blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaöiö
r' ' > —
mm 4* »
^ j w
£ jf
S|
# i
SUMARRAÐGATUR
BORGAR SIG EKKI
AÐ U PPLYSA!
O S KA RS V F R Ð 1. AIJ N A H A F I N N
JENNIFER CONNELLY
DARK WATE R
FRUMSYND A MORGUN!
Lundúnaárásirnar
óhjákvæmileg
afleiðing Íraksstríðsins
Ný lög um hryðjuverk í bígerð ogstrangara eftirlit með innflytjendum vœntanlegt
Náið samband Breta við Bandaríkja-
menn hefur gert það að verkum að mun
meiri hætta er á hryðjuverkum í land-
inu en ella, samkvæmt tveimur sérfræð-
ingum á sviði alþjóðamála í Bretlandi.
Þrálátar deilur um ávinning af hernað-
arlegri skuldbindingu Bretlandshers í
Irak blossa nú upp í kjölfar hryðjuverk-
anna í höfuðborginni Lundúnum þann
7. júlí síðastliðnum. Hin konunglega
stofnun alþjóðamála í Bretlandi (RIIA)
segir að ástandið í Irak hafi verið „eldur
á olíu áróðursstarfsemi, liðssöfnunar og
fjáröflunnar al-Qaida samtakanná' og
hafi skapað fullkominn grundvöll í Bret-
landi fyrir hryðjuverkamenn tengda
samtökunum.
Varnarmálaráðherra Bretlands, John
Reid, neitar þessu og hefur haldið því
fram að á hryðjuverkum verði að vinna
bug. „Sú hugmynd að með því að hlaupa
undan fantinum á skólalóðinni losnir
þú við hann er fullyrðing sem hvert ein-
asta barn á leikvellinum getur fært sönn-
ur fyrir því að er rugl. Þá getur hvert
einasta atriði mannkynssögunnar einn-
ig hrakið þessa hugmynd," sagði Reid í
útvarpsviðtali við BBC.
Ný hryðjuverkalög í bígerð
Sprengjuárásirnar hafa orðið til þess að
stjórnvöld freista þess nú að innleiða ný
lög sem fela m.a. í sér bann við öllum
undirróðri hryðjuverka og þar á meðal
yrði almenningi meinað að mæra aðild-
armenn hryðjuverka. Þá hefur einnig
verið rætt um að leiða í lög að hleranir
verði leyfileg sönnunargögn við réttar-
höld.
Charles Falconer, dómsmálaráðherra,
hefur neitað því að stjórnvöld hafi til
þessa sýnt vanrækslu í að sía út pólit-
íska flóttamenn frá múslimaríkjum og
hafi þannig gert Bretland að frjóum
grundvelli fyrir liðssöfnun íslamskra
hryðjuverkasamtaka.
Ríkisstjórnin er nú í viðræðum við
stjórnarandstöðuflokkana um nýju lög-
in en þeir munu í meginatriðum hlynnt-
ir því að samþykkja þau. Michael Ho-
ward, leiðtogi Ihaldsflokksins, sagðist
vonast til að ná sátt við ríkisstjórnina
um lögin. Stjórnarandstöðuflokkarnir
hafa þó viljað fá nánari útskýringar á
því hvað felist nákvæmlega í undirróðri
hryðjuverka. „Erum við að tala um ræð-
ur eða blaðagreinar? Hvernig eru þau
orð sem einhver gæti sagt og gætu ver-
ið túlkuð sem undirróður fyrir hryðju-
verk?“ sagði Howard.
Lögregla hafði áður afskipti
af einum árásarmannanna
Nú hefur verið staðfest að 55 létu lífið
í árásunum, þar á meðal fjórir meintu
árásarmennirnir, og þá særðust yfir 700
aðrir. I Sunday Times kom fram að einn
árásarmannanna, hinn 30 ára gamli Mo-
hammad Sidique Khan, var yfirheyrð-
ur af MI5, bresku Alríkislögreglunni,
á síðasta ári vegna gruns um aðild að
yfirvofandi hryðjuverkum. Af honum
þótti þó ekki standa ógn við öryggi þjóð-
arinnar og því var frekara eftirlit ekki
haft með honum. Lundúnalögreglan
og Tony Blair hafa neitað að tjá sig um
þetta mál.
Á laugardag birtust opinberlega
myndir sem náðust á öryggismyndavél-
ar og sýndu árásarmennina fjóra ganga
inná lestarstöðina í Luton um morgun-
inn sem árásirnar voru framdar. Rann-
George Bush og Tony Blair. Vafasöm
vinátta segja sumir
sóknarmenn segja að fjórmenningarnir
hafi tekið lest frá Luton til King’s Cross
í Lundúnum þar sem þeir síðan skiptu
liði og frömdu ódæðisverkin.
Lögreglumenn rannsaka nú heimili
egypsks lífefnafræðings í Leeds eftir að
leifar af sprengiefni fundust í baðkari á
heimili mannsins. Lífefnafræðingurinn,
Magdy el-Nashar, hefur verið yfirheyrð-
ur af egypskum yfirvöldum en harðneit-
að aðild að hryðjuverkunum. Yfirvöld I
Kaíró munu ekki reiðubúin að afhenda
el-Nashar til Bretlands en ekkert sam-
komulag um framsal á fólki ríkir milli
landanna. ■
bjornbragi@vbl.is
Sögulegur dómur yfir
afgönskum stríðsherra
m
í ú; K
Faraydi Zardad
Afganski stríðs-
herrann, Faraydi
Zardad var í gær
sakfelldur, fyrir
breskum dómstól-
um, um svívirði-
legar pyntingar og
mannrán í heima-
landi sínu. Brot
sín mun hann hafa
framið á árunum 1991-1996. Hinn 42 ára
gamli Zardad, sem hefur verið búsett-
ur í Lundúnum frá árinu 1998, neitaði
sakargiftum. Dómurinn er sögulegur
fyrir þær sakir að hér er líklega á ferð-
inni fyrsti dómurinn í Bretlandi yfir er-
lendum manni sem framdi glæpi sína á
erlendri grundu.
Einkar hrottafengnir glæpir
Zardad hafði yfirumsjón með vegi sem
lá milli höfuðborgar Afganistan, Ka-
búl og borgarinnar Jalalabad. Þar mun
hann hafa framið glæpi sína sem þykja
einkar hrottafengnir en einnig er hann
grunaður um að hafa skipulagt aftök-
ur. Mun alvarleiki glæpa hans vera ein
af ástæðunum fyrir því að ekki þótti
skipta máli í hvaða landi réttað væri
yfir honum. Fjölmörg fórnarlömb Zard-
ads vitnuðu í málinu. Sagðist eitt þeirra
hafa verið í haldi hans og manna hans í
yfir fjóra mánuði og laminn svo illilega
að fjölskylda hans hafi ekki þekkt hann
þegar hann sneri heim.
Zardad hafði verið eftirlýstur um
nokkurn tíma þegar rannsóknarfrétta-
maður BBC, John Simpson, rakti slóð
hans og fann hann á heimili sínu f suð-
urhluta Lundúna. I kjölfarið var Zardad
handtekinn. Réttað var yfir Zardad á síð-
asta ári en kviðdómurinn náði þá ekki
sátt um niðurstöðu. Vildu þá einhverjir
kviðdómendanna meina að þó Zardad
hafi borið ábyrgð á pyntingunum hafi
hann ekki endilega framkvæmt þær
sjálfur. Réttað var þvf að nýju og komst
kviðdómurinn nú að áðurnefndri niður-
stöðu. Búist er við því að dómari kveði
upp refsingu Zardads í dag. ■
12 ára stúlka reyndi að
hengja 5 ára dreng
Tólf ára stúlka í Bretlandi hefur játað
á sig alvarlega líkamsárás á fimm ára
dreng sem átti sér stað 31. maí síðastlið-
inn. Drengurinn fannst ráfandi um í
skógi nálægt heimili sínu eftir að atburð-
urinn átti sér stað. Meinafræðingur sem
rannsakaði drenginn sagði að för á hálsi
hans bentu til þess að reynt hefði verið
að kyrkja hann með þykku bandi. Full-
yrti hann fyrir rétti að „ef drengurinn
loftkœling
/-sB* ÍS-hÚSÍð 566 6000
hefði hangið í bandinu nokkrum sek-
úndum lengur eru miklar líkur á því
að hann hefði dáið.“ Þá var drengurinn
mjög marinn og meiddur þegar hann
fannst.
Þegar stúlkan var yfirheyrð í fyrstu
vegna málsins kenndi hún öðrum um
og gaf lögreglu nöfn fjögurra barna
sem síðar voru tekin fanga og yfirheyrð.
Kom á daginn að þau höfðu örugga
fjarvistarsönnun. Stúlkan játaði á end-
anum að hafa verið ein með drengnum
í skóginum og að hún væri ábyrg fyrir
árásinni.
Ruglingslegar frásagnir drengsins
Þegar drengurinn var yfirheyrður af
sérstökum fulltrúum gaf hann afar
ruglingslegar frásagnir af reynslu sinni.
Sagðist hann m.a. hafa verið hengdur
upp og laminn með prikum og brenni-
netlum. Snæri hafði verið bundið um
háls hans, maga og kynfæri. I öðru við-
tali við fulltrúana sagðist drengurinn
telja að hann hafi verið i frumskógi, um-
kringdur öpum sem hafi notað skæri til
að klippa hann niður.
Gert hefur verið hlé á réttarhöldun-
um til 5. september næstkomandi svo
unnt sé að ljúka rannsókn málsins að
fullu. Stúlkan var látin laus gegn lausn-
argjaldi þangað til. Rannsóknaraðilar
freista þess nú að úrskurða hvort súlk-
an teljist sem „hættulegt ungmenni“
og hvort ákæra eigi hana fyrir morðtil-
raun. ■