blaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 30
föstudagur, 27. maí 2005 ! blaðið 11 lí Ég var að heyra að eitthvert af þessum enda- lausu Qölmiðlafyrirtækjum ætlaði að stofna blað sem væri í öllum aðalatriðum nákvæmlega eins og Séð og heyrt. Ég hef nú sjálfur varla lesið Séð og heyrt - ég kíki í mesta lagi á myndimar af og til - og brandarasíðuna... en maður hlýtur nú að spyija sig: Er í alvörunni nóg af fréttum af frægu fólki til þess að halda uppi tveimur svona snepl- um? Mér sýnist nú ósköp mikið af þessu þama dóti vera voðalega þimnt eitthvað. Ég veit svo sem ekki neitt um svona mál en ég get ekki ímyndað mér annað en að þeir yrðu að ráða fólk í vinnu hreinlega við að láta sjá sig með röngum aðilum á svona 2-3 vikna fresti - nú, eða halda steggja-, gæsa- og örugglega asna- partí hingað og þangað. Svo þyrfti líka að búa til fleiri „íslenskar stjömur". Ég get ekki annað en hugsað um greyið hann Einar Bárðarson - einn ástsælasta lagahöfund þjóðarinnar - en hann á eftir að þurfa að koma með Polýester og jafnvel Akrýl - nú, eða Spandex - til þess að anna eft- irspurn. En það er eflaust fótur fyrir þessu hjá þeim, blessuðum mönnunum - þessir viðskipta- gaurar vita alltaf hvað þeir em að gera, er það ekki? Tom Cruise gagnrýnir Brooke Shields Tom Cruise talaöi opinskótt um skoðanir sínar á lyijum á dögunum og barst talið að leikkonunni Brooke Shields. „Mér þyk- ir vænt um Brooke Shields og hún er mjög hæfileikarík leikkona en hvað hefur orðið STJÖRNUSPÁ - 27.05.2005 - Hrútur Fylgdu eðlisávísún þinni. Aðstæður breytast til batnaðar þótt þú eigir bágt með að trúa því. Um miðjan dag færðu skyndi- hugdettu sem þú ættir að vinna í. af ferli hennar sem leikkona?" spyr Cru- ise. Shields hefur verið langt niðri vegna þunglyndis og þurft að taka inn þunglynd- islyf. Hún er nú hætt allri lyfjatöku til að geta eignast barn með eiginmanni síniun, Chris Henchy. „Þessi lyf eru hættuleg og ég hef hjálpað mörgum að hætta ónauð- synlegri lyfjatöku. Það er mun eðlilegra að taka inn vítamín til að koma í veg þung- lyndi," segir Cruise en að sögn hefur hann hjálpað mörgu fólki í gegnum Vísindakirkj- una en leikarinn aðhyllist hina umdeildu vísindatrú. Spice Girls að koma saman aftur? Heyrst hefur að hljómsveitin Spice Girls ætli að koma sam- an á Live Aid II tónleikunum í sumar en stúlkumar funduðu á dögunum um komandi tónleika og er vonast eftir fréttatilkynn- ingu frá þeim strax í næstu viku. Þær hafa ekki komið fram síðan órið 2000, eða tveim- ur árum eftir að Geri Halli- well hætti í bandinu, en nú virðast þær vera búnar að gera upp allan ágreining og ætla að koma allar saman ó tónleikunum. Aðrar stjöm- ur sem koma fram á tónleik- unum era meðal annars U2, Elton John, Madonna, Robbie Williams, Coldplay, The Who, Eminem, The Rolling Stones og Oasis. Naut Vertu útsjónarsamt, kæra naut, og þá kemurðu þérfyrrútúr vandræðum. Þú ert hvatvís í dag og ræður ekki við það. Vertu jákvæður og þá fer allt vel. Tvíburi Vertu staðfastur og ekki láta fólk ráðskast með þig. Ertu að hugsa um ferðalög? Af hverju ekki að drífa sig í helgarferð og taka ást- ina í lífi þínu með? Krabbi Skoðanaskipti geta ieitt af sér góða hluti. Vertu viðbúinn rökræðum og hlustaðu á and- stæðinginn, hann gæti haft rétt fyrir sér. Ljón Hugsaðu um aðra í dag. Þú gætir grætt á því. Vinnan hefur tekið sinn toll undanfarið en nú erfarið að róast. Notaðu tækifærið og gerðu eitthvað skemmtilegt. Meyja Vinnuaðstæður eru um það bil að breytast, hvort sem það er nýr yfirmaður, nýtt starfsfólk eða breytt vinnulýs- ing. Þú ættir að reyna að aðlaga vinnuna að þér og þá gengur allt miklu betur. Vog Það sem þérfinnst venjulega skemmti- legt vekur engan áhuga núna. Vertu hugmyndarík og finndu eitthvað stórsniðugt að gera og kemur öðrum á óvart. Sporðdreki Ef einhver náinn þér kemur með hugmynd, segðu þá ekki strax nei. Hugleiddu hugmyndina, hún gæti verið þrælgóð. Bogmaður Þú ert jákvæður í dag og líður vel í marg- menni. Farðu út á meðal fólks og byrjaðu að spjalla. Fjölbreytt og skemmti- legt fólk verður á vegi þínum í dag. Þú átt ekki erfitt með að tjá eigin skoðanir en ef einhver biður þig um ráð þá skaltu hugsa um afleiðing- arnar áður en þú svarar. Steingeit Þú ert orkumikil um þessar mundir. Beindu orkunni í réttan farveg og farðu að gera plön um framtíð- ina. Ef þú hefur einhverja hæfileika þá ættirðu að þróa þá enn frekar. Vatnsberi Nú er nóg komið af varfærnis- legu orðalagi. Þú ert traust og ábyrgðarfull manneskja sem getur sagt það sem í huga þér býr. Fólk hlustar á þig í dag. Fiskur Þér býðst óvænt viðskipta- tækifæri sem hefur átt hug þinn lengi. Gríptu það og ekki eyða tima í óþarfa stress. Hún er ekki bara búin að gifta sig, fá Óskarsverðlaun og ótal góða dóma fyrir leik sinn held- ur er nú einnig búið að bæta henni við á „Hollywood walk of Fame“, sem þykir ansi mik- ill heiður í heimi kvikmynda- leikara. Stjaman, sem kom í fylgd bróður síns í athöfnina, klökknaði er hún tók við stæði sínu á stéttinni og var sýni- lega mjög hamingjusöm með árangurinn. Nýbakaði eigin- maður hennar, sveitasöngvar- inn Kenny Chesney, var upp- tekinn og ekki í fylgd Renee í þetta skipti en hún virtist síð- ur en svo leið yfir því og sýndi öllum sem vildu nýja giftingar- hringinn sinn. Renee Zellweger er yfir sig sæl þessa dagana Auglýsingar k ú ú i HHr blaðiö=

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.