blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 18
18 IGOLF
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaðið
Golfari af guðs náð
■ Hefur sex sinnum orðið íslandsmeistari
Björgvin Þorsteinsson er einn af betri
golfurum landsins, en hann hefur hamp-
að Islandsmeistaratitlinum sex sinnum.
Sjálfur segist hann hafa verið með delluna
frá því hann var krakki, en 8 ára byrjaði
hann að reyna fyrir sér í íþróttinni og hef-
ur allar götur síðan stundað golf af kappi.
„I dag fer ég reyndar ekki eins mikið og
ég myndi vilja, þetta er auðvitað tímafrekt
og ekki alltaf hægt að skella sér,“ segir
Björgvin, sem fer þó eins oft og mögulegt
er.
Aðspurður segist hann þess fullviss að
gífurleg aukning hafi verið i golfi hérlend-
is síðustu 20 árin og að gamla lumman
um að golf sé íþrótt ríka fólksins eigi alls
ekki við rök að styðjast lengur. „Árgjald
og stofnkostnaður er reyndar talsverður
en eftir það er þetta ekkert svo dýrt. Þetta
er í rauninni engu dýrara en t.d. skíða-
mennskan."
Björgvin vill þó meina að ísland standi
vel að vígi sé það borið saman við aðrar
þjóðir og að golfíþróttin sé almennari hér
en á mörgum öðrum stöðum í heiminum.
Við erum mjög dugleg að iðka golf hér,
enda sést það best á tölum félaga í klúbb-
umogbiðlistum,"
Góð kennsia í byrjun er iykilatriði
„Það eru þó nokkrir góðir vellir á Islandi.
Ég held hvað mest upp á Vestmannaeyja-
völlinn, Grafarvogsvöllinn og Jaðarsvöll-
inn á Akureyri. Svo er auðvitað mjög
skemmtilegt að skella sér til Flórída eða
annarra landa í golfferð," segir Björgvin
aðspurður um hans helstu velli á íslandi.
Hann segir þó sumarið í ár ekki hið væn-
legasta fyrir golfara, enda hafi veður ekki
verið með besta móti. „Það mætti auðvit-
að vera betra. Vellirnir komu ekki nógu
vel undan vetri, en það fer batnandi núna
og vonandi verður veður gott það sem eftir
erafsumri."
Björgvin segir lykilatriði fyrir byrjend-
ur að haga spilum rétt strax frá grunni.
„Það er mjög mikilvægt að fá góða grunn-
kennslu, auk þess sem þetta krefst ástund-
unar rétt eins og með allt annað. Til þess
að verða góður golfari er mikilvægt að
leggja mikla áherslu á fyrstu sporin," segir
hann, og bætir við að varla sé hægt að fá
betra sport - það sé heilbrigt og félagslegt
og fyrir flesta að iðka. Þá sé þetta afar snið-
ugt fyrir fólk sem hætt er að vinna og vill
eyða tíma sínum á skemmtilegan hátt
hálldora@vbl.is
Græjaðu þig upp
fyrir golfið á
og þekkt vörumerki og fatnað. Svo er
líka til mikið af flottum og vönduðum
golffatnaði i dag. Margir ganga alla leið
og eru í flottustu fötunum og með flott-
ustu græjurnar - en yfirleitt eru það
þeir sem eru komnir eitthvað á leið og
spila mikið.“
Getur verið árs bið eftir
inngöngu í klúbb
Ef fólk hefur útvegað sér sett, skó, kúl-
ur, tí og kerru er það vel í stakk búið
og getur haldið út á golfvöll. Þá er hægt
að bæta við dóti eftir þörfum hvers og
eins. Það sem kannski er dýrast í þessu
er sjálfur kostnaðurinn við að spila, en
stakur tími á flestum helstu völlum er á
bilinu 3-4000 krónur. Þeir eru ófáir sem
fjárfesta í árgjaldi sem er að meðaltali
á 50.000 krónur en þá er gengið í ákveð-
inn klúbb og spilað eftir hentugleika.
Hins vegar komast færri að en vilja og er
það eflaust vegna aukins áhuga á golfi.
„Það eru held ég langir biðlistar á flest-
um völlum. Þeir geta auðvitað bara selt
ákveðið magn af heils árs pössum. Marg-
ir sem eru að byrja geta þurft að bíða í
ár eftir inngöngu í þann klúbb sem þeir
vilja ganga í,“ segir Gunnar að lokum
halldora@vbl.is
Golfkúlur kosta 100-200 kr. stykkið.
Skórnir kosta allt frá 5.000-20.000 kr. en
mikilvægt er að vera í góðum grófbotna
skóm sem styðja vel við spilarann. Þeir
aftra því að fólk renni ef mikil bleyta er
og gera sveifluna auðveldari. Þá eru þeir
flestir vatnsþéttir sem er gott ef lengi er
spilað í bleytu.
Byrjendasett er hægt að fá á um 24.000
kr., en einnig er hægt að fjárfesta í hálfu
setti á 16.000 kr.
ræðna um þær fúlgur fjár sem íþróttin
krefst. Það hefur þó komið á daginn að
raunin er önnur og hægt er að byrja án
þess að það kosti um of.
Margir landsmenn stunda golf-
íþróttina af kappi og það fær-
ist sífellt í vöxt að fólk gefi
því gaum að gaman gæti verið að byrja.
Það er ósjaldan sem það gerist að golfið
verður líf og yndi manna, en að því er
virðist er auðvelt að fá delluna áður en
langt um líður. Það er afar heilsusam-
legt að stunda golf, aukþess sem það hef-
ur mikið félagslegt gildi. Fólk arkar út á
golfvöll í hópi góðra vina, fjölskyldu eða
með vinnufélögum og gerir sér glaðan
dag undir berum himni.
Því hefur ósjaldan verið fleygt fram
að ástundun golfs sé mjög dýr og án efa
hætta einhverjir við að prófa í ljósi um-
Ekki of dýrt miðað við önnur sport
,Þú getur fengið byrjendasett, skó og
flesta aukahluti sem til þarf í kringum
35.000 krónur,“ segir Gunnar Þór Gunn-
arsson, starfsmaður Hole in One. „Það
er meira að segja nóg að byrja á hálfu
setti sem kostar um 16.000 og bæta svo
við skóm og kúlum. Það er óþarfi að
hella sér strax út í allt það dýrasta og í
raun lítið á því að græða þegar fólk er að
byrja,“ segir hann og bætir við að hægt
sé að fá stærri og dýrari sett fyrir upp
undir 25o.ooo.krónur.
Gunnar vill
meina að golfið sé
alls ekki dýrt miðað
við aðrar tómstund-
ir sem fólk tileinki
sér og óþarfi sé að
gera sér grillur um
himinháar upphæð-
ir í þessu samhengi.
„Fólk stundar hesta-
mennsku, skotveiði
og fleira sem krefst
auðvitað líka fjár-
magns, þannig að
ég held að það eigi
enginn sem á ann-
að borð vill stunda
skemmtilega íþrótt
að sniðganga golfið
peninganna vegna.
Auðvitað eru svo
margir sem eru komnir með delluna og
kaupa sér allt það flottasta og dýrasta.
Það er lika alveg
eðlilegt þegar
viðkomandi er
farin að stunda
. þetta af kappi
og ná árangri.
Svo er hægt að
faraútíglæsileg-
an golffatnað ef
maður vill vera
fínn í þessu,
en það er auð-
vitað voðalega
gaman,“ segir
Gunnar, en að
hans mati þykir
flott að stunda
golf. „Þetta er
að mörgu leyti
tískutengt og
mikið um flott
Hanska er hægt aö fá á 1.100 kr. og upp úr
mmm
■ ■
Tenerife
Loksins fyrir (slendinga
www.sumarferdir.is
575 1515ÞBÓKAÐU ALLAN SÓLARHRINGINN
urnAR
FErlDlrl
ALLTAF
Aréttuverði