Bændablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 16
16
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. maí 2001
„Eftir |iví sem maður lærir
meira, þess betur þekkir
maður takmörk sín"
Frá byrjun hefur verið góð
aðsókn í deildina og útskrifaðir
nemendur getið sér gott orð
hérlendis sem erlendis. Nú um
áramót hófu sjö nemendur nám,
fjórir karlmenn og þrjár konur.
Tvær þessara kvenna, Helga Thor-
oddsen frá Þingeyrum í Austur
Húnavatssýslu og Ragnheiður
Samúelsdóttir frá Utnyrðings-
stöðum á Héraði eru umsvifamiklir
hrossabændur og ferðaþjónustu-
aðilar í sínum heimahéruðum. Þær
þurftu því að taka sig upp frá
búskap og tjölskyldu til að setjast á
skólabekk. Helga á tvo uppkomna
syni en Ragnheiður lætur sig ekki
muna um að hafa tæplega tveggja
ára dóttur sína hjá sér í vetur. Eig-
inntenn þeirra sitja að búi heima
fyrir og bíða vorsins ineð óþreyju.
Blaðamanni Bændablaðsins
lék forvitni á að vita hvað það var
sem dró þær stöllur alla leið í
Hólaskóla.
Helga varð fyrst fyrir svörum.
„Það var fyrst og fremst áhugi
á að læra meira unt tamningu og
þjálfun hrossa og forðast þá
stöðnun sem okkur hættir oft að
lenda í ef við bætum ekki við
þekkinguna á lífsleiðinni. Einnig
hvatti mig sú staða sem ég er kom-
in í varðandi hestatengda
ferðaþjónustu, en sífellt fleiri
koma til okkar og þá lendir maður
ósjálfrátt í kennsluhlutverkinu. Því
var sjálfsagt mál að stíga skrefið til
fulls og fá sér réttindi.“
Ragnheiður: „Aðalmarkmiðið
hjá mér er að auka þekkingu og fá
kennararéttindi eftir að hafa
starfað í hestamennsku í mörg ár.
Einnig er í vinnu minni þörf fyrir
fólk sem kann að kenna á hesta. Ég
hef farið á reiðnámskeið hjá
Eyjólfi ísólfssyni og vildi því
fræðast enn meira af honum, en
hann er einstakur í að miðla þekk-
ingu sinni.“
Hvernig er ykkar búskap og
starfsemi háttað?
Ragnheiður: „Við erurn með
um 50 hross í ræktun og temjum
að auki fyrir aðra. Undanfarin sex
ár höfum við verið að byggja upp
hestaferðafyrirtæki sem heitir
Gæðingaferðir ehf. og þar kemur
sér vel sú frábæra náttúra sem
AusturJandið býr yfir. Raunar er
starfsemin fjölbreytt í kringum
hrossin en svo má ekki gleyma 30
kindum í öllum sauðalitunum.“
Helga: „Við sinnum mest
hrossarækt og tamningum og
starfsemi sem fléttast þar inn í, s.s.
námskeiðum og hestatengdri
ferðaþjónustu á sumrin. Okkar eig-
in hross ganga fyrir í tamningu, en
við erum með sex hryssur í fol-
aldseignum. Reyndar stundum við
bæði hjónin einhverja vinnu með
hluta úr árinu og eins höfum við
lagt metnað í að sinna þeim hlunn-
indum sem Þingeyrajörðin býr
yfir.“
En hvernig gengur aö leggja
svo mikla áherslu á hestatengda
ferðaþjónustu í rekstrinum ?
Ragnheiður: „Það gengur
nokkuð vel en kostar jafnframt
rnikinn tíma, útsjónarsemi,
ómælda vinnu og svo náttúrulega
peninga að byrja svona rekstur.
Við erum í mjög góðu samstarfi
við ferðaskrifstofuna Terra Nova
og það hefur hjálpað okkur mikið
hvað markaðssetningu varðar. Ég
tel mikla möguleika vera fyrir
hendi ef vel er að sölumálum
staðið og ekki hvað síst með
traustum persónulegum tengslum
við viðskiptavinina.“
Helga: „Við erum með
sérhæfða þjónustu, sem mest
tengda staðnum, þ.e. gerunt út frá
Þingeyrum þar sem er góð gist-
iaðstaða og frábærar útreiðaleiðir
sem hentar vel þegar fólk kenuir til
þess að leita sér að hestum til
kaups. Eins fáum við töluvert af
fólki sem notar aðstöðuna sem
áfangastað í hestaferðalagi og það
nýjasta er að hestamenn koma með
hross á kerru, dvelja í nokkra daga
og ríða út í nágrenninu.
Ég tek undir það með Röggu
að svona þjónusta er tímafrek og
krefjandi en gefandi um leið og
viðkomandi þarf að hafa áhuga á
að sinna gestum í fullri einlægni
og af sama krafti allan tímann.“
Ragnheiður: „J,á það er einmitt
það sem útlendingar kunna svo vel
að meta, þetta persónulega viðmót
sem umfangið gefur okkur mögu-
leika á að sýna hverjum og einum.
Hólaskóli hóf kennslu á
reiðkennara og þjálfarabraut
veturinn 1996 sem yfirbygg-
ingu á hið hefðbundna hesta-
mennskunám sem verið hefur
við skólann um árabil.
Markmið námsins var að
útskrifa reiðkennara með
fyrstu gráðu reiðkcnnsl-
unámsins svokallaða c-gráðu
og um leið bæta enn frekar
fagmennsku og menntun inn-
an hestamennskunnar. Námið
sjálft hefst um áramót og
stendur fram í júnímánuð. Á
tímabilinu þjálfa nemendur
hross, stunda æfíngakennslu
og sitja marvíslega
kennsluáfanga.
ekki vélræna framkomu sem ekk-
ert skilur eftir.“
Helga: „Hestakosturinn skiptir
einnig verulegu máli. Við eigum
12-15 góða reiðhesta sem við get-
urn látið gesti njóta og þannig
aukið skilning á því hvað sé góður
hestur og byggt upp áhuga á
íslenska hestinum, áhuga sem skil-
ar einhverjum framförum. Þetta
finnst okkur vera mikilvægur
þáttur því að oft hel'ur maður séð
töluvert af hestum ætlaða
ferðafólki sem eru ágæt farartæki
en kannski ekki vel lil þess fallnir
að efla áhuga á hestamennsku."
Ragnheiður. „Okkar starfssemi
miðast við að þeir hestar sem við
bjóðum gestum séu hestar sem við
gætum hugsað okkur að nota sjálf.
Annað er móðgun við gestina.“
Haldið þið að þetta reiðkenn-
ara- og þjálfaranám muni koma að
gagni t starfsemi ykkar?
Ragnheiður: „Það er ekki
spurning. Á mínu svæði fyrir aust-
Á myndinni t.h. er Ragnheiður
en það er Heiga sem situr á á
stóðhestinum Fjalari frá
Bjargshóli. Hópmyndin sýnir
reiðkennanemendur við
æfingakennslu, Helga og
Ragnheiður lengst til hægri.
an vantar fólk sem vill kenna og
þar þarf að fjölga fólki í hesta-
mennsku. Einnig tel ég vera mik-
inn skort á menntuðum reiðkenn-
urum erlendis til að fylgja eftir
sölu og markaðsöflun. Fyrir mig
persónulega gefur þessi tími hér
mér aukið sjálfstraust ásamt betri
vinnubrögðum sem svo skila sér í
markvissari markaðssetningu á því
sem ég er að gera.“
Helga: „Svona nám gerir mann
vonandi að betri reiðmanni og
tamningamanni og gefur um leið
dýpri skilning á því hvað þarf til
að byggja upp gæðing á
sanngjörnum forsendum.
Við sjáum lfka greinilega eftir-
spurn eftir fagmennsku í frístund-
areiðmennsku og það gefur forskot
að hafa farið þessa leið í námi og
náð sér í réttindi. Erlendis er mikið
spurt um hvaða menntun maður
hafi og Hólar eru orðið þekkt nafn
hjá þeim sem lifa og hrærast með
íslenska hestinum.“
Ragnheiður: „Þeim ntun fleiri
kennarar sem verða til og eru færir
urn að kenna á íslenska hestinn og
breiða orðspor hans út. því sterkara
vopn fáum við í baráttunni um
hylli kaupanda gagnvart öðrum
hestakynjum."
Nú er þetta stutt nám, aðeins
jhnm mánuðir, er það nóg ?
Báðar: ,.Að ósekju mætti
lengja námið í eitt ár því að við
höfum fundið og séð að við getum
gert betur með meiri tíma.“
Helga: „I framtíðinni verður
þetta samt ugglaust þannig að ungt
fólk velji sér þessa grein á fyrri
námsstigum og taki lið fyrir lið.
Samt má ekki loka á þann mögu-
leika að fólk með mikla reynslu
geti komið inn í námið á einhverj-
um stigum. Það hefur af mörgu að
taka og getur gert gott nám betra.
Er ekki sagt að eftir því sem maður
læri meira þess betur þekki maður
takmörk sín?“
Ragnheiður. „Sem reiðkennari
vinnur maður með fólki og hjálpar
því að sitja hesta sína betur. Hesta-
menn eru oft gífurlega tilfinning-
aríkir og því er ekki nóg að vera
frábær reiðmaður, mannlegi
þátturinn og skilningur á samvinnu
og samspili manna og hesta sem
og manna á meðal þarf að vera í
lagi svo að ekki fer alltaf saman
góður reiðmaður og góður leið-
beinandi. Slfkt kallar á mikla
æfingu sem þessi stutti tími hér
veitir okkur að sjálfsögðu ekki þó
við fáum góða undirbúnings-
þjálfun.
Ég hefði einnig kosið að fá
meiri kennslu á fleiri hesta og fá
þannig æfingu í þeim atriðum sem
verið er að kenna okkur hér.“
En hvernig hefur ykkur svo
gengið í vetur?
Báðar: „Þetta hefur gengið
svona upp og ofan en þó frekar
vel. Þetta er flókin samsetning þar
sem við erum að læra að verða
betri reiðmenn á sarna tíma og við
vinnurn hieð hestana í ákveðnu
þjálfunarferli og þurfum einnig að
kenna öðru fólki að vinna með sína
hesta.
Samskiptin innan hópsins hafa
líka gengið mjög vel og það hefur
hjálpað mikið til að gera námið
skemmtilegt. Öll okkar hafa unnið
við hross í mörg ár á einn eða ann-
an hátt og allir hafa viss markmið
með náminu.
Allir í hópnum hafa líka mik-
inn áhuga á að miðla og það ríkir
samheldni okkar á milli þó að hver
og einn hafi sínar skoðanir og
komi þeim á framfæri, oft í eld-
heitum umræðum."
Hvernig eru aðstœður hér að
ykkar mati?
Ragnheiður: „Aðstæður eru
frábærar og ég vil sjá hér mark-
vissa uppbyggingu á öllu því sem
tengist íslenska hestinum. Staður-
inn hefur sterka sögu og ég vil sjá
kraftana beinast sameinaða að ein-
um stað. Hér eru nú þegar mann-
virki, stöðug starfsemi og mikil
þekking sem myndar góðan grunn
til að byggja á mjög öflugan skóla
íslenska hestsins."
Helga: „Ég tel skort á reiðhallar-
plássi hamla náminu þar sem
hrossum og nemendum íjölgart
stöðugt og krafa um inniaðstöðu er
forsenda margra þeirra hluta sem
áhersla er lögð á.“
Þar með voiu þær stöllur famar
út í góða veðrið en hver stund er
nýtt til hins ýtrasta. Hross biðu
þjálfunar, námskeiði sem haldið var
á Sauðárkróki var nýlokið og fram-
undan námsferð til Ohio í Band-
aríkjunum á viðamikla hestasýningu
sem ber nafnið Equine Affair.
Bændablaðið þakkar fyrir
spjallið og óskar þessum knáu kon-
um velfamaðar á þeirri braut sem
þær hafa valið sér, að bera hróður
íslenska hestsins sem víðast. / GR
Landbúnaðarvörur - Varahlutir
Drifsköft
Drifskaftsvarahlutir
Hringdu og fáðu sendan
nýja vörulistann okkar
I Kárason
Viðarhöfða 2 -110 Reykjavík
Sími: 567-8400