blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616
Hiveute I
Þráðlaust internet
4GB niðurhal
8Mb tenging
3.990
ÁMÁNUÐI*
-MENNING
Biðin var
Halla Hallsdóttir
beið fyrir
utan Mál og
menningu Í14
tíma.
| SIda 24
■ GOLF
Golfari af
guðs náð.
Björgvin
Þorsteinsson
hefur sex
sinnum
orðið
íslands-
meistari
I SfÐA 18
■NEYTENDUR
Ný verðkönnun Blaðsins.
| Síða 10
■LEIKHÚS
\Söngleikurinn Annie lýsir
hinni bernsku gleði” segir
Viðar Eggertsson. | Síða 24
■ FÓTBOLTI
Skagamenn mœta Derby
County t kvöld. |Síða 22
■ HREINN SIRKUS
Lögbann sýslu-
manns ekki virt
| SfÐA 2
■ HJÓLREIÐAR
Ráðleggingartil þeirra sem
hjóla með smábörn
| SIÐA16
Landsmót skáta sett í
I SfÐA 16
Lífeyrissjóðir
sitja á 7000 milljörðum
| SiÐA 4
Er leyfið
tgildi?
Kári
Stefánsson
hefur ekki
starfað sem
læknir í 9 ár.
I SfÐA 2
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
73,0
í
1
»0
53,6
xo
■s
*->
*->
Samkv. tjölmlðlakönnun Gallup júni 2005
Fasteignaverð á höfuðborgar-
svæðinu hækkar enn
samkvæmt nýjustu tölum
Fasteignamats ríkisins og er
meðalverð húsnæðis samkvæmt
kaupsamningum orðið 23,7 milljónir
króna. Á sama tíma í fyrra var
verðið 16,7 milljónir. Fasteignaverð
heldur því áfram að hækka þrátt
fyrir hrakspár sumra upp á síðkastið.
Hruni fasteignamarkaðsins virðist
því hafa verið slegið á frest að svo
stöddu. Þá kemur fram að þrátt fyr-
ir að færri kaupsamningar hafi verið
gerðir þá eykst velta á fasteignamark-
aðnum um ríflega ro%. „Það er ekkert
sem bendir til þess að það séu mikl-
ar hækkanir eða hrun á leiðinni. í
gegnum árin hafa alltaf komið svona
hrakspár. Að minnsta kosti undanfar-
ið hefur þetta tal verið án mikils rök-
stuðnings og ég sé ekkert sem rennir
stoðum undir þetta“, segir Haukur
Geir Garðarsson, varaformaður Fé-
lags fasteignasala.
Eðlilegar sveiflur
Haukur segir markaðinn vera að róast.
„Hækkunin er að mestu leyti komin fram
og mér finnst ákveðið jafnvægi vera að
nást. Ef ég tek þetta í sögulegu samhengi
og miða við þau tuttugu ár sem ég hef
starfað á markaðnum þá sé ég engar
stórar breytingar í kortunum, hvorki
til hækkunar né lækkunar. Við lifum í
mikilli hagsæld og ekkert bendir til þess
að breyting verði þar á. Kannski verða
ákveðin hvörf sem lækkar verðið aðeins
og önnur sem hækkar það. Það er bara
eðlilegt að slíkar sveiflur verði.“
Lánin sliga ekki
Haukur Geir gefur ekki mikið fyrir orð
þeirra sem hafa verið með hástemmdar
yfirlýsingar um verðbólgu, lækkun og
fleira. Þá telur hann ekki að húsnæðislán
séu að sliga fólk. „Það eru alltaf einhverj-
ir sem eiga í vandræðum sama hvernig
málunum er stillt upp. Að mínu mati eru
90% lánin ekki að sliga fólk því þetta eru
mjög þægileg lán með lága greiðslubyrði.
Það er hins vegar annað mál þegar tekin
eru annars konar lán, banka- og bílalán
til viðbótar."
AFBROTAUNGLINGAR
Athyglisvert verkefni í Grafarvogi þar sem afbrotaunglingar fá að
hitta brotaþola og bæta ráð sitt | síða 16