blaðið - 14.07.2005, Qupperneq 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616
Hiveute I
Þráðlaust internet
4GB niðurhal
8Mb tenging
3.990
ÁMÁNUÐI*
Sumarleikur
blaðsins
slær í
- bls. 11
Hvernig á að
Með hæstu einkunn í fatahönnun
gefur
góð ráð
Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is
Potter á leiö
48. TBL . 1. ÁRC.
ÓKEYPIS
til Islands
blaðið
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Sími 510-3700
bladid@vbl.is
ISSN 1670-5947
FRJALST OG OHAÐ
FIMMTUDAGUR, 14. JULI. 2005
Breyttar forsendur hjá íslenskri erfðargreiningu
íslenski piparsveinninn
Nær öll bílalán
í skilum
- bls. 2
I
!
íslenskar kartöflur
komnar og farnar
- bls. 2
Lególand selt
- bls. 10
Siggi stormur
spáir í veðrið
- bls. 6
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
73,0
55,6
44,4
16,0
Samkv. fjölmiðlakönnun Galiup Júnl 2005
Ekkert varð af því að tugir
starfa flyttust til Akureyrar
í desember árið 2000 skrifuðu íslensk
Erfðagreining (ÍE) og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) undir
samning um viðamikil samstarfs- og
þróunarverkefni sem byggja átti upp
í tengslum við starfsemi FSA. Gert
var ráð fyrir að ÍE myndi setja upp
hugbúnaðardeild á Akureyri sem átti
að fást við að þróa lausnir á sviði upp-
lýsingatækni fyrir heilbrigðisþjón-
ustu. Vegna samningsins var gert
ráð fyrir að tugir nýrra starfa myndu
skapast á Akureyri og var mikið fjall-
að um málið á sínum tíma. Hópur fyr-
irmenna mætti til Akureyrar þegar
skrifað var undir samninginn, meðal
annarra Davíð Oddson, þáverandi
forsætisráðherra og Halldór Ásgríms-
son, þáverandi utanríkisráðherra og
mikið var fjallað um málið í fjolmiðl-
um.
Ekkert bólar á störfunum
Nú, tæpum fimm árum síðar hefur
enn ekkert bólað á umræddum störf-
um. Að sögn Halldórs Jónssonar, for-
stjóra FSA gekk sáralítið eftir af því
sem í samningnum var.
,J>að breyttist ýmislegt en það sem
hafði mest áhrif var að gagnagrunn-
urinn víðfrægi varð aldrei til“. Byggja
átti 1.600 fm. húsnæði nyrðra í tengsl-
um við verkefnið og var kostnaður við
það áætlaður um 250 milljónir króna.
Halldór viðurkennir að það hafi orðið
vonbrigði að ekkert yrði af verkefn-
inu enda hefðu fulltrúar FSA komið
að verkefninu af fullum heilindum.
„Það er ekki hægt að segja að ÍE
hafi hlaupið frá verkefninu - það sem
gerðist var einfaldlega að forsendur
breyttust. Rétt er þó að taka ffam að
hluti af þessum verkefnum hafa lifað
eftir öðrum formerkjum. Þannig er
í dag m.a. unnið að raffænni sjúkra-
skár og hluti af þeirri vinnu fer fram
hér nyrðra. Það hafa því einhver störf
orðið til í framhaldi af þessum samn-
ingi, en aldrei í því umfangi sem von-
ir stóðu til” sagði Halldór að lokum.
365 Ijósvakamiðlar:
Ný fréttastöð í smíðum
365 ljósvakamiðlar hyggjast hrinda
úr vör nýrri sjónvarpsstöð í haust
og ber hún vinnuheitið Fréttastöðin.
Dagskrárefni stöðvarinnar á - eins
og vinnuheitið ber með sér - fyrst og
ffemst að vera fréttir, innlendar sem
erlendar, í bland við viðtöl, ff éttaskýr-
ingar og umræðuþætti.
Það er Róbert Marshall, sem stýr-
ir verkefninu af hálfu 365 miðla, en
hann vildi ekki tjá sig um hina nýju
VERSLUN • VORUHUS
stöð þegar Blaðið leitaði til hans.
Blaðið hefur heimildir fyrir því að
dagskrárvinna stöðvarinnar sé kom-
in á góðan rekspöl, en það er ffétta-
maðurinn Þór Jónsson, sem annast
hana.
í fjölmiðlaheiminum þykja hug-
myndir þessar mikil dirfska, enda
sjónvarpsrekstur dýrt fyrirtæki og
fféttaefni ffemst í flokki kostnaðar-
samra dagskrárliða. Fréttastöðin
mun á hinn bóginn nýta sér nýjustu
tækni hvað varðar tökur, klippingar
og útsendingar og á þannig að halda
starfsfólki í lágmarki. Mestu nýmæl-
in felast þó sjálfsagt í því að til stend-
ur að láta blaða- og fféttamenn 365
miðlanna klippa fréttimar sjálfir
og hafa námskeið staðið yfir undan-
fama daga. Að jafnaði er gert ráð
fýrir að um 30 manns vinni að ffétta-
ffamleiðslu.
STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is
Hundruð
vilja komast
í þáttinn
Undanfarið hefur Skjár einn auglýst
grimmt eftir ungum konum og körl-.
um til að taka þátt í nýrri veruleika-
þáttaröð um íslenska „bachelorinn"
- sem þýða má íslenski piparsveinn-
inn. Það verður Saga Film sem ffam-
leiðir þættina fyrir Skjá einn og að
sögn Maríönnu Friðjónsdóttur hjá
Saga film hafa þegar hundruð ein-
staklinga sett sig í samband og sýnt
því áhuga að komast í þáttinn.
Nokkrir piparsveinar
komast í forval
Einn piparsveinn og tuttugu og fimm
piparmeyjar munu taka þátt í hinum
nýja þætti. Reyndar mun fara fram
forval á piparsveininum og er gert
ráð fyrir að velja þrjá til íjóra úr um-
sækjendahópnum og úr þeim hópi
mun þjóðin fá að velja þann álitleg-
asta.
„Við erum þegar komin með fólk
sem við reiknum með að komist í
lokaúrtak af báðum kynjum" segir
Maríanna. Hún vil þó taka fram að
ffestur til að skrá sig rennur ekki út
fyrr en um miðjan ágúst þannig að
óhugasamir hafa ennþá nægan tíma
til að koma sér á framfæri.
„Við erum ánægð með einlægnina
og alvöruna hjá þeim sem hafa sótt
um. Við bjuggumst alveg eins við að
fólk myndi senda inn umsóknir í ein-
hverju gríni, en það hefur lítið verið
um það fram að þessu“ segir Mar-
íanna.
Ekki eins og ameríski þátturinn
Hún vill ennfremur taka fram að þó
fyrirmyndarinnar sé að leita í amer-
íska þættinum „The bachelor" verði
íslenska útgáfan nokkuð ffábrugðin.
„Við erum að vinna í því að gera
þáttinn meira að ævintýralegri upp-
lifun en að einhverju rifrildi milli
stelpnanna sem taka þátt“ segir Mar-
íanna, en þar vitnar hún í amerísku
útgáfuna sem oft á tíðum er mjög
dramatísk og gengur mikið út á inn-
byrðis átök milli þátttakenda.
„í staðinn fyrir það viljum við búa
til skemmtilegar ferðir og upplifanir
fyrir hópinn þar sem keppnin er í fyr-
irrúmi en rómantíkin er alltaf til stað-
ar“ segir Maríanna að lokum.