blaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 16
16 hö
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
Með hæstu einkunn í
dönskum fatahönnunarskóla
- Dröfn Jóhannsdóttir stendur sig vel í Kaupmannahöfn
halldora@vbl.is
Útrás íslendinga erlendis er ekki
einungis bundin við viðskipti en
margir ungir íslendingar hafa rutt
sér til rúms á erlendum vettvangi,
hvort sem er í leiklist, hönnun, söng
eða öðru námi. Dröfn Jóhannsdóttir er
ein þeirra en hún kláraði á árinu nám
í þekkta einkaskólanum Margrethe-
Skolen í Kaupmannahöfn, en þar
hefur hún lagt stund á fatahönnun.
Námið stendur einungis yfir í tvö ár
og er þess mun erfiðara og hratt er
hlaupið yfir sögu.
Dröfn, sem er nýorðin 24 ára, stóð
sig með stakri prýði í skólanum, en
ásamt danskri bekkjarsystur sinni
mældist hún með hæstu einkunn í
lok skólans og verður það að teljast
ansi gott, sér í lagi þegar tekið er mið
af þyngd námsins.
„Eg fékk 11 í lokaeinkunn, en það
má segja að það sé hæsta einkunn sem
hægt er að fá. 13 er næst fýrir ofan,
en það er eiginlega aldrei gefið og oft
talað um 11 fyrir besta árangurinn.
Námið var líka mjög erfitt og það
var mikið að gera allan tímann. Mér
gekk samt mjög vel þannig að ég var
auðvitað hæstánægð með þetta og
er enn,“ segir Dröfn, en hún kláraði
Kvennskólann í Reykjavík árið
2002 og flutti svo til Danmerkur ári
seinna. Aðspurð segir hún það hafa
tekið eilítið á að leggja land undir
fót og bjarga sér ein í nýju umhverfi.
„Þetta var jú svolítið erfitt fyrst,
maður þurfti sinn tíma til þess að
komast inn í málið og kerfið. En ég er
auðvitað búin að læra helling af því
og hef haft gott af,“ segir Dröfn, sem
nú talar dönskuna reiprennandi.
Mary krónprinsessa og Bene-
dikta komu á lokasýninguna
í lok júní var haldin sýning á
prófverkefnum útskriftamemenda
í Vega sýningarhöllinni í
Kaupmannahöfn, en þar var
margt um manninn og fjölmiðlar
flykktust að í stríðum straumi til
þess að sjá hönnun nemenda. Þá
heiðruðu þær Mary krónprinsessa
og prinsessa Benedikta, sem er
systir Margrétar Danadrottningar,
einnig mannskapinn með nærveru
sinni, en Benedikta *var nemandi í
skólanum hér á árum áður. „Þetta
var voða mikið blásið upp héma úti,
sérstaklega þar sem þær létu vita
af komu sinni. í ijölfarið varð þetta
viðameira og sýmngin hreint út sagt
glæsileg, allir voða ánægðir með þetta
og við auðvitað líka.“
Dröfn segir stíl sinn sportlegan og
litríkan, en hún hannar allt mögulegt
í þeim stíl. „Ég elska liti og nokkurs
konar „street wear“. Prófverkefnið
voru tvö vetreu-sett og tvö sumarsett,
auk þess sem ég þurfti að gera eitt
fínt dress sem mátti vera frjálst.
Ég heklaði topp úr silkiböndum og
gerði pils úr silkiborðum, en það féll
Fyrirsæta í fatnaði sem Dröfn hefur hannað.
Sumartilboð!
m
Vöndud rafmagnskerra
Sterkbyggð og afar einföld
í notkun. Þessi aðstodar þig að
fara hraðar yfir og alla leid.
Verð: 23.920,-
Verð áður 29.900.-
Hole in One
GOLFVERSLUN
r Qpnunartími:
Mán - fös .10 - (9
Laugantaqa JO - Í6
Sunmníaga ..ia -16
í mjög góðan jarðveg og ég var alsæl
með það,“ segir hún, en til liðs við
sig fékk hún vinkonu sína, írisi Þöll
Hauksdóttur, sem hún notaði sem
fyrirsætu og Gunnlaug Sölvason,
sem tók myndir fyrir hana. „Það má
segja að ég hafi verið með fagfólk með
mér, en íris hefur áður starfað sem
fyrirsæta og Gunnlaugur er alveg
rosa góður ljósmyndari. Þetta gekk
því allt saman mjög vel upp.“
Langar að starfa hjá íslensku
fyrirtæki
„Hvað gerist í framhaldinu er ekki
alveg ákveðið. ísland er reyndar
farið að tosa svolítið í mig og ég
væri vel til í að starfa hjá íslensku
hönnunarfyrirtæki. Annars kemur
Köben líka sterklega til greina. Ég
er náttúrulega búin að vinna núna
þannig að mikið er lagt í hverja flík
og það ætti því að vera mér mjög
auðvelt að fara út í fjöldaframleiðslu.
Við höfum lagt mikið upp úr okkar
eigin stíl á einni og einni flík, þannig
að maður kann þar af leiðandi
alveg að fara út í slíka framleiðslu
þar sem að það er mun auðveldari
saumaskapur."
Dröfn er nú að vinna að viðbótum á
prófverkefni sínu en í kjölfarið hyggst
hún fara á stúfana og sækja um vinnu
með góða umsókn í fórum sínum. „Ég
ætla að gera aðeins meira úr því sem
ég er með svo að þetta verði viðameira
og flottara. Svo náttúrulega bara
sækir maður um starf á góðum
vinnustað, nú eða þá bara að ég sel
þetta,“ segir Dröfn sem ætlar sér
ekki strax aftur í skóla. „Ég er komin
með alveg það sem þarf í fatahönnun,
þetta nám dugar mér vel í allt sem
máli skiptir. Svo getur auðvitað vel
verið að maður sérhæfi sig einhvem
tímann seinna í einhverju ákveðnu.
En þetta er allavega nóg í bili.“
Útsalan í fullum gangi!
Opnunartími
mán - föst. 10-18
laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi
Súni 554 ííii