband við Áskel í síma 563 0375
(gsm 893 6741), netfang ath@bondi.is
Riðuveiki á Suðurlandi:
Bændur fylgist vel mefi fénu
í framhaldi af því að riðuveiki
kom upp í sauðfé á Hrafn-
kelsstöðum í Hrunamanna-
hreppi í Árnessýslu í mars var
ákvcðið að dýralæknar skoðuðu
allt fé í hreppnum. Þeirri skoðun
er nú lokið og nokkrar kindur
fundust sem rétt þótti að rann-
saka nánar m.t.t. riðuveiki. Því
er nú að ljúka. Að sögn Halldórs
Runólfssonar yfirdýralæknis er
einnig verið að athuga heilasýni
úr sauðfé sem slátrað var
síðastliðið haust. Halldór segir
ekkert hafa komið í Ijós ennþá
sem bendi til fleiri riðutilfella þó
að of snemmt sé að fella lok-
adóm um það.
Halldór ráðleggur sauðfjár-
bændum að fylgjast með fé hjá sér,
tilkynna strax viðkomandi héraðs-
dýralækni ef þeir verða varir við
gripi sem hugsanlega eru smitaðir
og biðja um rannsókn á þeim.
Hana fá þeir sér að kostnaðar-
lausu. „Næstu árin verður að hætta
við alla leyfislausa verslun og
flutninga á lifandi fé á milli bæja.
Biðja þarf um sérstakt leyfi frá
embætti yfirdýralæknis og fá mat á
því hvort það sé óhætt“ segir hann.
Hann segir einnig að rannsaka
ætti allar sjálfdauðar kindur og
sleppa engum mögulega smituðum
kindum á fjall. Ekki ætti að flytja
til fjalls eða sleppa neinni kind án
eymamerkja með áletruðu
bæjarnúmeri, hvorki fullorðinni né
lambi. Halldór bendir bændum
einnig á að fylgjast með fé sem
kemur af fjalli í réttum í haust.
„Menn þurfa að gæta þess að taka
ekki heim til sín neinar vanmeta
kindur heldur taka þær frá strax í
réttum, halda þeim frá öðru fé og
koma þeim sem fyrst í rannsókn.
Þá er ítrekað að engin verslun eða
flutningur með líffé eigi sér stað
milli bæja á næstunni, ekki séu
aðkomukindur hýstar yfir nótt og
að menn sæki strax fé sitt sem
kemur fram á öðrum bæjum.“
Halldór segir þessi varúðarorð
í raun eiga við á öllum riðu-
svæðum landsins.
„i —
i^k,tamláðaa
OrPVC-u
émi vtiöhaUdJsH
JjJiJiJiJjJ/ UiJ
ilJJ/Óif J -jJJJJJ1
AfíilugíU'iiyniiUi
fiérlendiu
Kjarnagluggar
Dalvegur 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713
H ER UMTALSVERÐUR
HLUTIFÚÐURS
Sævar Einarsson bóndi á Hamri
í Hegranesi er einn þeirra bænda
sem ræktað liefur korn í nokkur
ár. Hann byrjaði árið 1995 með
þrjá hektara undir korn, í fyrra
sáði hann í tíu hektara og verður
með fjórtán í sumar. Frétta-
maður blaðsins heimsótti Sævar
á dögunum en þá var hann ein-
mitt nýbúinn að sá í tíu ha. sem
hann er með á leigu.
„Eins og fleiri bændur í Skaga-
firði hef ég verið að fikra rnig
áfram við þetta ár frá ári og einnig
notið aðstoðar Eiríks Loftssonar
ráðunauts. Eg byrjaði fremur smátt
og þá hérna heima. Þá var engin
vél í héraðinu til að þreskja kornið
þannig að við fengum menn úr
Eyjafirði til þess. Árið eftir
stofnuðu flestir okkar sem eru í
kornrækt hlutafélagið Þreski ehf.
og keyptum strax vél sem við
höfum notað síðan og höfum nú
reyndar keypt aðra og aíkasta-
meiri. Þetta jókst svo verulega árið
2000 þegar ég tók á leigu tíu hekt-
ara í landi Vindheima hér framar í
héraðinu. Talsvert er um að menn
leigi sér land fyrir korn.á þessu
svæði þarna í Hólminum. Það hef- vel fyrir korn. það er snemma til á
ur sýnt sig að land þar hentar afar vorin og uppskera bregst ekki.
Eiríkur Loftsson (t.v.) ráðunautur í Skagaíirði og Sævar Einarsson bóndi.
í gömlu súrheysgryfjunni er loftþétt dúksíló (undir korn og það fellur
saman við tæmingu). Loftþéttur snigiil færir kornið úr sílóinu og í korn-
vals. Úr valsinum fer kornið í hjólbörur,/ÖÞ.________________
Uppskera þar er talsvert meiri en
hér heima. Munurinn liggur að
líkindum aðallega í því að Hamar
er um 15 km norðar en Vindheim-
ar.“
Hvemig verkarðu kornið ?
„Fyrstu árin fór það nánast
eingöngu í stórsekki og var súrsað.
Síðar fjárfesti Þreskir í þurrksílói
sem er staðsett þar sem ræktunin er
mest. í fyrra keypti ég stóran poka
(úr plastdúk) sem tekur um 70
rúmm. Hann setti ég í gamla vot-
heysgryfju og í hann mest af korn-
framleiðslu síðasta árs. Þetta hefur
komið ágætlega út og verkast vel.
Kornið er tekið úr pokanum með
snigli, aðeins þarf að ýta á takka og
þá kemur það. Nú eru allar
tilfæringar með stórsekki úr
sögunni. Eg held að þetta sé fram-
líðargeymsluaðferð á korni. Þetta
kostar að vísu talsvert í upphafi en
pokinn á að geta enst í nokkur ár."
Á Hamri eru um 30 mjólkurkýr
og yfirleitt 60-70 gripir í uppeldi.
Sævar segist gela öllum gripum
korn og þeir séu sólgnir í það.
Hann segist spara fóðurbætiskaup
verulega með korngjöf, jafnvel upp
undir helming á hámjólka kúm, en
hann gefi nú fóðurbæti með öðru
efnainnihaldi en áður.
Aðspurður um kornræktina
heima á Hamri segir Sævar að hún
sé ekki síst liður í endurræktun
túna. Hann segist nota sama land í
tvö til þrjú ár undir kom, loka því
þá og rækta á nýju landi. Túnin séu
því í stöðugri endurræktun sem sé
nauðsynlegt ef fóðurgildi heysins
eigi aðwera í hámarki. ÖÞ
Landbúnaðarvörur - Varahlutir
Öflug
varahlutaþjónusta
Opnunartími
Virka daga : 8 -18
Laugardaga: 10 -14
Sími eftir lokun: 863 - 3226
Erum alltaf á vaktinni!
/ Kárason
Viðarhöfða 2 - Við Stórhöfða
110 Reykjavík
Sími: 567-8400 - Fax: 567-8401
E-mail: pk@binet.isf'_y_ _