blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 2
2 I INMLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2003 I blaðiö
Fjölmiðlar
Baugur: - m j* m m ■■ m
Enn í ínn- Sirkus virðir logbann
ISStaSH'm sýslumanns að vettugi
Mikil hagnað-
araukning hjá
KredittBanken
Hagnaður KredittBanken, dótturfélags
fslandsbanka í Noregi, hefur meira
en tvöfaldast milli ára samkvæmt af-
Þrátt fyrir að Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs, hafi lýst
því yfir í erlendum fjölmiðlum að
Baugur myndi hafa hægt um sig á
næstunni virðist fyrirtækið tvístíg-
andi í þeirri afstöðu.
Baugur er einn þeirra fjárfesta,
sem lýst hefur áhuga á að kaupa
te- og kaffiverslanakeðjuna Whitt-
ard of Chelsea, en að minnsta kosti
tveir aðrir fjárfestar munu hafa
sýnt fyrirtækinu áhuga. Verðmæti
þess er um 3,2 milljarðar íslenskra
króna, en talið er að Baugur vilji
sameina keðjuna Julian Groves,
en það er heilsufæðisverslun, sem
Baugsmenn keyptu árið 2003.
Á sínum tíma voru nokkrar vanga-
veltur um það hvort Baugur hefði
áhuga á stórversluninni Marks &
Spencer, en Jón Ásgeir eyddi þeim
jafnan. Áhugi hans kann þó að
hafa beinst að öðru, því Baugur
hefur ráðið næstráðanda Marks &
Spencer, Charles Wilson, til þess
að stýra Baugsfyrirtækinu Booker
Cash & Carry, en Wilson er talinn
afar hæfur stjórnandi á sviði smá-
söluverslunar.
Helgi S. Hermannsson og sjónvarpsstöð-
in Sirkus hafa virt lögbann Héraðsdóms
Reykjavíkur að vettugi, en þrátt fyrir
það starfar Helgi sem dagskrárstjóri
stöðvarinnar. Blaðið þurfti ekki að leita
langt að sönnunargagni þess, því dag-
skrá Sirkuss, sem send er fjölmiðlum á
rætur að rekja í tölvu Helga. Sýslumaður-
inn í Reykjavík hefur brýnt fyrir Helga
að halda lögbannið, en hyggst ekki að-
hafast frekar að sinni.
I maí féllst sýslumaðurinn í Reykjavík á
lögbannsbeiðni Skjás 1 við því að Helgi
S. Hermannsson, fyrrverandi dagskrár-
stjóri Skjás 1, réði sig til starfa við dag-
skrárgerð hjá 365 ljósvakamiðlum, enda
var ákvæði þess efnis í ráðningarsamn-
ingi hans við Skjá 1.
Við fyrirtöku málsins voru lögð fram
ýtarleg gögn, sem sýndu svo ekki varð
um villst, að hann og Árni Þór Vigfús-
son, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Skjás 1,
lögðu á ráðin um það hvernig þeir gætu
komið hugmyndinni á framfæri við
Gunnar Smára Egilsson, framkvæmd-
arstjóra 365 miðla. Skömmu síðar réðu
þeir félagar sig til fyrirtækisins.
Með lögbanninu var lagt bann við því
að Helgi sinnti störfum fyrir 365 miðla á
sviði fjölmiðlunar innanlands fram til 9.
apríl 2006 eða hagnýtti sér trúnaðarupp-
lýsingar frá Skjá 1.1 fjölmiðlageiranum
er það þó opinbert leyndarmál að Helgi
og Sirkus hafi ekki virt lögbannið og
starfi hann þar sem dagskrárstjóri. Dag-
skrá Sirkuss, sem send er fjölmiðlum, á
t.d. rætur að rekja til Helga, en einnig
hafa aðrir miðlar 365 tilgreint Helga
sem starfsmann Sirkuss.
Feluleikur við sýslumann
í þarsíðustu viku fór sýslumaður í árang-
urslausa för á skrifstofu Helga hjá 365
miðlum til þess að kanna hvort hann
héldi lögbannið. I lok síðustu viku fór
hann aftur, en í móttöku var sagt að
Helgi væri ekki þar. Þegar á það var bent
að bíl Helga væri lagt fyrir utan var loks
náð í hann, en hann kvaddi lögmann
sinn þegar til.
Helgi kvaðst kannast við að sýslumað-
ur hafi verið að leita sín viku áður en
bauð honum að athuga tölvu sína, en
þar fundust við lauslega athugun eng-
in gögn, sem stríddu gegn lögbanninu.
Helgi kvaðst ekki hafa yfir fartölvu að
Bailine vaxtarmótunarmeðferS
Við bjóðum þig velkomna í frían prufutíma og
vaxtargreiningu ó meðan þú siakar ó í notaiegu
umhverfi.
Bailine byggir ó 3 grundvaiiaratriðum
* Lei&beiningum um mataræSí
* Líkamlegri þjálfun
* Andlegri þjálfun
Tölvustýrt þjálfunartæki
* Mófar, styrkir, þjálfar, grennir, nuddar
* Eykur brennslu
* Eykur orku og almenna vellí&an
Þúsundir kvenna víðsvegar um heiminn hafa náð
frábærum árangri með Bailine vaxtarmótunarmeðferð.
Kynntu þér opnunartilboð okkar.
Tímapantanir í síma 568 0510.
Þú hefur engu að tapa nema sentimetrur
komutölum sem birtar voru í gær. Þar
kemur fram að hagnaður á fyrstu sex
mánuðum ársins nam um 18,9 milljón-
um norskra króna, eða sem svarar rúm-
lega 180 milljónum íslenskra króna. Til
samanburðar nam hagnaður bankans
á sama tímabili í fyrra 7,3 milljónum
króna, sem samsvarar rúmlega 71 millj-
ón íslenskra króna. 1 tilkynningu frá
bankanum í gær segir meðal annars að
hagnaðurinn skýrist meðal annars af
meiri vaxtamun í formi betri fjármögn-
unar og aukningu á öðrum tekjum.Út-
lán hafa aðeins dregist saman á fyrri
hluta ársins en gæði lánasafnsins hafa
að sama skapi aukist talsvert. ■
Helgi S. Her-
mannsson,
dagskrárstjóri
Sirkuss, en að
neðan má sjá
dagskrárskjal
sjónvarpsstöðv-
arinnar, sem á
uppruna að rekja
til tölvu Helga
eins og sjá má ef
myndin prentast
vel. Lögbann var
sett á þann starfa
hans í vor.
0 C 0 í F |
1 2 3 Þridjudagur Sumardagskrá Sirkus Júni - Ág Midvikudagur Fimmtudagar Föstudagar
4 UéQtkfi Virkut NÝi r *t» ftop<nt.*i Pnpjifivi
5 Pryppt tví
Cmial kmnrr, tialni<i» Cu«»eta» CaMO«<
7 THk f’oootivt
s _ < Popplivi
9 nopptivi
10 Frcttir Stoð 2
11 C se-nfeíð e
12 Ctnutum ***«« e topp iu e
13 ISd Caujvrf _ - sotmow
friondí
13
rnmmntu Tonlolkar
17 4 70 mín A Sirku*
ráða þó hann sé í orði kveðnu ráðinn til
starfa á erlendum vettvangi. Lét sýslu-
maður gott heita að sinni, en brýndi fyr-
ir honum að halda lögbannið.
Stolnir bananar?
Nýr flötur málsins kom svo upp á dögun-
um, en hann snýst um hugmynd að sjón-
varpsefni, sem kynnt var fyrir Helga S.
Hermannssyni skömmu áður en hann
færði sig af Skjánum til 365 miðla. Þær
Þórdís Filipsdóttir og Rósa Guðmunds-
dóttir komu til fundar við Helga með
hugmynd, sem þær nefndu „Drög að
gríni - Uppfyllingarefni fyrir Skjá Einn“
og létu þær stöllur dæmi fylgja á mynd-
bandi. Meira fréttu þær ekki af undir-
tektum fyrr en þátturinn „Bananas" hóf
göngu sína á Sirkus. Hann er að sögn
byggður á hugmyndum þeirra, án þess
að haft hafi verið samráð við hina upp-
haflegu höfunda eða Skjá 1. Þar á bæ var
gerð leit að kynningarskjalinu og upp-
tökunum, en hvorugt hefur fundist af
þeim gögnum, sem Helgi skildi eftir sig.
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri
Skjás 1, vildi ekki tjá sig um málið á ann-
an hátt en að lögbannið lægi fyrir. „Þá
gerir maður ráð fyrir að því sé fylgt eftir,
en manni sýnist nú frekar að verið sé að
hafa úrskurðinn að háði og spotti.“ ■
Kári hefur ekki starfað sem
lækrtir í 9 ár
Læknisleyfi
Kára fullgilt
Ekkert kemur í veg fyrir að læknar hefji
störf á ný hér á landi eftir langt hlé frá
lækningum. Þetta staðfesti Landlækn-
isembættið við
Blaðið í gær.
Ekkiergerðsér-
stök krafa til
lækna um að
þeir viðhaldi
læknisley fi
sínu, þrátt fyrir
aðþeirtakiupp
störf i ótengd-
um greinum,
jafnvel árum saman. Það hefur vakið
nokkra athygli að Kári Stefánsson, for-
stjóri tslenskrar erfðagreiningar mun
í sumar eyða viku af sumarleyfi sínu
við afleysingar á Landsspltala Háskóla-
sjúkrahúsi. Kári starfaði síðast sem
læknir í Baajdaríkjunum fyrir rúmum
níu árum.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra um grein Kristins H. GunnarssÓnar:
„Tómur misskilningur"
,Þetta er tómur misskilningur hjá
Kristni, eins og svo margt hjá honum,“
segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra um grein Kristins H. Gunnarsson-
ar, þingmanns Framsóknarflokksins, í
Blaðinu í gær.
„Samtöl okkar við KEA hafa ekki
snúist um neitt það, sem Kristinn vill
vera láta og hann leggur mér orð í munn,“
segir Árni, sem telur að Kristinn hafi
oftúlkað orð annara um skoðanir sínar.
„Við höfum tekið þátt í margvíslegri
uppbyggingu út á landi og sinnum
verkefnum í Vestmannaeyjum, Grinda-
vík, Stykkishólmi, Isafirði, Akureyri og
Höfn í Hornafirði. Þar hafa heimamenn
komið að því að byggja upp það
umhverfi, sem slík starfsemi þarfnast,
en það er enginn að borga okkur krónu
fyrir.“
I grein sinni gagnrýndi Kristinn
þau Árna og Valgerði Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fyrir
að hafa tekið vel i óskir Kaupfélags Ey-
firðinga (KEA) um flutning starfa á
vegum hins opinbera til Akureyrar, en
KEA vill leggja fé í margskonar atvinnu-
uppbyggingu ef það yrði til þess að liðka
fyrir slíkum flutningi.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, sagðist á hinn bóg-
inn ekki ætla að elta ólar við ummæli
Kristins. ■
O Holískirt (5 Léttskýjað ^ Ský)að Q Alskýjað
Rignlng, lítllsháttar '// Rigning 1* Súld
*
Snjókoma
tjj Slydda Snjóél \jj
Skúr
Amsterdam 20
Barcelona 26
Berlín 21
Chicago 22
Frankfurt 23
Hamborg 21
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 17
London 22
Madrid 32
Mallorka 30
Montreal 26
New York 27
Orlando 28
Osló 18
Parls 22
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 11
Vín 23
Algarve 29
Dublin 19
Glasgow 15
«• fgjjp JL /" 11° ///
'/// 12°
Jgk
0/> mf) k f / '
012°
t
Veðurhorfur í dag Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands W