Tónlistin - 01.03.1942, Qupperneq 23

Tónlistin - 01.03.1942, Qupperneq 23
TÖNLISTIN 35 Tónlistarlíf Reykjavíkur. Hljómleikatími starfsársins '41—'42 hófst meö því, aö Páll ísólfsson hélt af- mælishljómleika sína í Dómkirkjunni. í 25 ár hefir Páll gegnt forystustarfi í íslenzkum tónlistarefnum og flutt marg- ar og merkilegar nýjungar hingað lieim í fásinnið. Hann hefir þar meö hafið starf, sem á eftir að skapa íslenzkri tón- menntun lifvænleg þroskaskilyrði í frámtíðinni. Efnisskráin birti mynd af veiga- miklum áföngum í sögu orgeltónsmíð- anna fram á miðja 18. öld. Verk suð- ræns of norræns anda mættust þar að- greind hjá Frescobaldi og Buxtehude og sameinuð hjá stórmeistaranum Bach. Með krystalskærri raddgreiningu og stílbundinni tilfinningu fyrir formi og innihaldi lék Páll verk þessi og endaði með yfirburðaleikni og guðmóði í „Toccata og fúga“ í d-molll eftir Bach. Rögnvaldur Sigurjónsson hélt sónötu- kvöld i október. Rögnvaldur er nú þegar orðinn ,,fær í flestan sjó“, og virtist hon- um ekki ofviða að leika þrjár langar sónötur og kröfumiklar. Rögnvaldur er mjög yfirlætislaus i leik sínum, svo að stundum nálgast „nonchalance“, en teknisk kunnátta bjargar honum yfir blindsker dauðra punkta. Bezta verkið var sónata Beethovens í Es-dúr. Var það ljúflega leikið (scherzo) og frísk- lega. Að sjálfsögðu verður það ávallt einstaklingsljundið, hve ítarlega ómælis- dýpt tónverksins verður könnuð, en þessir hljómleikar sýndu, að þar er um framför að ræða frá síðasta vetri. inn svarar (Nikisch var orðlagönr fyrir sérslaklega skarpa heyrn): „Sérðu, liann liefir heyrt þetta; og ég lield, að liann sé hara hreykinn af því!“ Margrét Eiríksdóttir lét til sín heyra í október. Lék hún verk eftir Bach, Beethoven og nútima-tónskáld. Eins og svo oft áður, bar Beethoven af í með- ferð Margrétar, enda hæfir þróttmikill ásláttur og dirfð honum einna bezt. Hinsvegar á Margrét til þýðleik og söngrænu í ’ viðkvæmasta pianissimo- leik. — Valið á nútímaverkefnunum tókst ekki sem bezt. Glazounow er ákaf- lega mishittur höfundur, og tilbrigði hans, er Margrét lék, sýna ekki aðal- kosti hans, eins og t. d. fiðlukonsertinn. Sama er að segja um kennara Margrét- ar, Bowen; lag hans var of innihalds- dauft fyrir konsertsal, of „salon“-kennt. Aftur á móti var Medtner af öðrum „skóla“; þar er tilþrifamaður að verki, höfundur, sem kann að íklæða hugsanir sínar því gerfi, sem áheyrilegt er. Dómkirkjukórinn flutti í nóvember dánarmessu (requiem) Cherubinis í dóm- kirkjunni. Kórinn er heldur fáliða, þegar gríjia á til stærri verka,og kom það í ljós, að hann varð í þetta sinn að taka stund- um „fullnærri sér“, og bar þá nokk- uð á misvægi milli raddanna. Þetta verk er mjög aðgengilegt, þegar við fyrstu kynni; það er látlaust og alþýö- legt í góðum skilningi og gjörsneytt list- fræðilegum heilabrotum. Kórinn gerði verkefninu skiþeinsog efnistóðu til,und- ir mynduglegri og formtraustri hand- leiðslu Páls ísólfssonar. Dr. Urbant- schitsch annaðist orgelundirleikinn af vandvirkni og lék auk þess einn prelúdíu og fúgu eftir Bach með smekkvíslegri og hóglátri raddnotkun. Hljómleikar Björns ólafssonar og Árna Kristjánssonar í nóvember, sem voru 7. hljómleikar Tónlistarfélagsins, voru auðugir að stílrænni fjölbreytni, þar sem svo ólikir höfundar, sem César Franck og Beethoven, héldust í hendur. Franck-sónatan sækir höfuðmátt sinn til hljómfræðilegrar leikni, slungin ísætum niundarhljómum og í-sjálfum-sér-hvíl- andi „Tristan-hljómum“. Sjálfrátt form- leysi hennar verður ekki tilfinnanlegt vegna hinnar „rhapsodisku“ fegurðar, og

x

Tónlistin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.