blaðið - 14.07.2005, Síða 12
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
Grindavík er einn öflugasti
útgerðarstaður landsins. Þar er
mikil gróska í útgerð og fiskvinnslu,
sem veitir íbúum og fjölda annarra
atvinnu. Ferðaþjónusta er í örum vexti
og verslun og léttur iðnaður þrífst
vel. í Grindavík er skrúðgarðurinn
Sólarvé, rétt við sundlaugina, en
hann er hlaðinn í fomum stíl og ber
vitni um horfna menningu landsins.
Strandhögg Tyrkja í Grindavík 1627
er vel þekkt meðal þjóðarinnar en
áður kom þar oft til ófriðsamlegra
aðgerða, t.d. þegar íslendingar,
Danir og Þjóðverjar sameinuðust
egn Englendingum árið 1532.
Svartsengi við Grindavík er mikill
jarðhiti og hefur þar verið reist öflugt
orkuver sem þjónar Suðumesjum og
mun væntanlega þjóna fleiri byggðum
í nánustu framtíð. Affallsvatn frá
orkuverinu myndar Bláa Lónið,
sem var nýtt til baða áður en
aðstaðan var færð til nútímahorfs.
VeiðivötnínágrenninueruDjúpavatn,
Kleifarvatn, Hlíðarvatn og Seltjörn.
Þorbjamarfell, í daglegu tali
nefnt Þorbjörn. Stakt móbergsfell
(243 m.y.s) fyrir norðan Grindavík.
Af því er mikið útsýni yfir stóran
hluta Reykjanesskaga. Norðaustan
í fellinu er mikil jarðhitamyndun
og norður og norðaustur af því
er allvíðáttumikið jarðhitasvæði.
Uppi á fellinu er gjá eða sprimga
sem heitir Þjófagjá, að sögn eftir
15 þjófum, sem höfðust þar við og
stálu fé Grindvíkinga. Þeir vom loks
unnir með prettum, að því er sagan
segir. í síðari heimsstyijöldinni
fórst C. Andrews, yfirmaður alls
herafla Bandaríkjamanna á Norður-
Atlantshafssvæðinu í flugslysi ásamt
fleiri háttsettum foringjum. Þeir
voru að koma frá Bandaríkjunum til
lendingar á Keflavíkurflugvelli en
flugvélin hefur að öllum líkindum
flogið of lágt. Aðeins einn maður
komst lífs af úr þessu flugslysi og beið
hann björgunar á annan sólarhring.
Bláa Lónið - heilsulind
Heilsulindin er vel þekkt víðsvegar
um heiminn og hefur meðal annars
fengið verðlaun fyrir að vera besta
náttúrulega heilsulind heims og
einn af tíu ótrúlegustu baðstöðum
heims. í lóni heilsuhndarinnar
eru 6 milljónir lítra af jarðsjó sem
leiddur er í lögn frá uppsprettunni
að lóni heilsulindarinnar.
Jarðsjórinn í lóninu endumýjast á
rúmum sólarhring. Auk þess að slaka
á í hlýju lóninu hafa gestir aðgang
að eimböðum og sauna auk þess
sem þeir geta bmgðið sér undir foss
og upplifað nóttúrulegt herðanudd.
Spa-meðferðir og nudd sem fram fer
í lóninu er einnig fáanlegt.
Veitingar eru fáanlegar í kaffiteríu
þar sem boðið er upp á létta hressingu
og á veitingastað þar sem gestir
geta notið matarins og einstaks
umhverfis.
Góð áhrif böðvmar í jarðsjónum við
húðsjókdómnum psoriasis er þekkt.
Meðferðin hefur verið veitt um árabil.
í júní á þessu ári var tekin í notkun
ný og glæsileg lækningalind. Auk lóns
eingöngu ætlað meðferðargestum er
innilaug og gisting fyrir allt að 30
gesti.
Margir dvelja á Northern Light
Inn, sem er hótel rétt við Blá lónið
og nota heilsu- og læknalindina,
fara í gönguferðir, veiða í vötnum
og fara í golf en á Reykjanesi em
fjórir golfvellir, einn 18 holu og þrír
9 holu. Það er því hægt að velja sér
margs konar aðstæður og umhverfi
í nágrenni Grindavíkur og við Bláa
lónið.
Gjáin í Eldborg
í Eldborgargjánni stendur yfir sýning
Hitaveitu Suðurnesja um jarðfræði,
jarðhita og vinnslu orku úr iðrum
jarðar við orkuverið í Svartsengi.
Leiknir sem lærðir njóta
sýningarinnar sem leiðir gesti um
almenna jarðfræði jarðarinnar,
jarðfræði landsins, Reykjaness og
Svartsengis og skýrir tengsl skyldra
fræðigreina með forrannsóknum og
eftirliti á háhitasvæðum. Jarðboranir
á slíkum svæðum eru einnig skýrðar
og farið í gegnum framleiðsluferli
rafmagns og hitaveituvatns
í orkuverinu í Svartsengi.
Tæknibúnaður sýningarinnar er
mjög fullkominn. Unnt er að sýna
margar myndir í einu og tengja þær
ýmsum hljóðum samtímis. Myndir
em m.a. sýndar á 42” plasmaskjám og
geymdar á stafrænum MPEG mynd-
og hljóðgrunnum. Allar myndir eru
með víðómi. í enda Gjárinnar er
stærra sýningartjald í hvelfmgu. Það
er tengt kvikmyndahljóðkerfi fyrir
Dolby-umhverfishljóð, sem eru geymd
á stafrænum hljóðkerfum, og ljósum,
sem er stýrt í samræmi við viðburðina.
Ár hvert koma þúsundir gesta
í Svartsengi til að kynna sér
starfsemi Hitaveitu Suðurnesja.
Þarna koma ferðamenn, skólafólk,
fjölskyldur og sérfræðingar á ýmsum
sviðum jarðvísinda. Hitaveitunni
þótti tímabært að skapa aðstöðu
til gestamóttöku og veita nokkra
innsýn í undur íslenskrar náttúru
og aðferðirnar, sem er beitt við
breytingu náttúruaflanna í birtu og
yl fyrir byggðimar á Suðurnesjum.
Eldborg, kynningar- og mötuneytishús
Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi og
Gjáin, eru kjörin vettvangur fyrir
þessa kynningu auk kynningar á
sögu Hitaveitunnar, Bláa lónsins
og samfélagsins á Suðurnesjum.
Festarfjall (190m) er skammt austan
Grindavíkur og rís þverhnípt úr hafi
en vestan þess er Hraunsandur
eða Ægissandur í lítilli vík. Fjallið
er úr móbergi en í því er grágrýtis-
gangur, sem það dregur nafn af.
Þessi gangur var gerður að silfurfesti
tröllkerlingar í fornri þjóðsögu.
Margir stansa við víkina til að huga
að fugli, s.s. skarfi, fyl, ritu, æðarfugli
o.fl. í Grindavík er félagsheimili,
sem ber nafn fjallsins, Festi.
Á Selatöngum, miðleiðis milli
Krýsuvíkur og Gríndavíkur, er gömul
verstöð, sem ennþá sjást merki um og
er þess virði að skoða. Þar var mikið
útræði, sem lagðist niður um 1880.
Krýsuvík er nú í eigu
Hafnarfjarðarbæjar en byggð
lagðist af á hinu forna höfuðbóli
á 20. öldinni. Þar var talsverð
gróðurhúsarækt og refabú í restina.
Bærinn stóð fyrrum nokkuð vestar,
upp af núverandi Hælisvík. Hann
tók af, þegar Ögmundarhraun rann
yfir mikið af gróðurlendi jarðarinnar.
Þar var samt stórbýli fram á 19.
öld og heil kirkjusókn vegna fjölda
hjáleigna. Kirkjan, sem stendur enn,
var reist 1857. Hún var endurbyggð
og endurvígð 1964 og afhent
þjóðminjaverði til varðveislu. Á
jarðhitasvæðinu var borað eftir gufu
til virkjunar fyrir Hafnarfjörð, en
ekkert hefur orðið úr framkvæmdum
enn þá. Hverasvæðið er athyglisvert
Áskriftartilboð!
Þú færð PowerStretch húfu
eða hálskraga að verðmæti
1.990 kr. um leið og þú gerist
áskrifandi að Útiveru
66
NORÐUR
Skráðu þig á vefnum okkar
www.utivera.is eða
hringdu í síma 897 1757
W UTSALA A
LINUSKAUTUM
Línuskautar
ABEC 5 legur
SC: 27-29, 30-33, 34-36
Línuskautar
ABEC7 legur
St.: 37-45
Hjálmur
St.: L-XL
Hlífar
Olnbogi, úlnliði & hné
Stærðir: S-L
Faxafeni 8 • 108 Rei
www.skatabudin.com