blaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 4
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
Ungur ökumaöur tekinn
Á tvöföldum
hámarkshraða
innanbæjar
Rúmlega tvítugur maður var mæld-
ur á ofsahraða á nýjum kafla Hring-
brautar í fyrrakvöld. Mældist hann á
164 kílómetra hraða en það er rúm-
lega tvöfalt hraðar en leyfilegt er á
þessum stað. í raun keyrði maðurinn
það hratt að refsilöggjöf nær ekki yfir
brot hans svo refsingin verður ákveð-
in fyrir dómstólum. Búast má við því
að sektin verði rúmar hundrað þús-
und krónur, auk þess sem viðkom-
andi var sviptur ökuleyfi á staðnum.
Viðurlög verði endurskoðuð
í fyrra var svokallaður ofsaakstur
þriðja algengasta orsök banaslysa.
Rannsóknamefnd umferðarslysa
hefur beint þeirri ábendingu til sam-
gönguráðuneytisins og dómsmála-
ráðuneytisins að sérstök rannsókn
fari fram á viðurlögum við umferð-
arlagabrotum vegna ofsaaksturs á
undanfómum 5 árum og spurt hvort
ekki sé tilefni til endurskoðunar að
þessu leyti á umferðarlögum og reglu-
gerð um sektir og öðmm viðurlögum
vegna brota á umferðarlögum. ■
Listahátíð í Reykjavík:
Ungt ffólk
hlynntara
Ungu fólki líkar betur við þá hugmynd
að Listahátíð í Reykjavík sé haldin
árlega heldur en þeim sem eldri eru.
Þá er hálaunafólk og langskólageng-
ið hlynntara Listahátíðinni. Þetta
kemur fram í Gallup könnun sem
Listahátíð Reykjavíkur lét gera fyrir
sig en í ár var hátíðin í fyrsta skipti
haldin á oddaári. Greinilega má sjá
að menntun skiptir máli þegar spurt
er hvort fólk sé hlynnt því að hátíðin
sé haldin árlega. Munaði þar tæpum
15% og er háskólagengið fólk mjög
hlynnt árlegri hátíð í rúmlega 42%
tilfella. Þá er greinilegt samhengi
milli þess að eftir því sem fólk eldist
því minni áhuga hefur það á hátíð-
inni. Tæp 50% aðspurðra á aldrinum
16 - 24 ára er mjög hlynnt hátíðinni
meðan tæp 28% þeirra sem em á ald-
ursbilinu 55 -75 ára er sama sinnis.
Hreindýraveiðar hefjast á morgun
Aðeins helmingur
umsækjenda fær leyfi
Veiðitímabil hreindýra hefst á morg-
un, fimm dögum fyrr en venjulega.
Fyrstu dagana er þó aðeins heim-
ilt að veiða tarfa sem eru meira en
tveggja vetra, en þetta fyrirkomulag
stendur fram til 1. ágúst. Ennfremur
er til að byrja með ekki leyfilegt að
veiða tarfa sem em í fylgd með kúm
og passa skal að veiðar trufli ekki kýr
og kálfa fram að mánaðarmótum.
Þetta árið verður leyfilegt að veiða
alls 800 dýr, 392 tarfa og 408 kýr.
Þetta er sami heildarfjöldi dýra og í
fyrra, en samsetningin hefur breyst
nokkuð, því í fyrra mátti veiða 368
tarfa á móti 432 kúm.
Ekki veiði fátæka mannsins
Hreindýraveiði hefur breyst mjög
mikið undanfarin ár, frá því að hana
stunduðu nær eingöngu bændur á
austurlandi. Þeir áttu venjulega jarð-
ir sem lágu að hreindýraslóðum eða
þá að hreindýrin gengu hreinlega á
jörðum þeirra. í dag getur hinsvegar
hver sem er sótt um veiðileyfi á hrein-
dýr, svo lengi sem hann er með
byssuleyfí og gilt veiðikort
fyrir hreindýraveið-
ar. Mikil ásókn er í
veiðarnar, og hefur
hún sífellt verið
að aukast. Þann-
ig sóttu um 1600
manns um þau
800 leyfi sem út-
hlutað var þetta
árið, sem þýðir
að annar hvor um-
sækjandi hefur ver
Aðeins 23 erlendir veiðimenn
Ásókn erlendra veiðimanna í hrein-
dýraveiði hér á landi hefur lítið breyst
undanfarin ár. Á þessu ári var 23 er-
lendum veiðimönnum úthlutað leyfi,
en alls sóttu 30 um. Meirihluti veiði-
manna er nú sem áður karlmenn, en
þó slæðast alltaf nokkrar konur með.
Að sögn Jóhanns G. Gunnarsson-
ar, starfsmanns Hreindýraráðs
leggst komandi veiðitíma-
bil vel í menn eystra.
„Það sem skiptir
kannski mestu máli
með veiðarnar er
aðfágottveður og
því krossa menn
fingur og biðja til
veðurguðanna um
hagstætt veður á
tímabilinu" sagði
Jóhann að lokum. ■
ið í hópi hinna heppnu. Umrædd
leyfi eru mjög misdýr, bæði eftir því
hvort veiðimaður vill skjóta kú eða
tarf - en einnig skiptir miklu máli á
hvaða svæði á að skjóta dýrið. Ódýr-
asta leyfi á kú, þ.e. á ódýrasta svæð-
inu, kostar 35 þúsund krónur en það
dýrasta 55 þúsund. Mun dýrara er að
skjóta tarfa. Þar kostar ódýrasta leyf-
ið 65 þúsund krónur, en það dýrasta
110 þúsund.
Símasalan
Almenningur ennþá inni
Síminn
Sex fjárfesta-
hópar eru
eftir í kapp-
hlaupinu um
Símann samkvæmt Viðskiptablaðinu
í gær. Áður hafði verið sagt frá því
að einkavæðinganefnd hefði hleypt
tólf af þeim fjórtán aðilum eða fjár-
festingahópum sem lögðu upphaflega
fram óbindandi tilboð í Símann í
gegn, og veitti þeim í framhaldi að-
gang að ítarlegum upplýsingum um
félagið. Einn af þessum hópum var
fjárfestingahópur í kringum Almenn-
ing, sem Agnes Bragadóttir, blaða-
maður, fór fyrir. í samtali við Blaðið í
gær staðfesti Agnes að sá hópur væri
ennþá inni í myndinni með kaup Sím-
ans.
Möguleikar Almennings
að aukast?
Draga má þá ályktun að ef áður-
nefndar upplýsingar Viðskiptablaðs-
ins eru réttar þá hafi möguleikar
Almennings að hreppa hnossið auk-
ist verulega. Almenningur skilað á
sínum tíma tilboði í 98,8% hlut ríkis-
ins í Símanum, í samvinnu við Burð-
arás, KEA, Ólaf Jóhann Ólafsson,
Talsímafélagið ehf og Tryggingamið-
stöðina. Almenningur ehf. mun eiga
allt að 30% í tilboðinu og verður öll-
um íslendingum gefinn kostur á að
kaupa þann hlut. Samkvæmt tilboð-
inu verður enginn fjárfestanna með
meira en 35% hlut eftir að 30% hafa
verið seld til almennings á mark-
aði. ■
HEIT SUMARLESNING!
Rigning í nóvember eftir Auði Ólafsdóttur
segirfrá óvæntu ferðalagi um skrýtið ísland.
Bókin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda:
„Frábærlega stíluð, stælalaus, selðandi, spennandi,
dularfull, öðruvísi, fyndin, áhrifamikil, erótísk, falleg,
ögrandi... gerir mann hamingjusaman. “
„einnathyglisverðastiíslenskihöfundursem
ég heflesið lengi." (F.B. Mbl.)
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2004
Tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum
í febrúar2005
Sérstakt sumartilboð: 1.690 krónur
Kver með 47 skáldsögulegum mataruppskriftum og einni prjónauppskrift fylgir.
www.salkaforlag.is
- forlag mcd sál
Salka
Karlmaður dæmdur í héraðsdómi Vestfjarða
18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun
Karlmaður um fertugt var í gær
dæmdur til 18 mánaða fangelsisvist-
ar fyrir nauðgun. Fómarlamb manns-
ins var átján ára þegar brotið átti sér
stað í júní í fyrra. Frá því nauðgunin
átti sér stað hefur stúlkan sagt að
henni finnist hún skítug og aldrei
hrein, sama hversu mikið hún hafi
þvegið sér. Hún hafi átt erfitt með að
treysta fólki eftir atburðinn, sérstak-
lega strákum. Þá hafi hún átt erfitt
með svefn.
Vaknaði við verknaðinn
Stúlkan var ætíð samkvæm sjálfri
sér fyrir dómi en hún sagðist hafa
vaknað við að nauðgarinn lægi ofan
á sér og hafði við hana samfarir. Hún
hafi þá verið milli svefns og vöku og
varla áttað sig á að þetta væri raun-
verulegt. Þegar hún vaknaði var hún
komin úr pilsi og nærbuxum en þegar
hún sofnaði var hún fullklædd. Hinn
dæmdi hafi „lokið sér af“ og hún varla
vöknuð til fulls fyrr en hann hafi ver-
ið kominn ofan af henni og legið við
hlið hennar. Stúlkan var mjög ölvuð
þegar brotið átti sér stað en við blóð-
mælingu fljótlega eftir nauðgunina
mældist áfengismagn 0,40 prómill.
Einn skilaði séráliti
Nauðgarinn neitaði sök fyrir dómi og
sagði að stúlkan hafi verið vel vak-
andi þegar nauðgunin átti sér stað.
Framburður hans greinir þó á við
framburð allra annarra sem að mál-
inu koma. Þá þykir framburður stúlk-
unnar trúverðugur auk þess sem hún
beri augljós merki þess að hún hafi
orðið fyrir áfalli. Hinn dæmdi þarf að
sitja átján mánuði í fangelsi auk þess
sem hann þarf að greiða stúlkunni
800 þúsund krónur auk vaxta, sem
og allan sakarkostnað. Einn dómari
skilaði séráliti en honum þótti ekki
slegið fóstu hvort vitni hefðu sagt
rétt frá.
Landspítali-Háskólasjúkrahús:
Starfsmenn verða
fyrir ofbeldi
Tilkynnt var um 200 atvik í fyrra þar
sem starfsmenn Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúss voru þolendur ofbeldis.
Langflestar tilkynningamar bárust
frá geðsviði eða 187 sem jafhgildir
93%. í skýrslu starfsmannastjóra
segir að á undanfómum árum hafi
verið lögð áhersla á að skrá ofbeldi
gegn starfsmönnum á geðsviði og út-
skýri það hluta þess munar sem er á
geðsviði og öðmm sviðum. Þá vekur
athygli að tilkynnt var um þrjú tilvik
frá skrifstofu tækni og eigna.
Alls bárust 307 tilkynningar um
slys eða atvik til skrifstofu starfs-
mannamála spítalans í fyrra og er
það fækkun um 64 frá árinu 2003.
Ófaglærðir starfsmenn sem starfa í
umönmm lentu oftast í slysum og öðr-
um óhöppum eða 65 sinnum. Þá lentu
konur mun meira í þessum atvikum
en það skýrist líklegast af því að kon-
ur em 79% starfsmanna spítalans. ■
OgVodafone:
Verðhækkun
hjá sumum
Gjaldskrár-
breyting var
gerð á þjón-
ustunni Einn
sími hjá Og-
vodafone. Á
heimasíðu félagsins segir að hún sé
gerð til þess að samræma verð vegna
heimasíma en sú samræming verður
til þess að mánaðargjald hækkar úr
1.200 krónum í 1.340 krónur, mín-
útugjald hækkar úr 10 krónum í 13,9
krónur og upphafsgjald hvers sím-
tals hækkar um 0,25 krónur í 3,75.
Mínútugjald í fastlínusíma verður
eftir sem áður 1,50 krónur.
Ódýrara til útlanda
Viðskiptavinum OgVodafone býðst
hins vegar að nota nýja þjónustu sem
nefnist 1010. Með henni geta þeir
hringt ódýrara til útlanda með því að
velja 1010 í stað 00 þegar hringt er.
Samkvæmt tilkynningu OgVodafone
geta notendur fengið 16-40% afslátt
af almennri verðskrá með því að nýta
sér þjónustuna. Hún gildir bæði fyrir
heimasíma sem og gsm-síma í áskrift
hjá félaginu en ekki fyrir Frelsi.
Samtímis þessu ákvað OgVodafone
að lækka verð enn frekar í tveimur
flokkum. í langflestum tilfellum er
um að ræða lækkun á verði símtala
til landa utan Evrópu og Norður-Am-
eríku en verð þangað helst óbreytt.
Sú breyting gildir fyrir alla viðskipta-
vini OgVodafone.
SPRON býður
50% afslátt
af gengismun
Sökum þess að SPRON Verðbréf
hafa bætt fjórum verðbréfasjóðum
við þann sem þegar er boðið upp á,
hefur félagið ákveðið að bjóða þeim
viðskiptavinum sem kaupa í sjóðun-
um 50% afslátt af gengismun til 1.
september. Nýju sjóðirnir eru stuttur
og langur skuldabréfasjóður, íslensk-
ur hlutabréfasjóður og Alþjóðlegur
hlutabréfasjóður. Koma þeir til við-
bótar við Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa
sem starfræktur hefur verið í fjögur
ár.
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITABORÐINU
Sóltún 3 Bæjarlind 14-16
S 562 9060 S 564 6111