blaðið - 14.07.2005, Síða 8
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
24 börn deyja
í sprengjuárás
íröksk fjölskylda harmi lostin vegna dauða bams í bílsprengjunni í gær.
bjornbragi@vbl.is
Minnst 26 írakar, nær eingöngu
börn, létust þegar bílsprengja sprakk
í suðausturhluta Bagdad í gær.
Einnig lést bandarískur hermaður í
sprengingunni og þrír aðrir hermenn
særðust. Bíl, hlöðnum sprengiefni,
var ekið upp að bifreið bandaríska
hersins og sprengdur. Bandarískir
hermenn voru að dreifa sælgæti til
barna og fógnuðu með íbúum al-Jed-
idah svæðisins vegna nýopnaðrar
vatnsvinnslu á svæðinu.
Sprengingin, sem var svo kröft-
ug að nærliggjandi hús eyðilögðust,
særði minnst 25, marga hveija al-
varlega. Voru þeir ásamt þeim látnu
fluttir á Kindi-sjúkrahúsið sem er
staðsett ekki fjarri árásarstaðnum.
Þar voru og komin hundruð flöl-
skyldna og ættingja sem ráfuðu um
blóði drifna spítalaganga í leit að upp-
lýsingum um ástvini sína sem lentu í
sprengingunni.
Abu Hamed, sem missti 12 ára
son sinn í sprengingunni, sagði við
AFP-fréttastofuna að hann hafi ver-
ið á heimili sínu þegar hann heyrði
sprenginguna. „Ég hljóp út til að
reyna að finna son minn, en ég fann
bara hjóhð hans“, sagði Hamed.
Hann sagðist hafa fundið son sinn í
líkhúsinu á Kindi-spítalanum, þar
sem að sögn talsmanns sjúkrahúss-
ins voru flutt lík 24 barna í gær. „Ég
gat aðeins þekkt höfuðið hans. Aðrar
líkamsleifar voru algerlega brunnar",
sagði Hamed.
Á al-Jedidah svæðinu, þar sem
sprengjan sprakk í gær, búa súnní-
og sjía-múslimar í bland við kristna.
í september í fyrra sprakk önnur
sprengja á sömu slóðum en þá lágu
34 böm eftir í valnum. Hundruð lr-
aka hafa látið lífið í árásum uppreisn-
armanna síðan sjía-múslimastjómin
tók við völdum í Bagdad fyrr á þessu
ári.
VIÐ
HÖFUM
ALLAR
GERÐIR
BÍLA
5-9 MANNA
OTRULEGT VERÐ!
AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHÓTEL
VIÐ GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI
GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
....... i KB .J
Fjölskylda árásar-
mannsins eyðilögð
bjornbragi@vbl.is
Bashir Ahmed, frændi Shehzad Tan-
weer, 22 ára gamals manns sem sagð-
ur er einn þeirra sem frömdu hryðju-
verkaárásirnar í Lundúnum í síðustu
viku, hefur tjáð sig við fjölmiðla.
Segir hann fjölskyldu sína eyðilagða
eftir fréttirnar og ekki geta trúað því
að Tanweerhafimögulegagetaðstað-
ið fyrir sprengjunum. „Það var ekki
hann. Það hljóta að hafa verið öfl að
baki hans“, sagði Ahmed. Aðspurður
hvemig honum þætti að heyra að
frændi sinn hefði að öllum líkindum
ekki verið fómarlamb heldur gerandi
sagði Ahmed niðurbrotinn: „Við höf-
um misst allt sem við eigum."
Ahmed greindi frá því að Tanweer
hefði farið til Pakistan fyrir tveimur
mánuðum að læra trúarbrögð.
Hann hafi svo séð hann
síðast degi áður en
árásimar vom gerð-
ar. A.m.k. þrír
árásarmannanna
eru taldir vera
breskir menn af
pakistönskum
uppruna. Fjórði
árásarmaðurinn
hefur ekki enn ver-
ið nafngreindur af
lögreglu en heimild-
armenn segja að vitað
sé hver hann er. Lögregla
leitar nú fimmta manns, sem tal-
inn er hafa skipulagt árásirnar og tel-
ur ekki ólíklegt að sá sem það gerði
sé sá hinn sami og skipulagði hryðju-
verkin í Madrid á síðasta ári.
Bashir Ahmed, frændi eins hinna grunuðu, tjáir sig við fjölmiðla í gær.
Ekki á vegum íslam
Tony Blair forsæt-
isráðherra vill nú
taka upp ný lög til
að meðhöndla öfga-
sinna og vill sam-
stöðu heimsins
alls „gegn hinni
illu hugmynda-
fræði á bakvið
sprengjuárásirnar
í höfuðborginni“. Þá
hefur Blair sagt að hin
„hófsama og réttláta rödd í s-
lams“ þurfi að koma fram. Lögregl-
an nafngreindi í gær 6 fórnarlömb í
viðbót og hafa því 11 af þeim 52 sem
létust í árásunum verið nafngreind-
ir. Þó eru, eins og áður hefur verið
greint frá, hundruð annarra særðir
og nokkrir í lífshættu.
Iqbal Sacranie, fulltrúi í Múslima-
ráði Bretlands, sagði ráðið hafa tek-
ið fréttunum um árásarmennina af
„angist, hneykslun og skelfingu".
„Það lítur út fyrir að æska okkar hafi
átt þátt í hinum hræðilegu árásum
gegn saklausu fólki í síðustu viku“,
sagði Sacranie. „Ekkert í íslam gæti
nokkurn tímann réttlætt hinar illu
gjörðir árásarmannanna."
Auglýsingadeilrl 510-3744
blaðið=
SUMARIÐ ER KOMIÐ!
VAPONA FLUGNA-
& GEITUNGAVÖRURNAR
SÖLUAÐILAR
OLÍS • ELLINGSEN • FJARÐARKAUP • HAGKAUP •
BYKO • BYGGT OG BÚIÐ • HÚSASMIÐJAN • ESSO •
SAMKAUP • SHELL • KAUPFÉLAG STEINGRÍMSFJARÐAR •
ÞÍN VERSLUN • HLÍÐARKAUP SKAGAFIRÐI • HÓTEL
SKAFTAFELL • VERSLUNIN BRYNJA • VALBERG •
NETTÓ - 10-11 • SÖLUSKÁLINN SKAGASTRÖND •
VERSLUNIN KASSINN ÓLAFSVÍK
Dreifing: OLÍS Sími: 515-11