blaðið - 19.07.2005, Síða 10
10 I NEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaöiö
Mikill verðmunur á tómötum
Útilegur eru órjúfanlegur hluti af sumrinu hjá allflestum íslenskum fjölskyldum. Blaðið gerði könnun á nokkrum vörutegund-
um sem algengt er að taka með sér í tjaldútileguna. Hagkaup var eina verslunin sem allar vörur sem ákveðið var að kanna voru
til í. Mestur var verðmunur á tómötum. Dýrastir voru þeir í Hagkaup, 579 krónur kílóið af íslenskum tómötum í pakka. Ódýrast-
10-11 Lágmúli Bónus Smáratorgi Hagkaup Skeifan Nettó Mjódd Nóatún Smáralind Krónan Skeifan
Tómatar, íslenskir kílóverð í pakkningum 349 76 579 349 249 78
Ferskur ananas 199 ekki til 199 349 199 ekki til
Ferskt basil ekki til 199 269 349 269 ekki til
Myllu maltbrauð 8 sneiðar 189 91 183 349 185 92
íslenskt smjör 500g 249 155 249 249 ekki til 153
Hamborgarar4saman ásamt brauði 576 576 349 576 ekki til 528
*Ekki var gerður greinamunur á íslenskri og erlendri vöru.
Pillur auka drykkju
ungra Dana
Dönsku neytendasamtökin hafa lýst
áhyggjum sínum yfir því að unglingar
taki pillur sem eiga að koma í veg fyr-
ir timburmenn og noti virkni þeirra
til þess að auka drykkjuþol. Þessar
áhyggjur koma í kjölfar þess að hægt
er að kaupa 30 stykki af svokölluðum
,Kaktuspillum“ fyrir réttar þúsund krón-
ur íslenskar í lyíjaverslunum. Þær hafa
vakið gífurlega lukku meðal ungmenna
í Danmörku. Virk efni úr Nopal-kakt-
usplöntunni eiga að virka gegn ógleði í
kjölfar ofdrykkju og halda vatnsbúskap
líkamans innan réttra marka. Auglýs-
ingar á pillunum ganga út á það að með
því að taka þær sé hægt að drekka meira
og lengur án fylgikvilla.
Hætta á áfengiseitrun
Forsvarsmenn neytendasamtaka Dan-
merkur segja að það gangi ekki að ungt
fólk haldi að það geti drukkið endalaust
án nokkurra afleiðinga. „Þegar maður
drekkur 25 til 30 drykki á einu kvöldi er
hætta á því að maður fái áfengiseitrun,
jafnvel deyi“, segir Villy Dyhr, fulltrúi
neytendasamtaka Danmerkur.
Á ekki að hvetja til ofdrykkju
Fulltrúar fyrirtækisins sem hefur kom-
ið pillunum á markað segir þó að það sé
ekki ætlunin að hvetja fólk til drykkju.
Þeir líkja þessu við það að hvetja fólk til
þess að borða óhollt með það í huga að
selja grenningarpillur.
Sjóveikispillur hérlendis.
Á íslandi hefur þetta ekki talist vanda-
mál hingað til þótt vitað sé að ungir Is-
lendingar nota sjóveikispillur til þess að
komast hjá timburmönnum.
Bensínverð
stendur í stað
Bensínverð stendur í stað og er verðið það sama og í síðustu könnun á öllum af-
greiðslustöðum. Orkan er ódýrust með 107,6 krónur á lítrann. Atlantsolía, EGO og
ÓB koma fast á hæla Orkunnar með 107,7 krónur lítrann.
f7\ n 1 eru ódýrastir? Samanburður áverði 95 oktana benstns
AO Sprengisandur 107,7 kr. Kópavogsbraut 107,7 kr. Óseyrarbraut 107,7 kr.
eGO Vatnagarðar 107,7kr. Fellsmúli 107,7 kr. Salavegur 107,7 kr.
© Ægissíöa 108,9 kr. Stóragerði 109,1 kr.
nlís Ánanaust 108,9 kr. Gullinbrú 108,7 kr.
Eiöistorg 107,6kr. Miklabraut 107,6 kr. Skemmuvegur 107,6 kr.
ORKANj
Ob ódýrtbwHin Arnarsmári 107,7 kr. Starengi 107,7 kr. Snorrabraut 107,7 kr.
■Sitr 109,1 kr.
Tískustóllinn í sumar
14.900 kr
Fallegir og þægilegir stólar
sem fást í mörgum litum.
á
é
ruitiois
V
Munið tilboðin á heimasíðu okkar
www.rum.is
Reykjavík: Snorrabraut 56. Sími 551 5200 Akureyri: Glerárgötu 34. Sími 461 5300