blaðið - 19.07.2005, Page 30
30 IFÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 I blaðið
SMÁboraarinn
SMÁBORGARINN
FER Á TÓNLEIKA
Síðastliðið sunnudagskvöld hélt ég í
Egilshöllina, nánar tiltekið á tónleika
með rapparanum víðfræga, Snoop
Dogg. Kappinn hefur komið fyrir
augu og eyru heimsins á öldum ljós-
vakans svo árum skiptir og þykir stór
á sínu sviði. Það var því ekki úr vegi
að skella sér, þó ekki væri nema til
þess að sjá hann með eigin augum. Ég
verð að lýsa yfir ánægju minni með
viðburðinn, sérstaklega í ljósi þess að
Snoop hefur aldrei trónað efst á mín-
um óskalista. Hann var afar góður
á sviðinu, náði góðri stemningu hjá
mannskapnum og greinilegt að fólk
þekkti flest lögin hans. Þá var mik-
ið „show“ sett upp með dönsurum,
myndböndum og fleiru sem gerði
tónleikana viðameiri og flottari í alla
staði. Afspyrnu skemmtileg kvöld-
stund í mínum augum þó svo að allir
hafi nú ekki verið á eitt sammála um
ágæti uppákomunnar...
Tónleikarnir fóru að því er virt-
ist fyrir brjóstið á femínistum, sem
finnst hann í hæsta máta orðljótur og
konum til minnkunar þar sem hann
gerir lítið úr kvenfólki í einhverjum
textum sínum.
Það kann vel að vera að Snoop
gangi stundum of langt í textasmíð
sinni en því má hins vegar ekki
gleyma að hann setur á svið einskon-
ar leikrit og hefur verið þekktur fyrir
að búa til eigin persónu sem hann not-
ar í textum sínum og fjölmiðlum.
Ég hvái yfir þeim athugasemdum
sem femínistar gera í þessu máli -
þær tala um að unglingar og börn geti
borið skaða af manni eins og honum
þar sem mögulegt sé að taka of mikið
mark á því sem hann segir. Þetta er
hins vegar ekkert nema forsjárhyggja
og með öllu ónauðsynleg í ljósi að-
stæðna. Það er á ábyrgð foreldra að
ákveða hvað börn þeirra sjá og hvað
ekki, rétt eins og með bíómyndir,
leikrit, tölvuleiki og óhefðbundna
þætti sem rutt hafa sér til rúms í ís-
lensku sjónvarpi. Hver man t.d. ekki
eftir Jonny National sem fór ótroðnar
slóðir og lét sér fátt um finnast þegar
siðferði var annars vegar. Svo mætti
lengi telja, þegar talað er um málefni
sem skiptar skoðanir eru um.
Femínistar þurfa ekki ætíð að setja
upp varnarhring og leitast við að
finna neikvæða póla á því sem gerist
og gengur í samfélaginu. Auðvitað á
félagsskapur sem slíkur rétt á sér og
oft hafa þær eitthvað til síns máls, en
stundum má anda léttar og sleppa því
að vera með nefið ofan í öllum skúma-
skotum. Ég legg til að þær fari að ein-
beita sér að einhverju þarfara og snið-
gangi leiðindi sökum skemmtunar
landans, enda er það með ólíkindum
að einhverjir tónleikar séu það sem
þær hafi áhyggjur af þegar margt ann-
að og þarfara mætti taka fyrir.
SU DOKU talnaþraut
5 >u Doki Ll- ] 11. gáta
2 7 9
5 2 8 4
8 2 7
7 3 6
8 1 7
3 4 2
1 6 8
2 4 6 1
5 6 4
Lausn á 11.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun.
Su Dokt - lausn við 10. gátu
1 6 5 9 4 8 3 7 2
2 8 3 1 6 7 9 4 5
9 7 3 2 5 6 8 i
8 1 6 7 5 3 2 9 4
5 Ti 9 4 1 2 7 6 | 8
7 2 ! 4 6 8 9 1 5 1 3
6 7 2 8 , 3 4 5 | 1 9
3 9 8 5 ! 7 1 4 2 6
4 5 1 2 9 6 8 3 7
Lausn á 10. gátu
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölunum
frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box
sem innihalda 9 reiti. Sama talan má
ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og
innan hvers box. Allar gátur er hægt að
ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru
upp í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu
vinstra megin og þvi neðsta Uka, ætti
ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að
vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir
eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og
halda áfram.
Jude biðst
aisökunar á
framhjáhaldi
Samband leikarans Jude Law og unn-
ustu hans Siennu Miller hangir víst á
bláþræði eftir að upp komst um fram-
hjáhald leikarans með barnfóstru barna
þeirra, en Jude viðurkenndi að hann
hefði haldið framhjá konu sinni með
barnfóstrunni Daisy Wright
fyrr á þessu ári þegar
hann vann að mynd-
inni All the King's
Men, og lýsti hann yfir
mikilli iðrun. Segist
hann hafa byrjað í
framhjáhaldinuþeg-
ar Daisy passaði
eitt af börnum
Jude, sem hann
á með fyrrver-
andi konu sinni
Sadie Frost. Da-
isy hefur sagt í
fjölmiðlum að
þetta hafi allt
byrjað í mars en
hafi endað þegar að
Sadie rak hana úr
starfi. Jude ákvað að
lýsa þessu yfir opin-
berlega og sagðist
sjá mikið eftir þessu,
og finnist þetta mjög
leitt. „Eftir fréttir í blöðum nýlega vil
ég bara segja að ég skammast mín mjög
mikið og er í uppnámi. Ég er búinn að
særa Siennu og fólk sem stendur okkur
nærri. Ég vil opinberlega biðja Siennu
og fjölskyldu okkar afsökunar á sárs-
aukanum sem ég hef valdið. Það er ekki
hægt að afsaka gjörðir mínar og ég
við biðja ykkur um að gefa okkur
næði á þessum erfiðu tímum.”
Strndra Bullock gifti sig
Sandra Bullock gifti sig um helgina unn-
usta sínum Jesse James. Sandra gabbaði
gesti sína sem héldu að þeir væru að
koma í 41 árs afmæli leikkonunnar. Þeg-
ar gestirnir mættu síðan í afmælisveisl-
una uppgötvuðu þeir að ekki var um að
ræða afmæli, heldur brúðkaup. Mikið
af þekktu fólki kom í veisluna, þar á
meðal Jamie Lee Curtis, William Shatn-
er og Regina King. Því var neitað fyrr í
vikunni að parið hefði gift sig, en þetta
er í fyrsta sinn sem Sandra gengur upp
að altarinu þrátt fyrir að hafa verið eitt
sinn trúlofuð leikaranum Tate Dono-
van. Jesse hefur hinsvegar verið giftur
tvisvar sinnum áður og á þrjú börn með
fyrrverandi konum sínum. Sandra og
Jesse hafa verið saman síðan árið 2003.
Pamela hjálpar Courtney
að komast í form
Pamela Anderson hefur verið að hjálpa
söngkonunni Courtney Love að komast
í form, og léttast. „Ég er að æfa alveg á
fullu. Pamela Anderson hleypur með
mér upp tröppurnar að Pepperdine há-
skólanum. Hún er eins og einkaþjálfar-
inn minn.“ Segir Courtney. Hún hefur
verið án áfengis og fíkniefna í ár, eða síð-
an að dómstóll í Los Angeles sendi hana
á meðferðarstofnun eftir að upp komst
um fíkniefnanotkun hennar í júlí á síð-
asta ári. Courtney á eina dóttur, Francis
Bean, með rokksöngvaranum heitnum
Kurt Corbain, og höfðu yfirvöld tekið
dótturina af henni. Hún hefur hins veg-
ar fengið barnið aftur til sín.
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Þú ert í tengslum við orkuna í dag og áætlan-
ir þínar smella betur saman en þú hafoir oúist við.
Byggðu upp þennan góða árangur og haltu áfram.
V Þig langar að taka áhættu í ástarmálunum
og þú skalt endilega gera það. Stjörnurnar standa
meo þér og þetta verour sKemmtilegur dagur.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Þér finnst sem það sé verið að draga þig nið-
ur af vinnufélögunum. Það er lítið annað að gera
en bíða þar til þetta lægir
V Þú og maki þinn eruð ekki alveg á sama
máli þessa dagana. Það skiptir litlu máíi, þið get-
ið ekki alltaf verið samstíga. Hittu vini þína og
skemmtu þér..
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Þú færð hiálp frá ýmsum í fyrirtadcinu,
einmitt þegar þú parft mest á því að halda. Ef þú
ert metnaðargjörn/gjarn þá muntu ná athygli ein-
hvers með mudar áætlamr.
V Þegar þú háttaðir varstu félagslynd/ur og í
sambandi en í morgun ertu rólegri. Hafðu engar
áhyggjur, þetta er bara undirmeðvitundin sem er
að raoa saman hlutunum. Leggðu þig eða farðu í
göngutúr.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Þú ert meira drífandi en venjulega og munt
leita tækifæra til frama á vægðarlausannátt. Haltu
áfram að vinna þig áfram og ekki velta þér upp úr
fortíðinni.
V Metnaðargirni þín er aðdáunarverð og ekk-
ert út á hana að setja. Ekki þó gleyma að makinn
verður líka að eiga sæti í lífi pínu.
Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Þú ert með fæturnar á jörðinni og ert í góðu
sambandi við vinnuaðstöðuna. Nú er nrábær tími
til að endurskoða aðstöðu þína og íhuga breyting-
ar í framtíðinni.
V Þú 02 maki þinn munuð ná samkomulagi
um eitthvað mikilvægt í sambandi vkkar í da^.
Það mun brevta málunum verulega. Vertu viðbu-
in/n skemmtiiegum vikum sem ffamundan eru.
©Tvíburar
(21. maí-21. júní)
$ Þó það sé óvanalegt fyrir big þá munu sam-
skipti á vinnustaðnum vera ernð og heft. Ef þú
getur haldið þér út af fyrir þig í dag þá yrði það
ágætt
Það er allt frekar erfitt í dag.því miður, þrátt
fyrir jákvæðni þína og þrjósku. Þao eetur venð að
þú slaliir ekki allt sem gerist undir ynrborðinu svo
pú skalt grandskoða það.
©Krabbi
(22. júní-22. júlí)
$ Það er mikilvæ^t að þú talir þegar rétti tím-
inn er. Það mun vera ljóst hvenær sa tuni er.
V Það er góður dagur fyrir ævintýri þannig að
þú skalt taka áhættu. Pú verður verolaunuð/aður
fyrir framtak þitt, leyfðu bara áhuganum að leiða
Þ‘g-
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Ahugi þinn gæti komið aftan að þér og virk-
að illa á aðra.Vertu viss um að blanda smá húmor
í þetta svo enginn misskilji þig.
V Spenna er réttur dagsins og hugur þinn geys-
ist áfram í leit að nyjum hugmyndum og möguíeik-
um. Reyndu að na sambandi við einhvern spenn-
andi því það er aldrei að vita hvað gerist.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Það er svo gaman í vinnunni að þú tekur
varla eftir hvað tímanum lfður. Það er allt í lagi að
hafa gaman af þvf að vinna
V Ef þú ert eitthvað taugaóstyrk/ur farðu þá
út og hreyfðu þig. Þér mun líoa betur.
©Vog
(23, september-23. október)
$ Þú sérð of mikið eftir tækifæri sem þú misst-
ir af að þú fattar ekki að annað tækifæri er handan
við hornið. Gríptu það fyrr en síðar.
V Þér finnst eins og það sé haldið aftur af þér
með gömlum hugmyndum en nú er rétti tfmimi
til að brjótast úr gömlum hefðum. Einbeittu þér
að möguleikum nutíðinnar.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
■ $ Viljastyrkur þinn er sterkur og þú finnur að
þegar þú nefur ákveðið hvað þú vilt gera mun ekk-
ert geta stöðvað þig. Nú er góður tími til að gera
eitthvað í málunum.
V Ef innsæi þitt segir þér að hæ-gja á þér og
hugsa þinn gangþá skaltu gera það. Gildi þín eru
góðir upplýsmgagiafar og þu skalt skoða þau þegar
þú tekur þessa mikilvægu ákvörðun.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Hugmyndir þínar eru djarfar og hressandi.
Vertu viss um að aeila þeim með réttum aðilum.
Það verður ekki erfitt fyrir þig að stefna beint á
toppinn.
V Vinir þínir kæta þig alltaf. Sendu þeim
tölvupóst, hrtngdu I þá og ekki gleyma að fara út
aðborðameðþeim.