blaðið - 19.07.2005, Síða 22
22 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaöiö
ÍA - Derby í kvöld
Knattspyrnuunnendur á íslandi
ættu að mæta á Akranesvöll í kvöld
þegar ÍA mætir enska t.deildar-
liðinu Derby County. Liðsmenn
Derby eru á fullu í undirbúningi
fyrir næstu leiktíð sem hefst í
byrjun næsta mánaðar og íslands-
heimsókn þeirra er liður í þessum
undirbúningi. Þeir leika gegn fA
í kvöld á Akranesi klukkan 19 og
Ólafur Þórðarson ætlar að stilla
upp sínu sterkasta liði. Derby Co-
unty er fornfrægt enskt lið og í vor
munaði minnstu að liðinu tækist
að komast upp í ensku úrvalsdeild-
ina en voru slegnir út í umspilinu.
Shaun Wright-
PhillipstilChelsea
Þá er loksins búið að ganga frá sölu
enska landsliðsmannsins Shaun
Wright-Phillips frá Manchester
City til Chelsea. Kaupverð Chelsea
er 2 milljarðar og 415 milljónir ís-
lenskra króna fyrir þennan 23ja ára
gamla kantmann sem Jose Mour-
inho telur einn þann besta í sinni
stöðu í dag. Shaun Wright-Phillips
skrifaði undir 5 ára samning við
Chelsea en enn hefur ekki fengist
gefið upp hver laun hans verða en
hann flaug í dag með liði Chelsea
til Bandaríkjanna í æfingar og
leiki til undirbúnings fyrir næsta
keppnistímabil sem hefst með leik
Arsenal og Chelsea þann yágúst.
NicklasJensen
tilFulham
Danski landsliðsmaðurinn Nicklas
Jensen er genginn til liðs við enska
úrvalsdeildarliðið Fulham sem
Heiðar Helguson leikur með. Jens-
en hefur verið með þýska liðinu
Borussia Dortmund en hann hefur
ekki fengið mörg tækifæri þar á bæ.
Morten Olsen þjálfari danska lands-
liðins hefur haft áhyggjur af þessu
og sagt að ef Nicklas Jensen ætli
sér að vera í landsliðinu þá verði
hann að leika fleiri leiki með félags-
liði sinu. Chris Coleman leyfir hon-
um vonandi að spila meira hjá Ful-
ham en hann gerði hjá Dortmund
og nú verða þeir tveir hjá Fulham
sem bera effimafnið Jensen. Claus
Jensen sem kom frá Charlton síðast-
liðinn vetur og nú Nicklas Jensen.
Eins gott að ruglast ekki á þessu.
klakavélar
Verð 28.000 kr. (0\
;ið 566 6000
Óvæntur útisiqur Þróttara
Fylkir og Þróttur mættust í n.umferð
Landsbankadeildarinnar og var leikið
á Fylkisvelli í Árbæ. Á þeim velli hefur
heimamönnum ekki gengið vel en fyrir
leik liðanna hafði Fylkir aðeins unnið
einn heimaleik á leiktíðinni en fjóra af
fimm útileikjum. Jafnræði var á með lið-
unum framan af leik og þau skiptust á
að sækja. Hvorugt lið náði þó að skora í
fyrri hálfleik og eina mark leiksins kom
ekki fyrr en eftir 70 mínútna leik þegar
Ólafur Tryggvason skoraði fyrir Þrótt.
Þar með unnu Þróttarar sinn fyrsta úti-
sigur í sumar og Fylkismenn töpuðu sín-
um fjórða heimaleik. Þrátt fyrir það er
Fylkir enn í efri hlutanum með 17 stig
en Þróttarar eru komnir úr fallsæti með
9 stig. Þróttur hefur ekki enn fengið á
sig mark eftir að Atli Eðvaldsson tók við
þeim og fjögur stig eru í húsi.
Fylkismenn tapa enn á heimavelli og
það er mikið áhyggjuefni fyrir Þorlák
Árnason þjálfara liðsins. Þetta er senni-
lega mál sem sálfræðingar gætu hjálpað
þeim í og spurning hvort þeir eigi ekki
að íhuga tillögu Ólafs Þórðarsonar þjálf-
ara Iá sem hann varpaði fram í útvarps-
þættinum Mín Skoðun á XFM 91,9 í gær
þar sem Ólafur lagði til að Fylkismenn
skírðu völlinn „ÚtivölT'. Góð hugmynd
finnst ykkur ekki?
Gylfi Þór Orrason sem flautaði leikinn
á í Árbænum varð að hætta keppni eftir
nokkurra mínútna leik vegna tognun-
ar aftan á læri. Erlendur Eiríksson var
fjórði dómari og tók hann því við af
Gylfa. Það geta fleiri meiðst í leikjum
heldur en leikmenn. Næsti leikur Fylk-
is í deildinni er útileikur gegn Val eftir
viku en næsti leikur Þróttar í deildinni
er gegn Fram næsta mánudag. ■
2005
Markahæstu leikmenn karlar
NAFN Félag Mörk Víti Leikir
1 Tryggvi Guðmundsson FH 9 1 9
2 Allan Borgvardt FH 8 0 10
3 Matthtas Guðmundsson Valur 7 0 10
4 Björgólfur HideakiTakefusa Fylkir 5 2 10
5 Guðmundur Steinarsson Keflavík 5 1 10
6 Hrafnkell Helgi Helgason Fylkir 4 1 7
7 Hörður Sveinsson Keflavík 4 0 9
8 Sinisa Kekic Grindavík 3 0 7
9 Stefán Örn Arnarson Keflavík 3 0 5
10 Andri Fannar Ottósson Fram 3 0 8
&LANDSBANKADEILDIN&I karlar
Félag L U J T Mörk Net Stig
1 FH 10 10 0 0 28:5 23 30 ©
2 Valur 10 8 0 2 21 :5 16 24 ©
3 Fylkir 10 5 2 3 20:15 5 17 ©
4 Keflavík 10 4 3 3 16:21 -5 15 ©
5 (A 10 4 2 4 9:11 -2 14 ©
6 KR 10 3 1 6 9:16 -7 10 ©
7 Þróttur R. 11 2 3 6 12:17 -5 9 ©
8 Grindavík 10 2 3 5 10:17 -7 9 ©
9 ÍBV 10 3 0 7 8:21 -13 9 ©
10 Fram 11 2 2 7 10:18 -8 9 ©
Metþátttaka í Laugavegshlaupinu
Míunda Laugavegshlaupið fór
fram um síðustu helgi. Metþátt-
taka var að þessu sinni en 130
keppendur skráðu sig til leiks og hlaup-
í Þórsmörk var rigning af og til en að-
stæður þó alveg ágætar. Þrír keppendur
hættu keppni á leiðinni þannig að 127
keppendur luku keppni sem verður að
teljast lítil afföll. Þátttakendur að þessu
sinni komu frá 12 þjóðlöndum að með-
töldum íslendingum, frá Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Austurríki, Ástralíu, Hol-
landi, Japan, Kanada, Mexíkó, Noregi,
Sviss og Þýskalandi.
13 sveitir voru skráðar til leiks í sveita-
keppninni og þar sigraði FÍFUR sem var
skipuð Guðmanni, Elíssyni, Gauta Hösk-
uldssyni og Sigurði Þórarinssyni. Sigur-
vegari í karlaflokki varð Andrew Shaw
frá Bretlandi en hann sigraði á tíman-
um 4 klukkustundum, 44,36 mínútum.
Þetta er annað árið í röð sem Andrew
Staw sigrar í Laugavegsmaraþoninu. í
öðru sæti varð Steinar Jens Friðgeirsson
á 4 klukkustundum, 55,27 mínútum og
í þriðja sæti varð Alex Kahl frá Banda-
ríkjunum á 5 klukkustundum, og 23 sek-
úndum.
í kvennaflokki sigraði Jackie Bale frá
Bretlandi á 6 klukkustundum, og 44
sekúndum. í öðru sæti varð Katrín Þór-
arinsdóttir á 6 klukkustundum, 5,49
mínútum og í þriðja sæti varð Rakel
Ingólfsdóttir á 6 klukkustudnum 12,32
mínútum. ■
Andrew Shaw frá Bretlandi
ið var að vanda frá Landmannalaugum
og í Þórsmörk en vegalengdin er 55 kíló-
metrar. Til samanburðar þá er venjulegt
maraþonhlaup 42.5 kílómetrar. Þegar
keppendur lögðu af stað var sól og hiti
í Landmannalaugum en á leiðinni yfir
Coleframlengir
viðArsenal
Ashley Cole, vinstri bakvörður enska
úrvalsdeildarliðins Arsenal, hefur fram-
lengt samningi sínum við félagið um
eitt ár. Núgildandi samningur er því til
sumarsins 2008. Ashley Cole hefur átt
i samningaviðræðum við forráðamenn
Arsenal í vetur og ekkert hefur gengið.
Flestir hafa til þessa reiknað með því
að hann færi frá félaginu en skyndilega
um helgina náðust samningar og hann
skrifaði undir framlengingu. í gamla
samningnum var Cole með 3.5 milljónr
íslenskra króna í vikulaun en i nýja
samningnum en
samkvæmt þeim
nýja fær harin
verulega launa-
hækkun eða upp
í 8 milljónir og 50
þúsund íslenskra
króna. Aldeilis góð
hækkun það. Búist
var við að Ashley Cole færi til Chelsea
eftir að hann og umboðsmaður hans
hittu forráðamenn Chelsea á laun í
janúarmánuði og aðilar voru síðan sekt-
aðir af enska knattspyrnusambandinu
fyrir vikið og Cole fékk 11.5 milljónir
íslenskra króna í sekt. Hann fer sem sagt
eklci til Chelsea heldur mætir þeim 7.ág-
úst i leiknum um Samfélagsskjöldinn. ■
siattuueiamarhaðurinn
Ný uersiun í Feilsmúla
Sláttutraktorar í miklu úrvali
Rakar öllu upp i safnarann. enginn blástur
Hægt aó nota í öllum veórum
Góö verö og góö þjónusta
siáttuuéiamarKaðurmn
Feiismúta s: 517 2010
Vél: BoS
20 Hö
Sláttubreidd: 127
300 I safnari
Verð: 799.000,-