blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaöið
Formaður VR um verkalýðshreyfinguna
Verður að færa
sig tU nútímans
Samningur fyrir
blaðburðarbörn
Næsti fundur
ekki fyrr en
í september
Hvorki gengur né rekur í vinnu við
gerð kjarasamnings fyrir blaðburðar-
börn hjá Fréttablaðinu og DV. Að sögn
Elíasar Magnússonar, forstöðumanns
kjarasviðs VR hafa nokkrir fundir ver-
ið haldnir að undanförnu, en þeir hafa
ekki skilað árangri. VR lagði fram til-
boð í deilunni í vor og hefur það verið
rætt á nokkrum fundum síðan.
„Það ber talsvert á milli aðila“ segir El-
ías. „Menn eru komnir í sumarfrí núna
þannig að ég geri ekki ráð fyrir að næsti
fundur vegna málsins verði fyrr en í
september".
Enginn samningur er til fyrir blað-
burðarbörn hjá Fréttablaðinu og DV.
Því er margt sem þarf að semja um, en
tilboðið sem liggur nú frammi gengur
út á að búin verði til ákveðin svæði sem
hver blaðberi þarf að bera út á. Tekist
er um stærð svæðanna sem og hvernig
fara á með aukaefni sem fylgja blöðun-
um tveimur, svo sem auglýsingabæk-
linga og annað.
Félagsmönnum í verkalýðsfélögum á norð-
urlöndum hefur fækkað verulega á undan-
förnum árum. Formaður VR telur að verka-
lýðshreyfingin hér verði að búa sig undir
svipaða þróun hér á landi. Hrey fingin verði
að gera sjálfa sig samkeppnisfærari, að öðr-
um kosti muni sífellt fleiri kjósa að standa
utan stéttarfélaga.
Hætta á samkeppni við„lág-
vöru" stéttarfélög
I leiðara nýjasta tölublaðs íréttabréfs VR ger-
ir Gunnar Páll Pálsson, formaður VR stöðu
verkalýðshreyfingarinnar að umræðuefni
sínu. Hann bendir á að „lágvöru" stéttarfé-
lög hafi nú skotið upp kolhnum víða um
heim á undanförnum árum, en þau bjóði
upp á takmarkaða þjónustu gegn vægara fé-
lagsgjaldi en hefðbundin félög. Hann segir
anga af slíku þegar til staðar hér á landi.
„Samband Islenskra Bankamanna aug-
lýsir sig iðulega sem ódýrasta stéttarfélag
landsins og reynir þannig að freista nýrra
félagsmanna" segir Gunnar.
Hann bendir á að hluti af rekstri hreyf-
ingarinnar f dag sé ákaflega óhagstæður. I
því sambandi nefnir hann sérstaklega íbúð-
arekstur.
Formaður VR hefur áhyggjur af því að
sífellt fleiri munu kjósa að standa utan
verkalýðsfélaga.
„Verkalýðsfélög eiga hundruð íbúða í
Reykjavík en hvert stéttarfélag er að reka
nokkrar íbúðir. Ef reksturinn yrði samein-
aður að einhverju leyti myndi vafalaust
nást fram talsverð hagræðing'.
Fimmtíu ára gamalt fyrirkomulag
Hann bendir á að fýrirkomulag verkalýðs-
hreyfmgarinnar hér á landi sé um 50 ára
gamalt og því sé þörf á að skoða það og laga
að breyttum aðstæðum.
„Mér sýnist stærsta ógnin við stöðu verka-
lýðshreyfingarinnar sú að fleiri og fleiri
einstaklingar muni kjósi að standa utan
stéttarfélags. Þessu þarf að bregðast við og
gera einingamar hagkvæmari í rekstri, en
um leið öflugri. Það þarf að fækka félög-
um, gera þau hagkvæmari, ódýrari og skii-
virkari. I dag er hreyfmgin sett saman úr
þremur lögum. Grunnurinn liggur í stéttar-
félögunum sjáfum, þar fyrir ofan eru lands-
samböndin og efst er Alþýðusamband
íslands. Mér finnst full ástæða til að skoða
hvort hægt sé að fækka þessum lögum um
eitt, til dæmis með því að fjölga landsfélög-
um“ segir Gunnar. ■
40 manns
missa vinnu
Rúmlega 40 manns missa vinnuna
þegar fiskvinnslufyrirtækið Suðurnes
í Keflavík hættir starfssemi. Suðurnes
tilkynnti Verkalýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur í gær að vinna hæfist ekki
aftur að loknum sumarleyfum sem nú
eru í gangi. Suðurnes var stofnsett árið
1990. ■
Landakotsskóli
Skólastjóri
ráðinn
Fríða Regína Höskuldsdóttir hefur ver-
ið ráðin sem skólastjóri Landakotsskóla
og tekur hún við af séra Hjalta Þorkels-
syni. Hennar bíður nú það verk að koma
friði á þær fylkingar sem berjast innan
skólans og hafa verið áberandi í fjölmiðl-
um undanfarið.
Fríða Regína starfaði áður sem skóla-
stjóri Mýrarhúsaskóla frá 1995 til 2004
en þar áður sem kennari við Kenn-
araháskóla íslands 1984-1994 og skóla-
stjóri við skóla geðdeildar Barnaspítala
Hringsins frá 1979 til 1984. g
FRJÁLST
Stóru lífeyrissjóðirnir almennt
með betri afkomu en litlir
Raunávöxtun lífeyrissjóða landsins í
fyrra nam um 10,4% og var heldur lægri
en ávöxtun þeirra árið áður þegar hún var
11,3%. Þetta kemur fram í samantekt sem
Fjármálaeftirlitið hefur gert. I samantekt-
inni kemur ennfremur fram að enginn
ÚTSALA
Nú
50%
afsláttur aföllumvörum
RALPH LAUREN
SMÁRALIND
blaói6=
lífeyrissjóður landsins skilaði neikvæðri
ávöxtun í fyrra, en tveir sjóðir náðu þó
aðeins um 1% ávöxtun. I fljótu bragði
virðist sem svo að stærstu sjóðirnir séu
almennt að skila mun betri afkomu en
minni sjóðirnir. I meðfylgjandi töflu eru
þeir sjóðir sem skiluðu bestu og verstu af-
komu síðasta árs. Fyrir utan lífeyrissjóð
starfsmanna Vestmannaeyjabæjar, sem
skilaði hreint frábærri ávöxtun á síðasta
ári, eru stórir lífeyrissjóðir ráðandi á efri
hluta listans. Tveir af þremur minnstu
sjóðum landins verma hins vegar hinn
enda hans, Eftirlaunasjóður starfsmanna
Útvegsbanka Islands með 1% ávöxtun og
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkur-
apóteks með 1,3% ávöxtun.
Eignir upp a tæpa 1000 milljarða
Samkvæmt úttekt Fjármálaeftirlitsins
voru iðngjöld til lífeyrissjóða í fyrra sam-
tals um 73 milljarðar króna en gjaldfærð-
ur lífeyrir nam hinsvegar um 31 milljarði.
Um síðustu áramót voru eignir lífeyrissjóð-
anna til greiðslu lífeyris alls tæpir 1000
milljarðar og jukust um 20% á síðasta
ári. Sífellt stærri hluti lífeyrissparnaðar
HEITISJÓÐS Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar HREIN RAUNÁVÖXTUN 215,0%
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbankans 19,0%
(JfejinssjéðurÐmsklpafé'ags 16,5%
Lífeyrissjóður sjómanna 16,3%
Samvinnulffeyrissjóðurinn (Stigadeild) 15,6%
Samvinnulífeyrissjóðurinn (Aldurstengd deild) 14,7%
Lífeyrissjóður Rangæinga 4,8%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveifarféfaga (A deild) 4,4%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveifarféiaga (B deild) 4,3%
Lífevrissjóður starfsmanna Reykjavikurborgar 3,5%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurapóteks 1,3%
Eftirlaunasjóður starfsmanna Utvegsbanka Islands 1,0%
er í formi séreignar en um síðustu áramót
nam séreignarsparnaður í heild um 11% af
heildareignum lífeyriskerfisins. Til sam-
anburðar var hlutfallið 10% í árslok 2003.
Dreifingarsvæði Blaðsins stækkar
íbúar á Akranesi og í Borgar-
nesi fá Blaðið alla virka daga
Dreifingarsvæði Blaðsins stækkar ört
og í dag bætast Akranes og Borgarnes
í hópinn. I gær hófst dreifing í Hvera-
gerði, Selfossi og Reykjanesbæ og geta
íbúar þessara staða nálgast Blaðið í
helstu verslunum og bensínstöðvum.
Það sama gildir um íbúa á Akranesi og
í Borgarnesi. Þeir geta nálgast Blaðið
á sömu stöðum. Þessu til viðbótar er
verið að taka nýja heimasíðu Blaðsins
í notkun og geta landsmenn nálgast
Blaðið daglega þar. Slóðin er www.vbl.
is. Starfsmenn Blaðsins bjóða íbúa Akra-
ness og Borgarness velkomna í hópinn.
Stærri fyrirtækjum á þessum stöðum er
bent á að hafa samband við skrifstofu
Blaðsins ef þau vilja fá það sent til sín
daglega.
Færri þiggja
húsaleigubæt-
ur en áður
Sveitarfélögin í landinu greiddu rúmar
380 milljónir króna í húsaleigubætur á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs, sem
er rúmlega 5% lækkun miðað við næstu
þrjá mánuði á undan. Ef sömu tímabil
eru skoðuð kemur ennfremur í ljós að
bótaþegum hefur fækkað um tæp 3%.
Á fjórða ársfjórðungi 2004 voru þeir
10.237 á móti 9.973 fyrstu þrjá mánuði
þessa árs.
Þeir aðilar sem þekkja málið, og Blað-
ið ræddi við í gær, eru sammála um að
mikil þensla á íbúðamarkaði skýri fækk-
un þeirra sem þiggja húsaleigubætur.
Mikil munur á áætlunum
og raunveruleika
Sveitarfélög landsins gerðu ráð fyrir að
greiða rúmar 426 milljónir króna í húsa-
leigubætur fyrstu þrjá mánuði ársins.
Greiðslurnar voru eins og áður sagði
um 380 milljónir, og nemur munurinn
10,5%. Að sögn Elínar Gunnarsdóttur,
sérfræðings hjá Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga má gera ráð fyrir að þensla í íbúðar-
kaupum minnki eitthvað á næstunni og
því er ekki ólíklegt að bótaþegum fjölgi
eitthvað það sem eftir er af árinu.
Áttatíu íslensk
fyrirtæki á
Vestnorden
Þegar enn eru tæpir tveir mánuðir 1
Vestnorden ferðakaupstefnuna sem
verður haldin í Kaupmannahöfn hafa
um 80 íslensk fyrirtæki skráð þátttöku
sína. Islendingar verða sem fyrr
fjölmennastir á svæðinu.
Á kaupstefnunni hitta
ferðaþjónustuaðilar frá Islandi,
Grænlandi, Færeyjum og
Hjaltlandseyjum, ferðaheildsala frá
ýmsum löndum. Þarna er um að ræða
fyrirtæki sem eru að selja, eða hafa
hug á að selja, ferðir til vestnorrænu
landanna. Ferðaheildsalarnir koma
víða að, m.a. frá Ástralíu, Kanada,
Bandaríkjuhum og Rússlandi. ■
TILBOÐ 1 Alla virka daga
HÁDEGISVERÐARTILBOD 690 Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Frá 11.00-13.30
TILB0Ð 2 Alla daga vikunnar
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITABORÐINU
gildir frá 17.30 -2100
fB
mEKONG
t h a i I e n s h m a t s t o f o
Tilboðin gllda ekki með heimsendíngu
Sóltún 3 Bæjarllnd 14-16
S 562 9060 S 564 6111