blaðið - 14.07.2005, Síða 10
naoðr btof
SUBARU IMPREZA 4WD
Nýskr. 06.2003, 2000cc,
5 dyra, sjsk., ekinn 47 þ.
Grjóthálsi 1
b i I a I a n d. i s
Fínir
bílar
Gerðu góð kaup!
RENAULT MEGANE II
Nýskr. 07.2004 1600cc,
5 dyra, bsk., ekinn 13 þ.
HYUNDAITRAJET
Nýskr. 02.2003 2000cc,
4 dyra, sjsk., ekinn 75 þ.
BMW 120i
jNýskr. 12.2004 2000cc,
|4 dyra, sjsk., ekinn 1 þ.
LAND ROVER RANGE ROVER
Nýskr. 10.2000, 4600cc,
5 dyra, sjsk., ekinn 68 þ.
BMW 318i
Nýskr. 06.2003, 2000 cc.
4 dyra, sjsk., ekinn 37 þ.
Opið mán-fös 10-18
575 1230
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
Lególand selt
bjornbragi@vbl.is
Danska kubbafyrirtækið Legó hefur
selt yfirráð yfir Lególand-skemmti-
garðinum til bandaríska fjárfestinga-
fyrirtækisins Blackstone Group fyrir
tæpa 30 milljarða íslenskra króna.
Blackstone mun setja á stofh nýtt
fyrirtæki til að reka Lególand sem og
þijá aðra skemmtigarða sem fyrirtæk-
ið keypti af breska fyrirtækinu Merlin
í maí. Nýja fyrirtækið mun starfa und-
ir nafninu Merlin Entertainments og
mun Blackstone eiga 70% hlut í því
en 30% verða í eigu Legó og eigenda
þess.
Lególand er í dag að finna á fjórum
stöðum í heiminum; í Danmörku, Eng-
landi, Þýskalandi og í Bandaríkjunum.
Samhliða því að reka Lególöndin §ög-
ur mim fyrirtækið reka 28 skemmti-
garða Merlins sem staðsettir eru í átta
löndum Evrópu. Þýðir það að Merlin
Entertainments verður næst stærsta
skemmtifyrirtækið í Evrópu á eftir
Disney. Framkvæmdastjóri Merlin,
Nick Vamey, kvaðst mjög bjartsýnn á
horfur nýja fyrirtækisins. „Við sjáum
nýja samstarfið sem frábæran grund-
völl hvaðan við getum stækkað við
atvinnureksturinn, ekki aðeins í Evr-
ópu, heldur hvaðanæva um heiminn",
sagði Vamey.
Legó í kröggum
Þrátt fyrir bjartsýni nýrra manna er
það staðreynd að Legó hefur barist
í bökkum undanfarin misseri með
tilkomu gífurlegrar samkeppni á leik-
fangamarkaðnum. Á síðasta ári nam
tap Legó 14 milljörðum íslenskra króna
og tvöfaldaðist því frá árinu á undan.
Sala á vamingi Legó minnkaði um
rúma fimm milljarða á milli áranna og
kenna yfirmenn fyrirtækisins miklu
verðstríði í leikfangaiðnaðinum um.
Jjeikfangamarkaðurinn hefur verið á
niðurleið um nokkum tíma og gífurleg
samkeppni ríkir þar“, sagði Kjeld Kirk
Kristiansen, eigandi Legó.
í þeirri viðleitni að skila hagnaði §ár-
festi fyrirtækið ríkulega í nýjum mörk-
uðum, þar á meðal í tölvuleikjum, ung-
bamavörum, útileguvörum og skóm.
Fyrirtækið hefur síðan reynt að bakka
út úr þessum viðskiptum og segir að
með sölu Lególands geti það einbeitt sér
að fiillu að meginatriðum sínum.
Samkomulagið við Blackstone bíður
nú samþykkis samkeppnisyfirvalda
Evrópusambandsins.
Isbjöminn Uslada hristir sig til eftir sundferð í vatninu í Leníngrad-dýragarðinum í St.
Pétursborg í gær. Hitastigið í borginni náði 30°C í gær og í slíku veðri vilja ísbirnir
eins og Uslada halda sig í köldu vatni fremur en að fara í sólbað.
Hættuleg Disneyveröld
bjornbragi@vbl.is
Disneyveröldí Orlando áFlórídahefur
opnað á ný leiktæki sem lokað var
þegar 16 ára gömul bresk stúlka fékk
hjartaslag í því á þriðjudag. Stúlkan
liggur þungt haldin á sjúkrahúsi en
er talin úr lífshættu. Leiktækið er
eins konar lyftuferð sem endar á því
að hrapa hátt í 40 metra niður. Hafði
stúlkan kveinkað sér lítið eitt þegar
hún kom úr tækinu en hélt að hún
myndi jafna sig fljótt. Kvartaði hún
undan ógleði og svima og ákváðu
^0%
suroajeö b0öinn
SKartQnp' öaíráBúrn-'S
y,^9'ndaS áTG' Fódays
^aðboröaú 0s.nU
- oeKurdaP otet\ngo ú
Kvö\dverö°9
blaóið
I
iFAbu|
Garcia.
FORLIFE.” I
Taktu þátt og sumarið verður ógleymanlegt
Næstu vikumar ætlar blaðið að gera sumarfríið þitt ógleymanlegt.
Sendu okkur einhverja fyrirsögn úr Blaðinu og þú kemst í pott sem dregið verður úr einu sinni íviku og þú
gaetirkomisttilSpánarfboði eðaunniðeinhvemafglaesilegumvinningumsumarleiksBlaðsins...
Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur hann (Blaðið, Bæjarlind 14 -16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur
tölvupóst (með nafni kennitölu og sfmanúmeri) á netfangið sumar@vbl.is
Dregið út á mánudögum
Ath. Taka máþátt ehs oftogogþúvitt.því fteiri tnnsenöir seötar, þelm mun metrt vtnnlngslkur.
=v
I Fyrirsögn:
Þátttökuseóili )
----------------- I
I
I
Fullt nafn:
Kennitala:
Sími:
I
\ Sendlst á - Blaðíö, Bæ^rlind 14-16 201 Kópavogur _ _ J
m
vAII löi i.
c :>
ICELAND
starfsmenn Disneyveraldar því, þrátt
fyrir andmæli stúlkunnar, að hringja
á sjúkrabíl. Þegar stúlkan kom svo á
sjúkrahús hafði hjarta hennar hætt
að slá og þurftu bráðaliðar að lífga
hana við.
Aðeins rúmur mánuður er síðan 4
ára gamall drengur lést í öðru tæki
í Disneyveröld sem þykir með þeim
rosalegri í garðinum. Við hliðina
á því er gestum t.a.m. boðið upp á
ælupoka og þá hafa fjölmargir þjáðst
af brjóstverkjum eftir að hafa prófað
tækið. Sykursjúk eldri kona lést
einnig í febrúar í enn öðru tæki í
garðinum.
í kjölfar þessara mála hafa
vaknað spurningar um hversu örugg
leiktæki Disneyveraldar séu og hefur
utanaðkomandi sérfræðingum verið
leyft að rannsaka tæld garðsins.
Hingað til hafa menn frá Disney-
fyrirtækinu sjálfir séð um að kanna
öryggisstaðla.
Ukraínumenn
æfir yfir
tölvuleik
bjornbragi@vbl.is
Yfirvöld vestur-úkraínsku borgar-
innar Lvov freista þess nú að fá
rússneskan tölvuleik, „Mission Gal-
ichina“, bannaðan. Ástæðan er sú að
leikurinn, sem rokselst í Rússlandi
um þessar mundir, gengur út á að
tortíma úkraínskum skæruliðum.
Leikurinn gerist árið 2008 þar sem
Rússinn Sergey Grishkov hefur sigr-
að forsetakosningamar, en Vestur-
Úkraínumenn neita að samþykkja
kjör hans. Úkraínsk stjórnvöld biðja
þá um hjálp Rússlands við að koma
aftur á einingu í landinu og rússnesk-
ar sérsveitir leggja bækistöðvar óvin-
arins í rúst og drepa ófriðarseggina.
Framleiðandi leiksins er NeoGame-
fyrirtækið en mennimir á bak við
gerð hans hafa ekki verið nafngreind-
Táningur
ákærður fyrir
nauðganir á
börnum
14 ára gamall drengur frá
Manchester á Englandi hefur verið
ákærður fyrir sjö nauðgunarbrot á
íjórum ungum stúlkum. Allar em
stúlkurnar á aldrinum sjö til tíu ára.
Var drengurinn handtekinn eftir að
stúlkurnar sögðu hann hafa ráðist
á sig í almenningsgarði og farið
með þær á afvikinn stað. Lögreglan
hefur ekki enn viljað gefa upp nánari
upplýsingar um málið og hefur ekki
nafngreint drenginn. í tilkynningu
lögreglunnar sagði einfaldlega:
„Ákærurnar koma í kjölfar atviks í
Mandley-garðinum sunnudaginn 10.
júlí.“ Drengurinn, sem er frá Salford,
mun mæta fyrir rétti í dag.