blaðið - 14.07.2005, Síða 30
30 hver & h
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
LsVW/...
Orðræða um aðför
Nú ríkir vargöld um íslenskan
viðskiptaheim um heim allan, og
ekki er einungis barist með papp-
ír og pennum, heldur og með and-
legum vopnum - áróðri. í þessum
andlega vopnaburði virðist fyrst
og fremst lögð á það áhersla, að
tilætlaður árangur náist í barátt-
unni gegn óvinunum, en minna á
hitt, með hvaða vopnum er vegið,
hvort sagt er satt eða ósatt, hvort
dómgreind manna er efld eða
svæfð, hvort áhrifin eru til góðs
eða ills - eins og Gylfi Þ. heitinn
Gíslason hefði líklega orðað það.
Allir muna þá herkænsku er
brúkuð var Hafskipi til bana.
Grimmdarlegri aðfór ríkisstjórn-
arinnar lauk ekki fyr en fyrirtæk-
ið lá brotið og bramlað á ónefnd-
um hafsbotni. Böðullinn sökkti
hinu fallega Hafskipi með manni
og mús og hrækti ofan á vatns-
borðið - Uss!
Hafskipi var fargað fyrir hags-
muni Eimskips sem er nú fátt
annað en liðið lík fyrri frægðar.
En hví þessi aðfór að Baugi? Hví
sýnir dómsvaldið nú svo miklu
miskunnarlausari klær en voru
notaðar í Olíufurstamálinu? Get-
ur það verið vegna þess að einn
olíufurstinn var svo klókur að
sænga með þáverandi dómsmála-
ráðherra? - Sá fann sér trausta
og blíða pólítík! í það minnsta
skiptir vingott samband við rík-
isstjórnina augljóslega sköpum
sé verið að kæra menn fyrir spill-
ingu á annað horð - en Jón Ásgeir
Jóhannesson er augljóslega ekki
hollt að vera í kompaníi við.
Það vita allir að ríkisstjórn-
in hefur haft horn í síðu Baugs-
manna frá því 10-11 var keypt.
Þá tilkynnti þáverandi forsæt-
isráðherra að Baugurinn væri
orðinn of stór fyrir sinn fingur.
En Bakkavör er ekki of stór fyr-
ir forsætisráðherra og greinilega
eru Björgúlfsfeðgar ekki taldir til
viðskiptarisa enda hafa þeir gætt
sín á því að styggja ekki stjórnina
- það voru jú auðvitað allir saman
í soranum í Bankasölumálinu.
Niðurstaðan; Vertu góðu við
stjómina og hún gælir við þig
á móti. Einu sinni var til orð
fyrir þess lags stjórnmál: Fyrir-
greiðsla.
Johnny Depp þarf
ekki hjónaband
Johnny Depp hefur sagt frá því að
hann sé að bíða eftir að kona hans til
margra ára, Vanessa Paradis, muni
biðja hann um að giftast sér - en
hann segist bíða með hjónaband útaf
einni ástæðu. Hann hefur viðurkennt
að honum þætti mjög leitt ef hún yrði
að gefa eftir eftimafn sitt, Paradis,
færi svo að þau myndu gifta sig. “
Það væri mjög leitt að skemma síðara
nafnið hennar! Það er svo fullkomið
- Vanessa Paradis. Svo fallegt”, segir
hann.
En fyrir utan nafnamálið finnst
leikaranum að þau séu alveg eins
og eiginmaður og eiginkona, eftir að
hafa verið saman í sjö ár og eiga sam-
an tvö böm.
„Það er alveg eins og við séum gift.
Við eigum tvö böm saman og hún er
konan í lífi mínu. En ef hún myndi
segja: Hey, giftum okkur!“, myndi ég
auðvitað játa því strax", segir hann.
lan Mckellen aðdáandi
Beckhams
SU DOKU
Su Doku - 9. gáta
4 9
8 2 7
2 5 7 1 6
3 8 6
7 6 3 1
1 6 2
2 5 9 8 4
9 7 1
6 5
Su Dok J - I ausn við 8. gátu Laus
5 3 1 4 9 8 2 7 6
4 7 9 1 6 2 3 5 8
2 6 8 7 5 3 4 1 9
3 "ö1 7 6 1 4 8 " 9 2
6 8 2 5 3 9 7 4 1
1 9 4 2 8 7 6 3 5
8 2 3 9 4 5 1 6 7
7 1 5 3 2 6 9 8 4
9 4 6 8 7 1 5 2 3
Lausná 9.
gátu verður
að finna í
blaðinu á
morgun.
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölunum
frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð
box sem innihalda 9 reiti. Sama talan
má ekki koma fyrir tvisvar í hverri
línu og innan hvers box. Allar gátur
er hægt að ráða út frá þeim tölum sem
gefnar em upp í upphafi. Leitað er að
talnapörum og reynt að koma þeirri
Lausn á 8. gátu
þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7
er í efsta boxinu vinstra megin og því
neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt
að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-
boxinu. Ef möguleikamir em tveir
er ágætt að skrá þá hjá sér og halda
áfram.
Sir Ian McKellen, sem að lék Gandalf
í Lord of The Rings myndunum, er
nýjasti aðdáandi David Beckham, en
þeir hittust baksviðs á Live 8 í Lond-
on. „David Beckham er fallegur mað-
ur. Hann er með sætt bros. Eg talaði
við hann í samkvæmi. Hann er goð
hjá samkynhneigðum og ég veit að
honum finnst það fínt“, segir Ian, sem
er þekktur fyrir að vera opinskár með
samkynhneigð sína. Heimildir herma
að David hafi verið mjög upp með sér
þegar Ian sagði honum hvað hann
væri vinsæll, og að David sé mikill að-
dáandi Lord of the Rings. Hann hafi
því tekið hrósinu vel.
Sir Ian birtist í þáttunum
Coronation Street nýlega sem lævís
svindlari - en hann hefur meðal ann-
ars leikið í Shakespeare leikriti og
stórmyndum eins og X Men.
Michael Caine efast
um Tom og Katie
Stórleikarinn Michael Caine hefur
opinberlega lýst yfir efasemdum um
samband Tom Cruise og Katie Holm-
es, og er hann ekki að tala um til-
finningar þeirra í garð hvors
annars, heldur að Tom sé ein-
faldlega of lítill fyrir Katie.
Caine lék í Batman Begins
með Katie, sem er 1.75 cm
há. Michael sagði að Katie
væri aðeins of hávaxin fyrir
Tom, sem er um 1.70 cm. Og
Michael hætti ekki þar, hann fór
að hrósa leikkonunni Nicole Kid-
man, fyrrverandi konu Tom. „Nic-
ole hefur þessa köldu ímynd en hún
er stórkostleg - ég dýrka hana. Og
Katie er skemmtileg Uka. Ég er alltaf
að heyra að hún sé næsta frú Cruise.
Hún er frekar hávaxin“. Michael, sem
hefur leikið í myndum eins og Alfie
og Get Carter, var samt mjög alvar-
legur - og viðurkenndi að Tom hefði
rosaleg áhrif á nýju unnustu sína.
„En égman eftir Katie sem hljóðri lít-
illi stelpu sem sagði ekki neitt, segir
hann. “ „En það hefur orðið eitthver
breyting þar á“.
Hvað segja
stjörnurnar?
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Þú ert of upptekin í vinnu þinni tii að sjá
hvað er að gerast fyrir framan þig. Það er ekkert
gríðarlega mikilvægt en samt eitthvað sem þú
þarft að vita.
V Stundum er auðvelt að taka vini sína sem
sjálfsagðan hlut, sérstaklega ef þeir eru alltaf til
staðar. Vertu viss um að þeir viti hve yndislegir
þeir eru.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
S Taktu þér krók til að leita uppi öðruvísi
skoðun á málinu, eins fjarlægt og það virðist
vera. Þú ertu opin/n fyrir nýjum hugmyndum
núna og hver veit nema þú dettir í lukkupottinn.
V Heilinn þinn er að þrenna yfir. Það er al-
varleg sálarskoðun í gangi og þú veist að það
er kominn timi á að prófa eitthvað nýtt. Það er
enginn þetri kennari en reynslan sjálf.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Lífið í vinnunni er bara alltaf að verða
betra og betra. Það er kominn tími til að deila
því með öðrum. Þú muntfá það launað síðar.
V Þú vilt að allir séu sáttir og öllum komi vel
saman. Ekkert að því. En örlitlir árekstrar þurfa
ekki að vera svo slæmir.
OHrútur
(21. mars-19. apríl)
S Notaðu brosið og þú færð það sem þú leit-
ar að. Hvort sem það er homskrifstofa eða nýtt
verkefni. Þokki greiðir leiðina.
V Vertu viss um að þú takir tillit til ástvinar
þíns og tilfinninga hans í dag. Það er auðvelt að
hugsa bara um sjálfan sig og sínar eigin tilfinn-
ingar en í dag skaltu einbeita þér að öðrum.
©Naut
(20. apríl-20. mal)
S Taktu þér tíma til að sitja hljóð/ur og end-
urskoða vinnuna og samband þitt við vinnufélag-
ana.
1F Leti er yfirráðandi í dag. Taktu því rólega
og það kemur þér á óvart hve margir vilja vera
latir með þér.
Tvíburar
(21. maí-21. júní)
S Nánir vinnufélagar og viðskiptafélagar
eru þér mikilvægir í dag. Einbeittu þér að þeim
og þeirra þörfum og reyndu að skilja hvað þeim
gengur til.
V Hræðistu því sem þú getur ekki lokið? Hik
gæti komið í vecj fyrir rómantíkina sem þú bíður
eftir. Slakaðu á i hræðslunni og taktu þátt í gam-
aninu.
©Krabbi
(22. júní-22. júlí)
S Það verða einhverjir árekstrar í vinnunni
í dag, mestmegnis skoðanamunur. Það kemur
þér ekki beint við en þú getur nýtt innsæið til að
aðstoða.
V Þig vantar nýtt verkefni eða áskorun. En
það er eitthvað ósætti í loftinu sem þú þarft að
leysa úr fyrst.
o
Ljón
(23. júlf- 22. ágúst)
S Taktu stjórnina, þú ert rétti aðilinn til
þess. Vinnufélagar munu verða ánægðir með að
einvher tekur stjórnina.
V Stjörnurnar segja að rómantík sé á næsta
leyti. Ef það er ekkert nú þegar í gangi þá skaltu
fara að lita í kringum þig.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Notaðu hluta dagsins til að ræða við vinnu-
félaga. Þú munt fá skýrari mynd af því hvernig
fyrirtækið virkar.
V Ástin er út um allt. Það eina sem þú þarft
að gera er að finna hana. Kannski erfiðara sagt
en gert en þú getur það.
Vog
(23. september-23. október)
$ Röltu um vinnustaðinn og reyndu að tengj-
ast elns mörgum vinnufélögum og mögulegt er.
Þú verður mikilvægur starfskraftur án þess að
gera nokkuð.
V Þú virkar á fólk sem feimin/nn þegar þú
ert í raun bara athugandi. Notaðu þetta þér í hag
í málum hjartans. Horfðu, bíddu og gerou atlögu
þegar rétti tíminn er.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Notaðu vinnufélagana til að henda hug-
myndum á milli þar til áætlunin myndast.
V Bfddu lengur ef þig vantar skýr-
leika. Þú hefur um margt að hugsa og
þú þarft að leyfa þessu að þróast. Þolin-
mæði, ró og næði ættu að bjarga málunum.
G
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Þú tekur á móti mörgum fyrirspumum I
dag en þú getur leyst úr þeim öllum með skiln-
ingi.
V Þú hefur verið frekar stressuð/aður und-
anfarið. Farðu út og fáðu þér ferskt loft.