blaðið - 08.06.2005, Page 28

blaðið - 08.06.2005, Page 28
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið dagskn Stutt spjall: Gísli Einarsson Gísli er umsjónarmaður þóttanna Út og suður á Ríkissjónvarpinu þar sem hann flakkar um allt land og hittir áhugavert fólk. Molar Hvernig hefurðu það í dag? ,Ég hef það aldeilis ágætt." Er ekki nauðsynlegt að vera flakkari og mannblendinn í þínu starfi? ,Jú, það sþillir ekki fyrir. í starfi mínu sem blaða- og fréttamaður hef ég vanist þessum þeytingi en þetta vex mér ekki í augum. Ég hef nú gaman af að umgangast fólk og kynnast nýjum viðhorfum. Það er í raun það sem er skemmtilegast við þetta starf; að uppgötva nýja hluti og hrífast með þeim einstaklingum sem eru I þáttunum hjá mér.“ Er þetta ekki skemmti- legt starf? „Svo sannarlega. Þetta er með því skemmtileg- asta sem ég hef gert, ef ekki það skemmtileg- asta. Ég fæ tækifæri til að kynnast landinu og fólkinu á allt annan hátt en sem ferðamaöur. Það sést bersýnilega að við eigum ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt mannlíf. Svo hafa viðtökumar verið góðar, sem er ein- staklega skemmtilegt. Við fáum stöðugt ábendingar um viðmælendur og það er enginn skortur á viðfangsefnum." Hvað er fram undan í þættinum? „Á sunnudaginn heimsækjum við Jón Sveinsson, sem er mikill jaxl og æðabóndi í Reykhólasveit. Hann er líka fyrrum liðsforingi í norska hemum og skiljanlega eru þetta mjög ólík við- fangsefni. Einnig tökum við hús á Ólöfu Hallgrímsdóttur sem er bóndi í ferðaþjón- ustu og mikil áhugakona um íslenska matargerð." Zeta-Jones of falleg Höfundurinn Andrew Lloyd Webber hafnaði Catherine Zeta-Jones af því hann taldi að hún væri of falleg í söngleik sinn. Zeta-Jo- nes fór í leikprufu hjá Webber þegar hún var upprennandi leikkona í kringum 1990. Hún reyndi fyrir sér sem Rose Vibert í söngleikn- um Aspects of Love. Ástæðan fyrir því að Webber hafnaði Zeta-Jo- nes var sú að hún var of falleg og honum fannst hún því ekki henta í hlutverkið þar sem karl- hetjan átti að hætta með kvenhetjunni og enginn maður með réttu ráði myndi hætta með svo guðdómlegri veru sem Catherine Zeta-Jones. Eitthvað fyrir.. Stöð 2 - Strong Medicine 3 (6:22) - kl. 21.55 Vönduð þáttaröð um tvo ólíka en kraft- mikla kvenlækna sem beijast fyrir bættri heilsu kynsystra sinna. Hjá læknunum Dönu og Lu ríkir engin logn- molla en til þeirra leita konur úr öllum þjóðfélagshópum. Whoopi Goldberg er einn framleiðenda Strong Medicine. Skjár 1 - Law and Order - kl. 22 Ný þáttaröð af þessum vinsælu banda- rísku þáttum um störf rannsóknar- lögreglumanna og saksóknara í New York. Rannsókn á dauða skokkara, sem grimmur hundur drap, leiðir lögregluna á spor fanga í Attica, lögmanna hans og hóps sem efnir til hundabardaga. kylfinga Sýn - Tiger Woods (2:3) - kl. 23.15 Tiger Woods er einn besti kylfingur allra tíma. Nafn hans er þegar skrifað gylltu letri í golfsöguna en afrekaskrá Tigers er bæði löng og glæsileg. Hæfi- leikar hans komu snemma í ljós en í þáttaröðinni fá sjónvarpshorfendur að kynnast kappanum frá ýmsum hliðum. Rætt er við fjölskyldu og vini Tigers, sem og þekktar stjömur úr íþróttun- um og skemmtanaheiminum, sem allar eiga það sameiginlegt að dást eindregið að þessum snjalla kylfingi. Af netinu Morgun Síðdegi Kvöld 18:30-21:00 ■O. 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 17.55 Landsleikur í fótbolta Bein útsending frá leik íslands og Möltu í forkeppni heimsmeistaramóts- ins. 19.00 Fréttayfirlit 19.05 Landsleikur í fótbolta Ísland-Malta, seinni hálfleikur. 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.35 Víkingalottó 20.40 Ed (71:83) Framhaldsþættir um ungan lögfræð- ing sem rekur keilusal og sinnir lög- mannsstörfum í Ohio. Aðalhlutverk leika Tom Cavanagh, Julie Bowen, Josh Randall, Jana Marie Hupp og Lesley Boone. U 06.58 ísland í bítið W M 09.00 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir) 09.20 í fínu formi 09.35 Oprah Winfrey 10.20 ísland í bítið 12.20 Neighbours (Nágrannar) 12.45 Ífínuformi 13.00 Sjálfstætt fólk (Flosi Ólafsson) 13.40 Hver lífsins þraut (5:6) (e) 14.10 Að hætti Sigga Hall (6:12) (e) (Ítalía: Umbría) 14.45 Happy Days (Jamie Oliver) (3:4) (Kokkur án klæða) 15.15 Summerland (13:13) (e) 16.00 Barnatími Stöðvar 2 17.53 Neighbours (Nágrannar) 18.18 Island í dag 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 ísland í dag 19.35 Simpsons (Simpson-fjölskyldan) 20.00 Strákarnir Félagarnir halda uppteknum hætti og sprella sem aldrei fyrr. 2005. 20.30 Medium (13:16) (Miðillinn) © 17.55 Cheers - 3. þáttaröð Aðalsöguhetjan er fyrrum hafna- boltastjarnan og bareigandinn Sam Malone, snilldarlega leikinn af Ted Danson. Þátturinn gerist á barnum sjálfum og fylgst er með fastagestum og starfsfólki í gegnum súrt og sætt. 18.20 Brúðkaupsþátturinn Já - Ný þáttaröð (e) 19.15 Þak yfir höfuðið (e) 19.30 Þak yfir höfuðið 19.45 Sjáumst með Silvíu Nótt - NÝTT! (e) 20.10 Jack & Bobby 07.00 Olíssport CTW77 07.30 Olíssport 08.00 Olíssport 08.30 Olíssport 18.45 Olíssport 19.15 David Letterman 20.00 HM 2006 (Finnland-Holland) Bein útsending frá leik Finnlands og Hollands í 1. riöli. Hollendingar unnu fyrri leik þjóðanna, 3-1 og berjast við Tékka um sigurinn í riðlinum. WÆ3Œ1 °6-15 The Master of Disguise (Meistari dular- gervanna) 08.00 Since You Have Been Gone (Bekkjarmótið) 10.00 Uncle Buck (Buck frændi) 12.00 Trail of the Pink Panther (Á slóð Bleika pardusins) 14.00 The Master of Disguise (Meistari dulargervanna) 16:00 Since You Have Been Gone (Bekkjarmótið) 18.00 Uncle Buck (Buck frændi) 20.00 Trail of the Pink Panther (Á slóð Bleika pardusins) Þegar ómetanlegum demanti er stolið er auðvitað kallað á Clouseau. Þetta er verkefni sem enginn ræður við nema hann. Byrjunin lofar samt ekki góðu því þegar Clouseau heldur af stað til að leysa málið hverfur flugvélin hans. 07,00 Meiri músik 20.00 Game TV 20.30 Sjáðu í Sjáðu er fjallað um nýjustu kvik- myndirnar og þær mest spennandi sem eru í bíó. , .. ,-r .. Molar Áðan á Skjá einum sá ég nýjan sjón- varpsþátt sem heitir Sjáumst með Silvíu Nótt. Margir hafa sagt að hér sé á ferðinni sé mjög fynd- inn þáttur, þarsem loksins einnhver geri gnn að öllum egósent- rísku þáttastjórnend- unum sem er alveg sama um allt nema að koma vel f ram í sjónvarpinu og um leið öllum þessum djammgelgjum sem ofsækja miðbæinn. Djö, sko, það fólk veð- ur ógeðslega í villu. Því að Silvía Nótt er svalasta mann- eskja sem til er. Hún er sönnun þess að eitís-tískan er kúl og komin aftur og allir eiga að vera með grifflur eins og hún. Með hennar aðstoð hef ég lært ógeðslega mikið, sko, og ég er glaður, enda vissi ég ekki að Alþingi væri svona rosalega töff eða að Biggi í Maus ætti ekki bíl. Og hvern hefði grunað að það væri bara svona „ógeðslega fatlað og Ijótt fólk“ I Kolaport- inu sem selur dótið sitt (sem er kannski stolið?). Alltént, ef ég væri kona, þá væri ég Silvía Nótt. Endilega sjáið þennan þátt í endursýningu. http://www.blog.central.is/flog Það fór eitt eftirmiðdegi í það að horfa á Pimp My Ride á MTV. Þessir þættir eru líka sýndir á frónversku sjónvarpsstöð- inni Skjár einn. Þannig var að ég fékk hugmynd um að tala við þá á Skjá einum um að gera íslenska útgáfu af þættinum. Þama er fyrir þá sem ekki hafa séð þetta svartlitaður rapþari sem kynnir þetta og breytir bílum úr druslum í alls konar myndir. Þess vegna datt mér I hug að Gylfi Ægis gæti kynnt þetta og byrjað á galloþþern- um mínum, málað hann í Liverpool-litun- um og sett örninn á húddið. Komið fyrir bar í skottinu og svo má áfram telja. Síðan endar þátturinn á að ég segi takk fyrir að manga bílinn minn. http://www.blog.central.is/kjellinn Lindsay Lohan of þokka- full Hópur sérfræðinga hefur unnið við það undanfarið að minnka bijóst Lindsay Lohan í nýjustu mynd hennar, Herbie. Sérfræðingarnir hafa þurft að fara yfir hvert einasta atriði og laga barm unglingastj örnunn- ar vinsælu. Yfirmönnum fannst þessi aðferð nauðsynleg þar sem þeir ótt- uðust að persóna Lindsay, Maggie Pejdon, væri of þokkafull fyrir fjöl- skyldumynd. Auk þess höfðu þeim bor- ist nokkrar kvart- anir frá foreldrum við prufusýningar. Sérfræðingunum var sagt að athuga sérstaklega atriði þar sem stjaman hoppar upp og nið- ur. Að sama skapi voru hálsmál hækk- uð á einstaka stað. , jÉg skil ekki hvern- ig Renee Zellweger fitnaði og grenntist stöðugt fyrir mynd sína, Bridget Jones. Þetta er ekk- ert gaman. Komið með tölvugæjana," sagði Lindsay við þetta tækifæri.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.