blaðið - 19.07.2005, Blaðsíða 24
24 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaAÍA
Hinn vinsœli söngleikur Annie er nú sýndur í Austurbœ
Hm-mgie6i
Þetta er fyrsti söngleikurinn sern ég leik-
stýri en áður hef ég leikstýrt leikritum
með söngvum. Ég hef aldrei verið sér-
stakur söngleikjaaðdáandi en þetta hef-
ur verið afar skemmtileg vinna," segir
Viðar Eggertsson leikstjóri söngleiksins
Annie sem var frumsýndur í Austurbae
síðastliðinn sunnudag.
Viðar segir Rakel Kristinsdóttur eiga
allan heiðurinn af því að sýningin varð
að raunveruleika. „Þessi unga kona átti
sér þann draum að setja upp söngleik
með börnum. Hún hélt leiklistarnám-
skeið fyrir börn og afraksturinn er sýn-
ingin og uppistaðan í barnahópnum eru
börnin sem tóku þátt í námskeiðinu,"
segir Viðar.
Einlægniog húmor
Söngleikurinn Annie hefur aldrei fyrr
verið sýndur á Islandi. Hann var frum-
sýndur á Broadway árið 1977 og byggði
á teiknimyndasögunni um munaðarleys-
Atriði úr Annie en þessi vinsæli söngleik-
ur er sýndur í Austurbæ.
ingjann bjartsýna sem sigrast á öllum erf-
iðleikum. Kvikmynd var gerð eftir söng-
leiknum árið 1982. Söngleikurinn státar
af mörgum þekktum lögum.
„Uppistaðan í söngleiknum er hin
bernska gleði ásamt skemmtilegum lög-
um og litskrúðugum persónum. Sögu-
þráðurinn er í sjálfu sér aukaatriði," seg-
ir Viðar. „Það eru um þrjátíu manns á
sviðinu, helmingurinn börn og helming-
urinn fullorðnir. Leikhópurinn er hress
og skemmtilegur og við höfum raunveru-
lega verið að skemmta okkur. Þegar verk-
ið hefur farið niður í melódramatískar
lægðir þá höfum við af okkar íslensku
sérvisku tekið amerísku froðuna burt og
reynt að gera það af einlægni og húmor.
Það er held ég að sé eina leiðin til að fara
inn í ameríska melódramað."
Gaman að leikstýra börnum
Þegar Viðar er spurður hvernig það hafi
verið að leikstýra svo stórum barnahóp
segir hann: „Það var sérkennilegt og
gaman að leikstýra börnunum. Ég hef
ekki umgengist börn mikið og hæni
þau ekki sérlega að mér svona dags dag-
lega en það varhlutskipti okkar að vera
saman og ég held að það hafi verið ágætt
fyrir okkur öll. Ég held að ég hafi bara
orðið betri maður af því að umgangast
þessi börn en ekki veit ég hvort börnin
urðu að betri börnum vegna kynna af
mér.“
kolbrun@vbl.is
—
BMiö/Steinar Hugi
Viðar Eggertsson.„Uppistaðan í söngleiknum er hin bernska gleði ásamt skemmtilegum lögum og litskrúðugum persónum. Söguþráð-
urinn er í sjálfu sér aukaatriði."
Halla Hallsdóttir beið ífjórtán tíma eftir nýju Harry Potter bókinni og er hœstánœgð eftir
lesturinn
Biðin var þess virði
Mannlífs-
hrollvekjur
1 Halla Hallsdóttir.
j Mælir með nýju
5 Harry Potter
i bókinni.
Mikil geðshræring
1 lok bókarinnar lætur ein aðalpersónan
lífið og lýsingar eru þar all svakalegar.
„Það var mikil geðshræring í gangi þegar
ég las þann kafla. Rowling er einstak-
lega góð í því að fá mann til að finna
til með persónum,“ segir Halla. Hún er
tvítug og hefur lesið allar Harry Potter
bækurnar á ensku. „Ég hef alltaf verið
gefin fyrir tungumál og finnst betra að
lesa bækur á frummálinu. Lesturinn
á Harry Potter bókunum hjálpaði mér
mikið í enskunáminu þegar ég var í
skóla.“
Astæða er til að vekja athygli á
riti sem fylgir nýjasta tölublaði
Mannlífs. í því er að finna
þrjár verðlaunasögur úr samkeppni
Grand Rokks og Hins íslenska glæpa-
félags, auk þriggja annarra sagna sem
dómnefnd fannst ástæða til að mæla
með. Ekki verður annað sagt en að
henni hafi tekist vel upp í vali sínu á
verðlaunasögunni, sem er tvímælaust
besta sagan í ritinu. Höfundur hennar
er Gunnar Theodór Eggertsson, 23 ára
bókmenntafræðingur, sonur rithöfund-
anna og sagnfræðinganna Þórunnar
Valdimarsdóttur og Eggerts Þórs Bern-
harðssonar. Verðlaunasagahans nefnist
Vetrarsaga og er grimm saga, hrollvekj-
andi og snjöll, en hugmyndin er sótt til
íslenskra þjóðsagna. Meira en það er
ekki rétt að segja um þessa fínu sögu.
Hrollvekjuunnendur hljóta að eygja von
í Gunnari Theódór sem hefur áhuga á
að skrifa fleiri hrollvekjur í framtíðinni
og gera hryllingsmyndir.
Önnur verðlaun i samkeppninni fóru
til Lýðs Árnasonar héraðslæknis á Flat-
eyri fyrir sögu hans Óttastuðull sem
fjallar um tvær vinkonur sem ganga
ansi langt til að reyna á óttaþröskuld-
inn. Þriðju verðlaun hlaut Þorsteinn
Mar Gunnlaugsson kennari fyrir sög-
una Milli þils og veggjar sem fjallar um
draugagang. ■
Vinsœldalisti Amazon
Halla Hallsdóttir er sennilega
einn dyggasti Harry Potter að-
dáandi landsins. Hún var fyrst
í röð þeirra sem biðu eftir að bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi opn-
aði á miðnætti aðfararnótt laugardags
þegar sala hófst á nýju Harry Potter
bókinni Harry Potter and the Half-
Blood Prince. Fyrir tveimur árum var
Halla einnig fremst í röð við sömu
búð þegar sala hófst á Fönixreglunni
og beið þá í þrettán tíma. Hún segir
þessa löngu bið ekki vera leiðigjarna.
„Þegar maður segir fólki að maður ætli
að bíða þá koma allir til að heilsa upp
á mann,“ bætir hún við.
Byrjaði strax að lesa
Þegar Halla kom heim eftir miðnætti
byrjaði hún strax að lesa Harry Potter
and the Half-Blood Prince. „Ég las þar
til ég sofnaði með nefið niðri í bókinni
og byrjaði svo aftur að lesa þegar ég
vaknaði," segir hún. „Mér finnst þessi
nýja bók mjög góð og betri en bók núm-
er fimm. Hún er myrkari en fyrstu fjór-
ar bækurnar en fimmta bókin var rey nd-
ar líka nokkuð myrk en þessi er þó mun
drungalegri. Harry er að verða eldri og
tekst á við erfiðari hluti en áður og hann
er að átta sig á því að hinir fullorðnu
hafa kannski ekki alltaf rétt fyrir sér og
kunna ekki endilega ráð við öllu.“
Amazon.com fagnar tiu ára afmæli sínu
í ár. í tilefni þess hefur verið tekinn sam-
an listi yfir þá listamenn sem selt hafa
mest og best hjá fyrirtækinu á þessum
tíma. Ekki kemur á óvart að J.K. Row-
ling er metsöluhöfundur Amazon. Núm-
er tvö er Spencer Johnson, fyrrverandi
læknir sem hefur sérhæft sig í skrifum
dæmisagna sem eiga að breyta lífi fólks.
í þriðja sæti er rómantíski spennusagna-
höfundurinn Nora Roberts. Dan Brown,
sem ekki þarf að kynna, er í fjórða sæti
ogbarnabókahöfundurinn sígildiDr. Se-
uss er í fimmta sæti.
Bítlarnir eru þeir tónlistarmenn sem
selt hafa flesta geisladiska á Amazon.
U2 er í öðru sæti og síðan koma Norah
Bítlarnir. Eru vinsælustu tónlistarmennirn-
irá Amazon.
Jones, Diana Krall og Eva Cassidy. Tríló-
gían um Hringadróttinssögu er í fyrsta,
öðru og þriðja sæti yfir mest seldu DVD
diskana á Amazon. Star Wars trílógían
er í fjórða sæti og Matrix í því fimmta.