Bændablaðið - 15.05.2001, Síða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. maí 2001
MciKiSol
Núerlag
UTSÖLUSTAÐIR:
ÖLL HELSTU MJÓLKURBÚ LANDSINS
L E O
INNFLUTNINGUR:
PHARMACO HF.
Handbók bænda
Ómissandi uppsláttarrit!
Skeifukeppni Hólaskóla
Oruggur vorboöi
Skeifukeppni ncmenda Hóla-
skóla hefur í áratugi verið jafn
öruggur vorboði og koma far-
fuglanna hingað til lands. í þetta
sinn var hún haldin á frídegi
verkafólks 1. maí á skeiðvelli
staðarins. Keppnin hefur fengið
á sig nýjan blæ með árunum og
er skeifudagurinn sjálfur aðeins
æfing í keppnisreið og verð-
launaafhending þar sem loka-
einkunn nemenda er kunn
Bertha Elise Kristiansen með
Eiðfaxabikarinn situr Frumu frá
Stangarholti sem talin var hesta
best hirt. Hjá henni stendur Sig-
urður Sigmundsson í Syðra Lang-
holti sem tengdur er tímaritinu
Eiðfaxa órjúfanlegum böndum.
nokkrum dögum áður. Hver
hreppir Morgunblaðsskeifuna
eftirsóttu ræðst því ekki á dags-
forminu eins og áður tíðkaðist
heldur er hér um að ræða sam-
eiginlega einkunn margra hesta-
tengdra námsgreina yfir allan
námstímann.
Morgunblaðsskeifan hefur
löngum þótt gott veganesti fyrir
unga tamningamenn og nægir að
nefna nöfn eins og Eyjólf Isólfs-
son, Anton Níelsson og Þórarin
Eymundsson sem allir hafa
hampað gripnum. Að þessu sinni
kepptu 22 nemendur hrossabraut-
ar, níu piltar og þrettán stúlkur.
Keppnin var hörð og greinilegt að
nemendur leggja sífellt meiri
metnað í að verða sér úti um góða
hesta fyrir námið. Hópurinn sem
nú þreytti próf er sá fyrsti síðan
hrossaræktarnám var lengt og nú
gefst nemendunum kostur á áfram-
haldandi námi í haust og reiðkenn-
aranámi árið þar á eftir. Kjósi þeir
hinsvegar að láta hér staðar numið
útskrifast þeir með titilinn hest-
afræðingur og leiðbeinandi.
Þótt keppnin væri spennandi
skar Hinrik Þór Sigurðsson, sigur-
vegarinn að þessu sinni, sig
nokkuð úr hópnum og lauk áfang-
anum með hærri einkunn en áður
hefur sést eða 9.17 sem vegið
meðaltal sjö verklegra og tveggja
bóklegra prófa í reiðmennsku.
Hinrik lét ekki þar við sitja og fékk
einnig ásetuverðlaun Félags tamn-
ingamanna. Það var hinsvegar
Bertha Elise Kristiansen frá Nor-
egi sem hlaut Eiðfaxabikarinn sem
er veittur af tímaritinu Eiðfaxa. Sá
bikar er viðurkenning handa þeim
nemanda sem þykir taka öðrum
fram í hirðingu á hesti sínum yfir
veturinn. Valið getur oft á tíðum
verið erfitt og því fer það fram
með leynilegri kosningu nemenda
og starfsmanna.
Þrír efstu nemendur í Skeifu-
keppni Hólaskóla urðu sem hér
segir
Einkunn:
IHinrik Þór Sigurðsson. 9,17
IHeimir Gunnarsson. 8,54
IRagnheiður Þorvaldsdóttir 8,19
Efstu knapar í fjórgangskeppni skeifudagsins á Hólum F.v. Skeifuhafinn
Hinrik Þór Sigurðsson á Glæsi frá Stóra Dal, Ævar Örn Guðjónsson á
Þristi frá Hemlu, Heimir Gunnarsson á Trausta frá Akureyri, Jakob
Lárusson á Donna frá Sperðli, Ólafur Magnússon á Loga frá Hofsstöðum
og loks Ragnheiður Þorvaldsdóttir á Sörla frá Dalbæ.
Færum heiminn heim í hlaó
Nehnefiing lerílapjönustu í dreiýli -
ný tækífæri lyrir (erðapjónustuhændur
Ný tœkifœri og hagrceðing í
ferðfiþjónustu með lijálp Netsins
Nú í byrjun 21. aldarinnar sér
ekki fyrir endann á vexti Netsins,
en fullyrða má að það hafi verið
stærsta skref í tæknilegri fram-
þróun síðasta áratugar. Netið hefur
gefið þeim smærri tækifæri til að
standa jafnfætis eða framar
mörgum hinna stærri í nýtingu
tækifæra. Ferðaþjónusta bænda
ætlar að bæta stöðu sina og sinna
umbjóðendum á markaðnum með
aðstoð Netsins. Það verður notað
til að bæta kynningu, einfalda og
auka samskipti, auka nýtingu og
hagræða í rekstri.
Upphygging markaðssamskipta
Með uppbyggingu öflugrar
veflausnar hyggst Ferðaþjónusta
bænda koma á fót greiðari leið
hugsanlegra ferðalanga að upp-
lýsingum um þá miklu þjónustu
sem stendur til boða á landsbyggð-
inni og tengja þá betur við einstaka
(krðaþjónustuaðila en gert hefur
verið fram til þessa. Ferðaþjónusta
bænda mun með stuðningi ferða-
þjónustu á landsbyggðinni koma
þessum vef á framfæri. Þessi leið
gefur tækifæri til beinna tengsla en
þó áframhaldandi samstarfs við
ferðasaia erlendis. Þannig er reynt
að ná því besta á báðum stöðum án
þess að útiloka nokkuð fyrst um
sinn.
Bókað á netinu
Internetið auðveldar allt upp-
lýsingaflæði og nú færast upp-
lýsingagagnagrunnar í auknum
mæli frá því að vera staðbundnir
yfir í að liggja á Netinu. Flóknar
og dýrar lausnir eru á undanhaldi
og nú hafa skapast tækifæri til
uppsetningar öflugra bókana-
grunna sem geta breytt miklu um
þjónustu við erlenda viðskiptavini
og gefið nýja möguleika á nýtingu.
Avinningur fyrir ferðaþjónustu
á landsbyggðinni felst í betri nýt-
ingu, fleiri sóknarfærum með meiri
kynningu á þjónustu þeirra í kerf-
inu, möguleika á ýmsum tilboðum
og yfirsýn yfir gang mála í rekstr-
inum á hverjum tíma. Upplýsinga-
flæði til viðskiptavina verður hrað-
ara sem aftur skilar sér í meiri sölu
og betri þjónustu. Þá verður FB
með raunstöðu á gistirými klára
strax í upphafi dags sem eykur
vinnuhagræði og bætir þjónustu.
Uppbygging samskiptakerfis
Kerftð gerir ferðaþjónustuaðil-
um á landsbyggðinni mögulegt að
eiga samskipti sín á milli og við
ferðaheildsala. Þessi samskipti
leiða til betri tengsla við markað-
inn, markvissari vöruþróunar og
byggja upp traust á milli manna.
Fjarkennsla er eitt af því sem
tók kipp með tilkomu vefsins og
Ferðaþjónusta bænda gerir sér
góða grein fyrir því að í þekkingu
felst máttur. Því er mikilvægt að
stuðla að áframhaldandi uppbygg-
ingu ferðaþjónustuaðila á lands-
byggðinni með góðu námsfram-
boði og símenntun. í gegnum hina
nýju veflausn mun Ferðaþjónusta
bænda, í samstarfi við Hólaskóla
og erlenda aðila, geta boðið
námskeið sem færu að mestu fram
á Neþnu. Hér er horft til nám-
skeiða í tungumálum, ferðamálum,
þjónustu, markaðsmálum og at-
vinnurekstri.
Innkaupakerfi
Hugmyndir eru um að setja
upp sameiginlegt innkaupakerfi,
þ.e. rafrænt markaðstorg, þannig
að kraftur stærðarinnar nýtist til
lækkunar á aðföngum. Dæmi um
þetta er viðamikið rafrænt
markaðstorg sem ríkisstofnanir eru
að setja upp til að hagræða í sínum
rekstri. Bæði innlendir og erlendir
aðilar gætu átt hlut að máli.
Hvað er búið að gera?
Félag ferðaþjónustubænda hef-
ur komið í notkun upplýsingaveíj-
um undir slóðunum www.sveit.is
,0g www.farinþolidays.i^ Ferða-
þjónusta bænda hefur komið í
gagnið á skrifstofu sinni innan-
hússbókunarkerfi sem er skrifað í
viðskiptahugbúnaðinum Navision
Finiancials.
I febrúar nk. verður sett upp ný
útfærsla af vefnum www.farmholi-
days.is þar sem vægi upplýsinga
verður aukið verulega. Einnig er
áætlað að setja upp nýja útfærslu
af vefnum www.sveit.is í maí. Góð
reynsla er komin á bókunarkerfi
Ferðaþjónustu bænda þannig að nú
er ekkert að vanbúnaði að halda
áfram með þróun verkefnisins.
Nœstu skref
1. Ætlunin er að koma upp
tölvupóstsambandi og aðgangi að
Netinu fyrir bændur sem ekki eru
tengdir (samkvæmt könnun Félags
ferðaþjónustubænda eru 40 af 120
bændum með aðgang að Netinu og
tölvupósti).
2. Verið er að vinna að því að
setja upp útgáfu af Navision
Finiancials bókunarkeifi hjá tíu
bændum fyrir sumarið og öðrum
fimm bændum í haust. Samtímis er
verið að halda námskeið fyrir þá
bændur til að læra á kerfið.
3. í sumar verða gerðar fyrstu
prófanir á vefaðgang bænda að
miðlægum bókunargrunni. Vef-
aðgangurinn er leið minni bænda
að miðlæga grunninum.
Mikilvægast er þó að bændur
komist í samband við Netið og nái
leikni í meðferð þess. Þegar því er
náð geta þeir farið að vinna með
miðlæga bókunargrunninn.
Áætlanir miða við að hann verði
kominn í gagnið að fullu fyrir
sumarið 2002. Þessi áætlun mun
þó miðast við fjármagn sem fæst
til verkefnisins.
Sœvar Skaptason,
framkvœmdastjóri Ferðaþjónustu
bœnda hf.
VH M • fí'ý, k V •> 4 4 * 4 *< A ý V » *
„Ætlunin er að koma upp tölvupóstsambandi og aðgangi að Netinu fyrir
bændur,“ segir í greininni. Frá tölvunámskeiði fyrir
ferðaþjónustubændur.